25 október 2006

Strætóferðir og fleira

Mér er bara farið að finnast voðalega notalegt að taka strætó. Maður hefur smá tóm til að hugsa og svo er ég farin að taka eftir ýmsum hlutum í umhverfinu sem ég bara hef aldrei tekið eftir áður. Ég hef t.d. tekið eftir því að það hefur risið stórt hús uppá Höfða rétt hjá AGA. Ótrúlegt hvað þessi hús eru fljót að rísa. Maður spáir líka í því hvað það er búið að byggja mikið undanfarin ár og hver býr eiginlega í öllum þessum húsum? Útlendingar? Svo hef ég tekið eftir því að það er einhver sem lætur alltaf blóm á staðinn þar sem var keyrt yfir konuna á Miklubrautinni. Mér finnst voðalega sorglegt að hugsa um hvernig fólkinu hlýtur að líða sem setur þessi blóm þarna regluleg. Það hlýtur að sakna ástvinar síns sárlega. Hvað fleira.... Tjörnin er búin að vera frosin undanfarna daga og endurnar hafa þurft að vanda aðflugið til að lenda á litla þiðnaða blettinum.
Ég hugsa líka oft um fólkið sem er í vagninum og fæ ósjaldan smá nostalgíu. Sá t.d. stelpu um daginn vera að lesa One flew over the cuckoo´s nest. Man eftir því þegar maður var að lesa þessar bækur og um leið uppgötva bókmenntir. Ég man mér fannst ég voðalega vel lesin þegar ég var svona búin að lesa það merkilegast í þessum bókaflokki. Svo er alltaf a.m.k. einn gaur sem er með tónlist í heyrnatólunum á hæsta þannig að næsta fólk í kring fær að njóta tónlistarinnar með honum. En í staðinn fyrir að pirra mig yfir þessa þá er ég frekar farin að hafa áhyggjur af heyrninni hjá þessum greyjum, svona er maður orðinn gamall.
Annars er ég alltaf að komast meira og meira á þá skoðun að það ætti að hætta þessari endalaus byggingu á nýjum hverfum og þétta byggðina. Suðvesturhornið er farið að minna mann á risastóra pönnuköku! Það er alveg ótrúlegt fé sem fer í að halda þessu gangandi. Það þarf t.d. að leggja rafmagns og vatnslagnir í þetta allt svo ekki sé minnst á vegakerfið með tilheyrandi ljósabúnaði og viðhaldi og almenningssamgöngur. Ég sé alveg möguleikana á því að byggja stærri byggingar en við gerum nú þegar og svo eru margir blettir ónýttir. Ég lagði t.d. í Grettisgötu um daginn og þar var alveg heil röð af gömlum og ljótum timburhúsum sem hefði sennilega nægt að blása á og þau hefðu jafnast við jörðu. Svona lagað finnst mér að megi bara jafna við jörðu og byggja þarna kannski 3gja hæða hús eins og hefur verið gert annarstaðar á Grettisgötunni. Svo mætti sko alveg fara að taka til hendinni þarna í Vogahverfinu við sjóinn. Vera bara með fjöldaniðurrif þar! Jæja nú er ég komin svo langt í þessum pælingum að ég er virkilega farin að spá í að sækja um hjá Borgarskipulagsnefnd Reykjavíkurborgar.

Engin ummæli: