Það nýjasta í verkefninu er það að það er kominn nýr punktur í allt heila klabbið og nú eru bjartari tímar fraundan, vonandi. Það er ekki verra að það er komin aukavika á skilafrestinn vegna mikilla anna hjá þeim sem eru í fullu námi. En við ætlum að halda okkur við fyrr plan. Veit eiginlega ekki hvort mér finnst betra að fá þessa auka viku til að létta á manni (fá frí í kvöd) og þá um leið lengja biðina eftir lokadeginum eða bara hafa allt á 150 og standa á haus síðasta daginn!
Það eru merkilegri hlutir að gerast í heiminum en ég og mitt lokaverkefnisvandamál því að hún Tulla gamla bekkjasystir og Jónas voru að eignst lítinn strák á

fimmtudaginn síðasta. Það er þegar komin heimasíða fyrir litla gaurinn sem hlotið hefur nafnið Aðalsteinn Ingi Jónasson. Jii, hvað það var gaman að skoða síðuna hans Aðalsteins og ekki laust við að maður hafi fengið svona nett flash-back. Man alveg eftir minni fæðingu og þegar ég fékk litla engilinn minn uppá bringu. Man hvað maður var alveg uppgefinn eftir að hafa verið með hríðir í 16 tíma en hvað öll sú þreyta hvarf sem dögg fyrir sólu þegar Daníel var fæddur. Það er ekki laust við að það klingi nú aðeins í manni við að fylgajst með þessu öllu gerast hjá vikonum sínum núna, finnst svo langt síðan að Daníel fæddist (16 mán). En svo kemur ein andvökunóttin enn og þá er maður fljótur að ranka við sér aftur og slá öllum frekari barneignum á frest.
Það er alveg ótrúlegt hvað það eru margir komnir með börn núna eða eiga von á börnum, bara eins og faraldur en þetta er svona aðaltíminn sem barneignir byrja 23-27 ára.
Annars var ég að koma heim af stjórnarfundi hjá LÍfeyrissjóði Tannlækna kl.8 og er dauðþreytt eftir daginn. Hver verður ekki þreyttur eftir að þurfa að sitja undir tveggja og hálfs tíma yfirferð og umræðum um verðbréfamarkaði, gengi og fjárfestingastefnur. Ég var oft komin þarna útí dagdrauma meðan að sjóðstjórinn hélt áfram að babbla um nýmarkaði og spennandi tækifæri í erlendum skuldabréfasjóðum. Svo gat ég ekki einu sinni huggað sjálfa mig fyrir að þurfa að sitja svona "áhugaverða" fundi með því að fá mér nammi. Maður fær sér ekki beint súkkulaðimola með góðri samvisku fyrir framan 5 tannlækna! hehe
Jæja ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt með Einari og nýta þetta eina fríkvöld mitt....Jahá...
6 ummæli:
Er þetta Daníel eða Aðalsteinn þarna á myndinni?
Ég býst nú frekar við að þetta sé Daníel. Mátt skila hamingjuóskum til Tullu þegar þú ferð og kíkir á hann frá mér.
ohh þegar ég fer með músina yfir myndina stendur Aðalsteinn.. Hann er mjög fallegur..
Ég skal skila því þegar kemur loksins að því að ég trufli þau mæðgin með heimsókn. Þú veist hvernig það er, maður vill als ekki trufla svona fyrstu vikurnar. En það er ekki hægt að neita því að strákurinn er mjög snotur!
Já ég er einmitt með eina litla frænku sem fæddist 2 sept, ég hafði tíma þá (back í in the days... fyrir 2 mán.. he he) en vildi auðvitað bíða og svo þegar rétti tíminn rann upp í ca. byrjun okt þá hef ég ekki einu sinni tíma fyrir 1/4 af náminu mínu á virku dögunum og um helgar svo ég er ekki ENN farin... frekar vandræðalegt,,, var að spá í að hringja 20 des þegar ég verð búin í prófum (þá verður annað frændsystkini fætt) en þá er maður farin að troða inn á jólin.... arghh..
þú hringir bara þegar þegar lokaverkefnið þitt er komið í skil... það er ekki alveg svo nálægt aðfangadegi... ohhh ég vildi að ég væri að skila lokaverkefninu mínu... púff..
Þá er ég orðin online aftur. Ég og Wannes erum bölvuð þegar kemur að nýjum internet tengingum... Er búin að sitja hérna sveitt í morgun og lesa í einum trekk 6 vikur af bloggi... Og svindl og skömm... fullt af skemmtilegum bloggum sem eg er búin ad missa af umrædunni á... hef sko margt djúsí ad segja um sófakaup, skólaleidbeinendur, borgarskipulag og strætóferdir... oh jæja. Þá höfum við um nóg að tala um jólin. Svona ad lokum: 1. kvarta, kvarta, kvarta og biatchast; eina leidin til ad lifa af skólayfirvöld og skólaleiðbeinendur. 2. Hérna í Belgíu kemur öll fjölskyldan og allir vinirnir upp á fæðingardeild fyrstu dagana eftir fæðingu og skálar í kampavíni yfir nýburanum takk fyrir... Liggur vid að kallarnir skreppi út fyrir og kveiki í vindlum í tilefni dagsins. Ætla svooooo að eiga á Íslandi þegar þar að kemur. Knús.
Já Alda mín þú ert sko velkomin heim hvenær sem er og ekki verra ef þú verður með 1+ í farteskinu ;)
Skrifa ummæli