Var í allann dag uppí MBL-húsinu í lokaverkefninu. Er orðin dáldið stressið þar sem það er 1 mánuður og 1 vika í lokaskil og við vorum að enda við að breyta algjörlega uppbyggingu verkefnisins. Við erum endandlega búin að komast að því nálgunin sem við ætluðum að nota virkar ekki á þjónustu, aðeins áþreifanlega vöru. Er alveg komin með nóg af þessu verkefni en ég er samt að fara aftur á morgun allann daginn. Great!
Allavegana. Skráði mig um daginn á www.stopp.is. Ég er nú ekki beinn neinn ökuníðingur en það kemur fyrir að maður gleymir sér einfaldlega og áður en maður veit af þá er maður komin langt yfir hámarkshraðann. Allavegana nú held ég mig bara við það sem stendur á skiltunum en ég er samt búin að setja mér smá reglu að maður má fara uppí næsta tug fyrir ofan ef það er lítil umferð og allt er eins og best verður á kosið. Verð að viðurkenna að ég hef nú bara dáldið gaman af þessu þar sem það verða margir mjög pirraðir á þessu aksturslagi mínu. Þetta á sérstaklega við þegar ég er að fara heim upp Ártúnsbrekkuna og yfir Gullinbrúnna. Leyfilegur hámarkshraði er 60 á brúnni þannig að ég er reyni að halda mig á undir 70. Þetta virðist fara alveg óhugnalega mikið í taugarnar á fólki sem auðvitað kyndir bara meira upp í mér og ég hægi frekar á mér frekar en að gefa undan og keyra hraðar. Maður samt spáir í þessum bullum í umferðinni. Þeir keyra alveg ofan í mann þannig að maður bara bíður eftir að þeir banki á gluggann og svo eru sumir svo kaldir að blikka mann með ljósunum. Úúúúú...ég er svo hrædd! Hvað ætlar gaurinn að gera? Hrekja mig útaf Gullinnbrúnni ef ég keyri ekki hraðar??? Kræst, svo þegar þeir loksins komast fammúr manni þá gefa þeir manni svona dauða lúkkið eins og ég sé einhver hálvita fyrir að vera á LÖGLEGUM HRAÐA!
Svona aðeins tengt þessu þá heyrði ég í pólsku fréttunum (sem ég hlusta á á netinu) að tvítugur strákur var að keyra yfir 100 þar sem leyfilegur hraði var 50, var að taka framúr og missti stjórn á bílnum þannig að hann keyrði beint á strætóstoppistöð þar sem fullt af fólki var að bíða. Til að gera langa sögu stutta þá létust 5 manns og 3 eru alvarlega slasaðir og þessi strákur á yfir höfði sér 12 ára fangelsi fyrir manndráp (x5)af gáleysi. Humm... fær mann til að hugsa?
Árshátíðin hjá LÍ er eftir 2 vikur og við Einar ætlum að fara. Ég er nú samt ekkert að deyja úr spennu þar sem að... jæja við skulum bara að segja að hljóðmsveitin sem á að spila er ekki alveg fyrir minn smekk (Brimkló). En ég meina það er fínasti kvöldmatur og skemmtiatriði og kostar ekkert þannig að það er svo sem engin ástæða til að sleppa því að fara, maður getur bara farið heim þegar ballið byrjar. Ég er meira að segja búin að verða mér úti um pössun. Besta besta Lára mín ætlar að vera svo góð að láta fara vel um sig hérna heima og hafa það gott meðan að við verðum að heiman. *Takk sæta mín*
Svona í lokin þá verð ég víst að skrifa inn smá dagbókarfærslu sem ég er búin að lofa svo lengi. Geri þetta nú aðalega fyrir Tullu sem þarf að hafa hægt um sig þar til Stubburinn fæðist. En ég tek þetta bara í brotum og ef það er eitthvað sem er of embarrisíng þá tek ég það út ;)annars er þetta orðrétt....nema kannski smá komment fá mér innan sviga :D
21.04.96
Kæra dagbók
Núna eru aðeins 3 dagar í samræmduprófin og ég er að reyna að læra. Eftir síðasta prófið sem verður í dönsku ætla allir krakkarnir að fara að djamma og djúsa (úúú villt) Fyrst förum ég og Lára á útvarpslóðina að öskra (never happend)og svo förum við til Lýðs að skála. Mamma ætlar meir að segja að kaupa eina kampavínsflösku handa okkur. Síðan um kvöldið förum við á ball í skólanum. Það ætla allir að mæta blindfullir. Síðan eftir ballið ef það verður ekki öllum hent út (úúú) þá förum við niður í bæ og skemmtum okkur fram á rauða nótt (þetta hefur verið aldeilis skipulagt). Ég ætla að ná mér í einhvern gæja (OMG!). Skil það ekki en alltaf þegar ég er full þá gengur svo vel að ná sér í strák (humm...wonder why).
Jæja þetta er komið gott í fyrstu adrennu þar sem að framhaldið er of vandræðalegt þar sem ég er að lýsa mínum fyrri strákamálum. Vona að einhver hafi haft gaman að þessu, mér finnst þetta allavegana stórskemmtilegt!
luv,Karen
p.s.þoli ekki þessa krapp sjónvarpsdagskrá á laugardagskvöldum :(
07 október 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hahahahaha....
*dæs* Good times, good times.
Og djöfull er ég sammála þér með dagskránna á laugardögum, reyndar líka á föstudögum. Þetta er til háborinnar skammar hreinlega.
Kveðja
Já ég skil ekkert með þessa dagskrárgerð. Held að skjár 1 sé eitthvað að misskilja markhópinn sinn; við erum ekki ÖLL á djamminu um hlegar!
Já ég fatta, verkefnið þitt... það er ágætt Karen mín þá hef ég heldur ekkert samviskubit að hafa ekkert samband fyrr en hugsanlega 21-22. des... er að drukkna í 18 einingum og grindarverkjum og brjóstsviða... gaman gaman
Skrifa ummæli