01 október 2007

Punktablogg hjá mér líka

Hef annaðhvort ekki haft tíma til að blogga alveg rosalega lengi eða þegar ég loksins fæ smá tíma fyrir sjálf mig þá nenni ég yfirleitt ekki að eyða þeim í þetta.... En einhver verður að punkta mitt viðburðaríka og æsispennandi líf niður!
  • Daníel er búinn að vera með þurran hósta í viku. Fáum lítinn svefn á nóttunni vegna hóstakasta. Fór loks með hann til læknis eftir að vera búin að prófa allt annað og læknirinn sagði að það væri ekkert að honum, stálhraustur. Læknirinn sagði að allar hóstamixtúrur væru gagnslausar þar sem nú væri bannað að framleiða þær með kódíni. Skrifaði lyfseðil fyrir parkódín sem ég á að gefa 1/2 fyrir svefn. Á víst að vera mjög hóstastillandi.
  • Fengum tilboð um íbúð í síðustu viku í DK. Rosalega fín íbúð 57 fm og leigan um 60.000 kr á mánuði og allt innifalið. Fengum hana ekki því Einar hafði misskilið inntökuskilyrðin. Kannski bara fyrir bestu því hún var frekar langt í burtu eða 45 mín með lest niðrí bæ. Höldum áfram að leita.
  • Einar fór með Ebbu og Láru (o.fl.) á djammið í Köben. Pínu abbó út í Einar verð ég að viðurkenna fyrir utan hvað það er skrítið að maðurinn minn er með vikonum mínum án mín. En rosalega fegin að þær drógu hann með sér.
  • Fór í sumarbústað um helgina með Völu og Jökli. Mjög fínt. Gott að breyta um umhverfi.
  • Er búin að vera að taka til í tæpa 2 tíma í kvöld þar sem ég var að skila sameigninni af mér + drasl eftir sumarbústaðaferðina.
  • Gengur ekkert með Grey´s vegna tímaskorts.... humm gæti verið að horfa á það núna...
  • Vægur vinnuleiði farinn að láta kræla á sér þar sem einungis 74 dagar eru þangað til ég hætti en hver er að telja? Ég stend sjálfa mig að því að vera hætt að vanda mig og hugsa æ þetta er allt í lagi, verð hvort sem er farin áður en nokkur fer að pæla í þessu....
  • Klippikonan mín er hætt að klippa vegna grindagliðnunar og ég er ónýt. Finnst ekkert verra en að leita að nýjum hárgreiðsludúdda og þetta hafa yfirleitt verið verstu tímabil hár-sögu minnar! aarrgggg!
  • Mental note I: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI!
  • Einar kemur eftir 12 daga og verður þá heima í viku. Mig er farið að hlakka til... held ég. Er eiginlega búin að bæla söknunartilfinningar mínar alltof mikið niður með mikilli vinni og verkefnum því þegar ég fer að hugsa of mikið um aðskilnaðinn þá missi ég algjörlega stjórn á tárakirtlunum.
  • Mental note II: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI Í ALVÖRUNNI!
  • Daníel er byrjaður að syngja á fullu lög sem hann hefur lært í leikskólanum. Þarf að fara að hafa mig alla við ef ég ætla ekki að detta afturúr.
  • Fékk að horfa á setningu alþingis í beinni útum gluggann hjá mér í dag. Eeeeelskaaaaa menn í búningum, sérstaklega lögreglu og hermannabúningum! Veit ekki hvað það er sem er svona flott við þá en þeir eru bara svo hraustlegir, snyrtilegir og flottir! Nei, ég er ekki blind þótt ég sé gift!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég mæli með honum Jógvan klippara. hann klikkar örugglega ekki af því að hann var á stöð2

farðu í sykurlaust nammi, reyndu að blekka líkamann smávegis

ert þú ástæðan fyrir þessum gríðarlega "úða" sem var við setningu Alþingis í gær? passa að klemma ekki tunguna í glugganum :)

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

sykurlaust nammi kallar á meira nammi... líkami minn er ekki svo auðblekktur eftir margra ára reynslu ;)

ég ber ekki ábyrgð á úðanum en ég var hins vegar næstum eins og sogskál á glugganum.

Nafnlaus sagði...

hæ esskan min
Saknadi thin lika i køben... en thu ferd nu ad koma ut ;)
Skelltu ther svo til muttu i klippingu ;)
Eg kannast vid thetta nammitrip, er nakvæmlega i sama pakkanum herna.
Knus og kram lara