Þau veðmál sem eru komin:
Ég segi:
Þriðjudagurinn 9.des, stelpa, 14 merkur, dökkhærð
Erna segir:
16. des, stelpa, 15 merkur (var það ekki?)
Einar segir:
11.des, stelpa, 14 merkur, ljóshærð
Þeir sem vilja vera með endilega skráið ykkur í kommentum, gaman að eiga þetta. Ætla síðan að reyna að setja einhverskonar könnun hérna til hliðar með kynin en það eru komnar fjölmargar ástæður fyrir að ég er farin að hallast að því að þetta sé stelpa frekar en strákur þó þær séu auðvitað misgáfulegar.
Ástæður fyrir að þetta er stelpa:
- Næstum öll barnafötin (ca.97%) eru blá, grænblá eða bláleit á einn eða anna hátt - þá er þetta auðvitað stelpa!
- Næstum allir sem hafa séð bumbuna mína (hún er lítil, mjög framstæð og situr hátt) hafa giskað á að þetta sé strákur - þá er þetta auðvitað stelpa!
- Hjartslátturinn er hraður
- Daníel skipti skyndilega um skoðun fyrir ca. mánuði síðan og vill núna bara litla systur
- Það er stelpufaraldur í kringum mig: Hanna Freyja, Lea Dís og litla hennar Lýdíu
- Garnið sem ég keypti í teppið sem ég er að prjóna handa Lille er mun stelpulegra en ég gerði mér grein fyrir
7 ummæli:
Ég veðja á:
Fös 12. des, bláhærð stúlka með tattú á upphandlegg. Rock on.
Sunnudagur 18. des, strákur, ljóshærður.
Hingað til hafa 7 ljóshærðir drengir fæðst mannsins megin og 2 ljóshærðir (Atli var ljósari þegar hann fæddist) mínum megin. Við eigum svo von á strák (sem verður örugglega ljóshærður) þannig að ég held að fjölskyldan sé bara undir einhverjum ljóshærðum strákaálögum.
Ah og 14 merkur, þið eruð svo viss á því :-)
Ég er viss um að þetta verður stór strákur! 16 merkur eins og bróðir sinn og kemur örugglega á settum degi:)
15.des og ég tek undir með Unni að þetta verði strákur ;)
kv lára
júbbs rétt...sextánda verður það ;)
Annars þyrftir þú nú fljótlega að fara að drífa þig uppá spítala ef þú ætlar að hafa rétt fyrir þér...ef þú ert ekki þegar komin þangað :)
Gangi þér vel!!!!
Mer fannst hugmyndin um jolabarnid mjog falleg -o hun se ekki praktisk. Vid ætlum a.m.k. ad vera med jolatre fyrir Daniel (og mig) til öryggis! Svo eg ætla bara ad vedja 24.desember og 16 marka stelpu!
Skrifa ummæli