23 ágúst 2006

Er ég kem heim í Búðardal....

Jæja, þá er maður kominn aftur í bæinn úr ferðalagi á Vestfirðina. Maður er úthvíldur eða eins úthvíldur og maður verður eftir 6 tíma akstur í sitthvora áttina. Búðardalslagið var auðvitað sungið hátt og snjallt þegar við renndum þarna í gegn í bæði skiptin. Þetta var ágætis ferðalag og náttúrufegurðin þarna á Vestfjörðum er alveg stórkostleg.
Í dag á hann Einar minn afmæli! Hann er 26 ára húrra, húrra, húrra! Við tókum forskot á sæluna og héldum uppá afmælið um helgina í bústaðnum. Þar fékk Einar frá okkur fjölskyldunni flottann Fender kassagítar. Ég var búin að plana þessa gítargjöf ca. 2 mánuði fram í tímann en þessi hugmynd hefur verið að blunda með mér mun lengur. Mér fannst Einar eiga skilið að fá loksins flotttann gítar þar sem hann á bara einhvern gamlann og lúinn og vegna námsáranna og almennra blankheita höfum við ekki getað endurnýjað hann.Mér datt í hug að fá foreldra okkar beggja með í þetta og svo var ég svo heppinn að kunningi minn ,sem er mjög kunnugur gítörum, hjálpaði mér að finna flottann og góðann gítar. Þegar búið var að versla gítarinn fór ég með hann beinustu leið til tengdó og fékk þau til að taka gripinn í sínum bíl uppí bústað. Svo á laugardagsmorguninn leyfði ég Einari að sofa út eða svona eins lengi og ég hafði þolinmæði til ;)Að lokum fór ég inn til hans þar sem hann var hálfsofandi og rétti honum kort og inní því var blað sem ég var búin að prenta út specifications um gítarinn.... Meðan að Einar var að vakna og átta sig á hvað hann var að lesa fór ég fram þar sem búið var að stilla gítarnum upp í eldhúsinu. Svo allt í einu heyrði maður bara drunur (Einar hafði stokkið fram úr kojunni) og svo kemur Einar inn og veit varla hvað hann á að halda um það fyrr en hann sér gítarinn! "Eruð þið ekki að djóka???" endurtekur hann bara nokkrum sinnum þar sem hann trúir ekki eigin augum! Svo tók hann auðvitað gítarinn úr kassanum og skoðaði í bak og fyrir og fór að prófa hann. Ég veit ekki hvort var skemmtilegra; fyrir hann að fá gítartinn eða mig að sjá hann svona ánægðann!
Hérna er svo mynd af gripnum þó svo að mér finnist hún ekki sýna nógu vel hvað hann er fallegur og nú er ég ekki sérfræðingur.



Fyrir utan þetta fórum við í gönguferðir, reyndum að tína ber en þau voru ekki tilbúin og grilluðum úti marg fleira skemmtilegt. Daníel naut sín mjög vel í sveitinni og lék sér mikið og ærslaðist í grasinu. Jæja segi þetta gott í bili þar sem verið er að kalla á mig, einhver virðist vilja fá hádegismatinn sinn :)

Já og ekki má gleyma að Jóhanna vinkona, Eva gamla bekkjasystir og Ísold litla sæta áttu allar afmæli í gær og þið fáið hérna allar risa knús og kossa frá mér.

5 ummæli:

Alda Berglind sagði...

Gaman að heyra gítarsöguna... búin að hlakka til að heyra viðbrögðin hjá Einari. Ég er búin að vera að pæla í einhverju svipuðu lengi fyrir Wannes nema hann þarf þá auðvitað að spila á píanó en ekki gítar. Það er ekki eins og þeir séu ekki nógu dýrir þessi gítarar - en píanó ? Kannski geri bara eins og ég gerði fyrir Einar þegar ég var 12 ára og hreinlega búi til píanó handa Wannesi - úr frauðplasti...

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Bíddu við? Bjóstu til handa Einari gítar úr Frauðplasti??? Ohh vildi að hann væri til ennþá :)

Alda Berglind sagði...

Jebbs. Skar hann út (í fullri stærð) í myndmennt í Hlíðaskóla og málaði hann og setti svo blómavír sem strengi :-) Einari langaði svo í rafmagnsgítar og enginn hafði auðvitað efni á að gefa honum hann...

Alda Berglind sagði...

Af hverju stendur: Láttu það flakka: (2) þegar það eru 3 skilaboð (umm, nú fjögur) hérna inni ? Blogspot er ekki alltaf að virka.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

það kemur ef maður ýtir bara á refresh