1.IKEA
2.Húsgagnahöllin
3.Habitat
4.Natuzzi
5.Settið
6.Verona
7.Línan
8.Heima
9.Kósý
10.Öndvegi
11.Hagkaup
12.InnX
13.Ego Dekor
14.Sætir sófar
15.Rúmfatalagerinn
16.Líf og list
17.Listadún
18.Míra
19.Egg
20.Seating Concept
21.Exó
22.Tekk company
23.TM húsgögn
24.Sófi.is
Örugglega einhverjar fleiri sem ég man ekki eftir. Vá, 24 verslanir sem selja sófa í einu eða öðru formi! Ef þetta segir ekki sitt um einkaneysluæði íslendinga þá veit ég ekki hvað. Það mætti kannski hafa sér vísitölu byggða á þessu sem myndi þá fara eftir fjölda, staðsetningu og vöruúrvali hjá hverri verslun. Það mætti kannski fara eftir bíóvísitölunni hans Einars, ætli maður láti hann bara um frekari útfærslu á þessu.
Allavegan þrátt fyrir mikinn fjölda verslana þá getum við ekki fundið sófa sem okkur líst báðum vel á. Reyndar þá erum við búin að finna “The Sofa” en Einar er eitthvað að þrjóskast við þannig að opinber staða okkar er ennþá sú að við erum ekki búin að finna sófa. Annað vandamál er að við getum heldur ekki komið okkur saman um stofuljós. Einari líst ekkert á það sem ég sýni honum en hann getur hins vegar ekki sagt eða lýst því sem hann vill fá. Erfitt.

Ég er alveg búin að sjá það fyrir mér að þegar stóri (3m*1,8m) sófinn, sem ég veit að Einar á eftir að samþykkja, verður kominn inn þá verður þörf á að fá eitthvað stórt og áberandi ljós til að vega á móti flykkinu. Ljósið yrði þá einskonar húsgagn útaf fyrir sig. Það sem ég hafði í huga fyrir stofuljós er IQ – ljós eða eitthvað í þeim stíl en þetta virðist vera einum of fyrir Einar sem er meira fyrir látlausari hluti. Kannski hefur hann bara áhyggjur af því að geta ekki komið ljósinu saman.
Einar hefur reyndar nú þegar viðurkennt að ég hafi ágætis auga fyrir innréttingum sem sannaðist þegar við vorum að setja vinnuherbergið upp. Þannig að ég held að þetta sé bara spurning um þolinmæði og þá mun Einar gefa undann... ég meina sjá að þetta mun passa og verða mjög flott.
5 ummæli:
Ég get alveg sagt og líst því að mér leist vel á kastarana sem við vorum að skoða áður en þú sást þetta iq ljós. Og ég hef engar áhyggjur af að koma svona iq ljósi saman, reyndar er það stærsti kosturinn við það, að það er örugglega mjög gaman að setja það saman! Hinsvegar á ég erfitt með að ákveða hvort ég eigi bara að láta slag standa, prófa þetta ljós og þennan sófa (það virkaði ágætlega með hillurnar) eða hvort ég eigi að þrjóskast við og reyna að finna eitthvað sem mér líst betur á, sem virðist ekki ætla að ganga mjög vel...
Mér finnst gott að Tóti lætur mig um svona ákvarðanir SVO LENGI sem honum er "nokk" sama. En JIMINN ef hann hefur á því skoðun GANGI MÉR VEL::::
Þú veist annars að K"a guli sófinn stóð þér til boða (you know what I'm talking about).
Annars er best upp á fatakaup að fá svona Einara/Tóta til að "máta" áður en þeir koma með skoðun, kannski má fá sófann lánaðan?
Þú tekur þetta bara á þolinmæðinni, þannig er það bara, og hefur alltaf verið, þegar karlmaðurinn vill fara að hafa "of mikil áhrif" á einstakt fegurðarmat okkar kvennanna...
Á mínu heimili er það reyndar svo, að þegar kallinn er e-h uggandi yfir einhverri snilldini sem mér dettur í hug, þá spyr ég bara "OG HVAÐ ER ÞAÐ SEM ÞÉR LÍKAR EKKI VIÐ ÞETTA EIGINLEGA?" (það fer reyndar eftir hversu lengi húsgangaleitin hefur staðið, hvernig tóninn í samtalinu er) og ef maður fær ekki skýr og greinagóð svör, þá heldur maður bara áfram "ÉG MEINA ÉG GET EKKERT VERIÐ AÐ BÍÐA HÉRNA LON OG DON EFTIR AÐ ÞÚ TAKIR ÁKVÖRÐUN HVAÐ ÞÉR FINNST FLOTT OG ble ble ble..."Svo fjarar þetta bara einhvernveginn út og hann segir "ókei ókei". Enda finnst mér allt hafa komið býsna vel út á mínu heimili...
En líst vel á ljósið, þetta er nákvæmlega það sem ég sá fyrir mér í gær.
Kveðja
Mér er nú reyndar ansi oft nokk sama um svona hluti, en var ekki alveg að lítast á þetta. En kannski rétt hjá Steinu að maður þyrfti að máta, ég hef svosem oft verið ekkert yfir mig hrifinn af einhverju í búð en síðan fundist það mjög fínt svona seinna meir.
HAHAHAHAHAAAA! Mikið er gott að vita að vinkonur mínar styðja mig í þessu! En annars myndi ég nú aldrei fara að kaupa eitthvað ef Einar væri ekki sáttur, þyrfti í það minnst að vera alveg sama. Við sjáum hvað setur.
Skrifa ummæli