22 október 2006

Gaggalagúúúúú!!!!!!!!!!!

Já það er rétt, ég er vöknuð, búin að fara í sturtu og klæða mig og klukkan er ekki nema 9 og Daníel er í pössun! Var búin að plana að ég ætlaði að sofa þvílíkt út en svo vaknaði maður bara uppúr 8 og fór að pæla í því hvað Daníel væri að gera.
Ástæðan fyrir því að hann er í pössun er sú að við vorum á árshátíð Landsbankans í gærkvöldi. Hún var haldin í nýju Laugardagshöllinni og vá hvað þetta var stórt og mikið af fólki! Rúmlega 2.000 manns og þar sem við sátum frekar aftarlega þá var það að fara á klóið bara langferð. En þetta var hrikalega flott og skemmtilegt. Skari skrípó og Eva María voru gestgjafar og svo var Vesturport með atriði og meira segja gerð stuttmynd í tilefni dagsins. Ég var ekki alveg að fíla þetta Vesturportdæmi þar sem fólk var að hanga niður úr köðlum og eitthvða svoleiðis. Var bara ekki að ná þessu en stuttmyndin var geðveikt fyndin. Þarna var í aðalhlutverkum svona lykilfólk í bankanum og auðvitað Bjöggi sem lék the godfather hehehe! Maður hefði eiginlega þurft að sjá þetta :)
Svo var maturinn alveg ótrúlega góður. Skil bara ekki hvernig það er hægt að framreiða mat fyrir 2.000 manns í einu og svo var hann geðveikur í þokkabót. Þjónarnir voru með eitthvað kerfið þarna sem var þannig að ef það vantaði disk einhverstaðar þá stóð þjóninn með upprétta hendi og með hvítann borðklút í hendinni. Það var mikið freistandi að rugla þessu kerfi hjá þeim og standa upp mep klútinn ;) En þessi framleiðsla jafnaðist ekkert á við það sem við sáum í Póllandi þegar við vorum á árshátíð TM software. Þar voru þjónarnir undir heraga og algjört show þegar þeir báru fram matinn.
Í stuttu máli sagt þá var þetta frábært kvöld fyrir utan blessaðar sólarsokkabuxurnar mínar sem auðvitað rifnuðu eins og ég vissi að myndi gerast. Algjört drasl og ég veit um 2 aðrar sem þetta kom fyrir. Ég sem keypti meir að segja XL til að reyna að koma í veg fyrir þetta en allt kom fyrir ekki.
Jæja þarf að fara að drífa mig að ná í Daníel heim til tengdó, maður er nú farin að sakna hans!

7 ummæli:

TaranTullan sagði...

Tell me about those sólarsokkabuxur.
Á tímabili, þegar ég treysti mér til að sýna leggi mína fyrir mörgum árum, þá kom þetta í ófá skipti fyrir. Ég svissaði fljótlega yfir í sokkana bara, mun minni kostnaður og áhættan sem fylgir klósettferðunum droppaði um tugi prósenta...En ég var nátturlega aldrei í pilsum sem náðu ekki niður fyrir miðjan kálfa!

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

jamm ég var einmitt að taka túrinn núna í vinnunni til að tékka á Árshátíðinni og fékk að heyra frá fleirum sem féllu fyrir þessu og meir að segja einni sem sá að sokkabuxurnar voru bara í henglum þegar HÚN KOM HEIM!

Nafnlaus sagði...

Já þetta var ansi mögnuð árshátíð... þangað til Bo drap stemmninguna c",)

Kleina sagði...

Hvað eru sólarsokkabuxur?

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Sólarsokkabuxur eru svona fínar glans, tan sokkabuxur sem eru greinilega ekki með neina teygju og rifna þegar maður togar hressilega í á fylliríum.
Já, ég er alveg sammála að því að BO murkaði lífið úr gestunum með þessu gauli þarna uppá sviði!

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Hefurðu prófað sprey-sokkabuxur Sandra?

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Ég var svona meira að spyrja fyrir Einar ;)