31 október 2006

Jahá!

Þetta er semsagt nýjasta orðið mitt og þetta er orðið ansi áberandi. Jahá! Ég fór fyrst að taka eftir þessu hjá mér fyrir svona viku síðan og það hefur ágerst. Ég segi þetta oft þegar einhver hefur sagt mér eitthvað eða bara svona útí loftið í staðinn fyrir jæja eða eitthvað svol. Fór að spá í afhverju ég er að segja þetta og hvaðan það er komið... og ég er búin að fatta það. Ég held að þetta sé bara komið af því að ég er of þreytt til að hlusta á hvað er verið að segja við mig og athyglin er ekki þar sem hún á að vera og ég veit ekki hverju maður á að svara til að koma ekki illa út. Eða þá að ég nenni bara ekki að halda samtalinu áfram þar sem áhugaleysi mitt á málefnum annara er gjörsamlega komið á nýtt plan en þetta líka svínvirkar!
Það nýjasta í verkefninu er það að það er kominn nýr punktur í allt heila klabbið og nú eru bjartari tímar fraundan, vonandi. Það er ekki verra að það er komin aukavika á skilafrestinn vegna mikilla anna hjá þeim sem eru í fullu námi. En við ætlum að halda okkur við fyrr plan. Veit eiginlega ekki hvort mér finnst betra að fá þessa auka viku til að létta á manni (fá frí í kvöd) og þá um leið lengja biðina eftir lokadeginum eða bara hafa allt á 150 og standa á haus síðasta daginn!

Það eru merkilegri hlutir að gerast í heiminum en ég og mitt lokaverkefnisvandamál því að hún Tulla gamla bekkjasystir og Jónas voru að eignst lítinn strák á
fimmtudaginn síðasta. Það er þegar komin heimasíða fyrir litla gaurinn sem hlotið hefur nafnið Aðalsteinn Ingi Jónasson. Jii, hvað það var gaman að skoða síðuna hans Aðalsteins og ekki laust við að maður hafi fengið svona nett flash-back. Man alveg eftir minni fæðingu og þegar ég fékk litla engilinn minn uppá bringu. Man hvað maður var alveg uppgefinn eftir að hafa verið með hríðir í 16 tíma en hvað öll sú þreyta hvarf sem dögg fyrir sólu þegar Daníel var fæddur. Það er ekki laust við að það klingi nú aðeins í manni við að fylgajst með þessu öllu gerast hjá vikonum sínum núna, finnst svo langt síðan að Daníel fæddist (16 mán). En svo kemur ein andvökunóttin enn og þá er maður fljótur að ranka við sér aftur og slá öllum frekari barneignum á frest.
Það er alveg ótrúlegt hvað það eru margir komnir með börn núna eða eiga von á börnum, bara eins og faraldur en þetta er svona aðaltíminn sem barneignir byrja 23-27 ára.

Annars var ég að koma heim af stjórnarfundi hjá LÍfeyrissjóði Tannlækna kl.8 og er dauðþreytt eftir daginn. Hver verður ekki þreyttur eftir að þurfa að sitja undir tveggja og hálfs tíma yfirferð og umræðum um verðbréfamarkaði, gengi og fjárfestingastefnur. Ég var oft komin þarna útí dagdrauma meðan að sjóðstjórinn hélt áfram að babbla um nýmarkaði og spennandi tækifæri í erlendum skuldabréfasjóðum. Svo gat ég ekki einu sinni huggað sjálfa mig fyrir að þurfa að sitja svona "áhugaverða" fundi með því að fá mér nammi. Maður fær sér ekki beint súkkulaðimola með góðri samvisku fyrir framan 5 tannlækna! hehe
Jæja ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt með Einari og nýta þetta eina fríkvöld mitt....Jahá...

27 október 2006

hatahatahataþettalokaverkefni!!!!!!

Guð hvað ég er ekki að nenna þessu lokaverkefni. Ég er alveg að fara að gubba mig langar svo innilega ekki til að halda áfram með það enda er ég hundóánægð með það! Verkefnið sem við tókum að okkur leit vel út í fyrst en núna er búið að koma í ljós að þótt að verkefnið útaf fyrir sig sé verðugt að vinna það þá eru bara ýmsar ástæður sem gera manni erfitt fyrir. T.d. hafa tengiliðirnir okkar lítinn sem engann tíma til að sinna okkur eða veita okkur þær upplýingar sem við þurfum og fyrir utan það þá eru upplýsingarnar mjög breytilegar frá degi til dags. Leiðbeinandinn okkar veit ekkert um vörustjórnun enda er hann hagfræðingur. Hann er örugglega mjög klár en hann samþykkti nálgun á verkefninu sem við erum búin að komast að NÚNA að myndi aldrei ganga á þjónustu. GOD ÉG ER ALVEG BRJÁLUÐ! Fyrir utan það þá hefur hann ekkert haft samband við okkur og einu sinni sendum við á hann einhverja klausu til að líta á og við heyrðum ekkert frá honum. Meðan að okkar er svona ganslaus þá er ég að heyra um aðra sem eru að veita þvílílkt aðhald og fara yfir og gagnrýna það sem betur mætti fara! Satt að segja þá veit ég ekkert hvering þetta um fara þar sem það eru ekki nema innan við þrjár vikur í skil til leiðbeinanda. Ég er löngu hætt að stefna á góða einkunn, markmiðið var bara að ná en nú er ég meira að segja farin að efast um að það náist. Það sem fer mest í taugarnar á mér er að ég tel mig engann aula í námi og ég ætti að geta gert gott lokaverkefni en allar þessar slæmu og leiðinlegu aðstæður eru að gera það gjörsamlega ómögulegt. Æ, ég veit ekkert hverju ég ætlaði að koma til skila með þessu... Þurfti bara að pústa, ætli það sé ekki best að fara að reyna að skrifa eitthvað meira í þessa blessuðu ritgerð.

25 október 2006

Strætóferðir og fleira

Mér er bara farið að finnast voðalega notalegt að taka strætó. Maður hefur smá tóm til að hugsa og svo er ég farin að taka eftir ýmsum hlutum í umhverfinu sem ég bara hef aldrei tekið eftir áður. Ég hef t.d. tekið eftir því að það hefur risið stórt hús uppá Höfða rétt hjá AGA. Ótrúlegt hvað þessi hús eru fljót að rísa. Maður spáir líka í því hvað það er búið að byggja mikið undanfarin ár og hver býr eiginlega í öllum þessum húsum? Útlendingar? Svo hef ég tekið eftir því að það er einhver sem lætur alltaf blóm á staðinn þar sem var keyrt yfir konuna á Miklubrautinni. Mér finnst voðalega sorglegt að hugsa um hvernig fólkinu hlýtur að líða sem setur þessi blóm þarna regluleg. Það hlýtur að sakna ástvinar síns sárlega. Hvað fleira.... Tjörnin er búin að vera frosin undanfarna daga og endurnar hafa þurft að vanda aðflugið til að lenda á litla þiðnaða blettinum.
Ég hugsa líka oft um fólkið sem er í vagninum og fæ ósjaldan smá nostalgíu. Sá t.d. stelpu um daginn vera að lesa One flew over the cuckoo´s nest. Man eftir því þegar maður var að lesa þessar bækur og um leið uppgötva bókmenntir. Ég man mér fannst ég voðalega vel lesin þegar ég var svona búin að lesa það merkilegast í þessum bókaflokki. Svo er alltaf a.m.k. einn gaur sem er með tónlist í heyrnatólunum á hæsta þannig að næsta fólk í kring fær að njóta tónlistarinnar með honum. En í staðinn fyrir að pirra mig yfir þessa þá er ég frekar farin að hafa áhyggjur af heyrninni hjá þessum greyjum, svona er maður orðinn gamall.
Annars er ég alltaf að komast meira og meira á þá skoðun að það ætti að hætta þessari endalaus byggingu á nýjum hverfum og þétta byggðina. Suðvesturhornið er farið að minna mann á risastóra pönnuköku! Það er alveg ótrúlegt fé sem fer í að halda þessu gangandi. Það þarf t.d. að leggja rafmagns og vatnslagnir í þetta allt svo ekki sé minnst á vegakerfið með tilheyrandi ljósabúnaði og viðhaldi og almenningssamgöngur. Ég sé alveg möguleikana á því að byggja stærri byggingar en við gerum nú þegar og svo eru margir blettir ónýttir. Ég lagði t.d. í Grettisgötu um daginn og þar var alveg heil röð af gömlum og ljótum timburhúsum sem hefði sennilega nægt að blása á og þau hefðu jafnast við jörðu. Svona lagað finnst mér að megi bara jafna við jörðu og byggja þarna kannski 3gja hæða hús eins og hefur verið gert annarstaðar á Grettisgötunni. Svo mætti sko alveg fara að taka til hendinni þarna í Vogahverfinu við sjóinn. Vera bara með fjöldaniðurrif þar! Jæja nú er ég komin svo langt í þessum pælingum að ég er virkilega farin að spá í að sækja um hjá Borgarskipulagsnefnd Reykjavíkurborgar.

22 október 2006

Gaggalagúúúúú!!!!!!!!!!!

Já það er rétt, ég er vöknuð, búin að fara í sturtu og klæða mig og klukkan er ekki nema 9 og Daníel er í pössun! Var búin að plana að ég ætlaði að sofa þvílíkt út en svo vaknaði maður bara uppúr 8 og fór að pæla í því hvað Daníel væri að gera.
Ástæðan fyrir því að hann er í pössun er sú að við vorum á árshátíð Landsbankans í gærkvöldi. Hún var haldin í nýju Laugardagshöllinni og vá hvað þetta var stórt og mikið af fólki! Rúmlega 2.000 manns og þar sem við sátum frekar aftarlega þá var það að fara á klóið bara langferð. En þetta var hrikalega flott og skemmtilegt. Skari skrípó og Eva María voru gestgjafar og svo var Vesturport með atriði og meira segja gerð stuttmynd í tilefni dagsins. Ég var ekki alveg að fíla þetta Vesturportdæmi þar sem fólk var að hanga niður úr köðlum og eitthvða svoleiðis. Var bara ekki að ná þessu en stuttmyndin var geðveikt fyndin. Þarna var í aðalhlutverkum svona lykilfólk í bankanum og auðvitað Bjöggi sem lék the godfather hehehe! Maður hefði eiginlega þurft að sjá þetta :)
Svo var maturinn alveg ótrúlega góður. Skil bara ekki hvernig það er hægt að framreiða mat fyrir 2.000 manns í einu og svo var hann geðveikur í þokkabót. Þjónarnir voru með eitthvað kerfið þarna sem var þannig að ef það vantaði disk einhverstaðar þá stóð þjóninn með upprétta hendi og með hvítann borðklút í hendinni. Það var mikið freistandi að rugla þessu kerfi hjá þeim og standa upp mep klútinn ;) En þessi framleiðsla jafnaðist ekkert á við það sem við sáum í Póllandi þegar við vorum á árshátíð TM software. Þar voru þjónarnir undir heraga og algjört show þegar þeir báru fram matinn.
Í stuttu máli sagt þá var þetta frábært kvöld fyrir utan blessaðar sólarsokkabuxurnar mínar sem auðvitað rifnuðu eins og ég vissi að myndi gerast. Algjört drasl og ég veit um 2 aðrar sem þetta kom fyrir. Ég sem keypti meir að segja XL til að reyna að koma í veg fyrir þetta en allt kom fyrir ekki.
Jæja þarf að fara að drífa mig að ná í Daníel heim til tengdó, maður er nú farin að sakna hans!

18 október 2006

Fann mynd af sófanum!

16 október 2006

Sammála um að vera ósammála?

Nú er komið að því að við ætlum að fara að skipta út litla IKEA sófanum okkar fyrir stórann, djúpann, flottann alvöru sjónvarpssófa. Ég verð að viðurkenna að það hefur alltaf verið draumur hjá mér að eiga góðann sófa þar sem maður getur komið sér almennilega fyrir. Við Einar erum búin að vera að skoða dáldið enda enginn skortu á húsgagnaverslunum hérna. Hefur einhver spáði í hversu margar verslanir með sófa eru á Höfuðborgarsvæðinu? Eigum við að telja?

1.IKEA
2.Húsgagnahöllin
3.Habitat
4.Natuzzi
5.Settið
6.Verona
7.Línan
8.Heima
9.Kósý
10.Öndvegi
11.Hagkaup
12.InnX
13.Ego Dekor
14.Sætir sófar
15.Rúmfatalagerinn
16.Líf og list
17.Listadún
18.Míra
19.Egg
20.Seating Concept
21.Exó
22.Tekk company
23.TM húsgögn
24.Sófi.is

Örugglega einhverjar fleiri sem ég man ekki eftir. Vá, 24 verslanir sem selja sófa í einu eða öðru formi! Ef þetta segir ekki sitt um einkaneysluæði íslendinga þá veit ég ekki hvað. Það mætti kannski hafa sér vísitölu byggða á þessu sem myndi þá fara eftir fjölda, staðsetningu og vöruúrvali hjá hverri verslun. Það mætti kannski fara eftir bíóvísitölunni hans Einars, ætli maður láti hann bara um frekari útfærslu á þessu.
Allavegan þrátt fyrir mikinn fjölda verslana þá getum við ekki fundið sófa sem okkur líst báðum vel á. Reyndar þá erum við búin að finna “The Sofa” en Einar er eitthvað að þrjóskast við þannig að opinber staða okkar er ennþá sú að við erum ekki búin að finna sófa. Annað vandamál er að við getum heldur ekki komið okkur saman um stofuljós. Einari líst ekkert á það sem ég sýni honum en hann getur hins vegar ekki sagt eða lýst því sem hann vill fá. Erfitt.
Ég er alveg búin að sjá það fyrir mér að þegar stóri (3m*1,8m) sófinn, sem ég veit að Einar á eftir að samþykkja, verður kominn inn þá verður þörf á að fá eitthvað stórt og áberandi ljós til að vega á móti flykkinu. Ljósið yrði þá einskonar húsgagn útaf fyrir sig. Það sem ég hafði í huga fyrir stofuljós er IQ – ljós eða eitthvað í þeim stíl en þetta virðist vera einum of fyrir Einar sem er meira fyrir látlausari hluti. Kannski hefur hann bara áhyggjur af því að geta ekki komið ljósinu saman.
Einar hefur reyndar nú þegar viðurkennt að ég hafi ágætis auga fyrir innréttingum sem sannaðist þegar við vorum að setja vinnuherbergið upp. Þannig að ég held að þetta sé bara spurning um þolinmæði og þá mun Einar gefa undann... ég meina sjá að þetta mun passa og verða mjög flott.

12 október 2006

Bannað að hlægja!

Nú er komið svo langt síðan ég hef sagt frá Daníel að það er nú heldur betur tími til kominn.
Mér finnst foreldrahlutverkið vera það erfiðasta sem ég hef komist í og þá er ég ekki að meina líkamlega. Ég er að meina uppeldi. Ég veit að ég hef oft litið á illa uppalinn börn og hugsað guð afhverju gera foreldranir ekki þetta eða hitt? Little did I know!!! Börnin eru fljót að læra og ég hef oft oft oft lent í því að vanmeta litla gaurinn minn. Maður heldur alltaf að þau séu ekki að fatta eitthvað, heldur að þau séu ennþá svo miklir óvitar. En þau eru fljót að læra og fljót að læra að nýta sér aðstæður, ójá! Sem dæmi er Daníel búinn að fatta hvar Cheeriosið er geymt og hleypur oft í það. Við gerðum mistök að hlægja að þessu fyrst og fannst það voða sniðugt hvað hann var orðinn klár. Í dag er Cheeriosið komið á nýjann stað, uppí efstu hillu!
Maður má ekki springa úr hlátri þegar þau gera eitthvað sem getur orðið hættulegt eins og að hoppa uppí hjónarúminu. Þá finnst þeim þetta voða sniðugt og halda áfram til að fá athygli og oftar en ekki endar það illa annað hvort að við þurfum að skerast í leikinn (þá um leið erum við ljót og leiðnleg!)og láta hann hætta eða þá að hann meiðir sig.
Ég var líka með voða háleitar hugmyndir um að ég myndi sko ekki láta Daníel komast upp með að borða ekki það sem er á boðstólnum hverju sinni og ég myndi sko aldrei fara að elda eitthvað sér ofaní hann. Guess again! Ég segi nú ekki að ég gangi svo langt að elda sér ofan í hann en ég gef mig oft þegar hann vill ekki borða. Maður hefur svo miklar áhyggjur af því að hann fái engann mat ofan í sig að maður að lokum leyfir honum að fá skyr bara í staðinn fyrir brauðið. Ég veit alveg að hann sveltur ekki en það er hægara sagt en gert að segja: jæja, þá færðu bara ekkert að borða víst þú vilt ekki þetta! Hann er líka búinn að læra það að ef hann neitar að borða brauðið þá fær hann eitthvað annað... að lokum. Óþolandi hvað þessi börn læra!
Það er ekki hægt að segja annað en að ég er algörlega búin að endurskoða afstöðu mína til uppeldis og ég held að höfundar uppeldisbóka muni græða vel á mér. Reyndar held ég að ég og mínir líka séum bara akkúrat markhópurinn fyrir þessa höfunda.

07 október 2006

Hitt og þetta + smá dagbókarbrot

Var í allann dag uppí MBL-húsinu í lokaverkefninu. Er orðin dáldið stressið þar sem það er 1 mánuður og 1 vika í lokaskil og við vorum að enda við að breyta algjörlega uppbyggingu verkefnisins. Við erum endandlega búin að komast að því nálgunin sem við ætluðum að nota virkar ekki á þjónustu, aðeins áþreifanlega vöru. Er alveg komin með nóg af þessu verkefni en ég er samt að fara aftur á morgun allann daginn. Great!

Allavegana. Skráði mig um daginn á www.stopp.is. Ég er nú ekki beinn neinn ökuníðingur en það kemur fyrir að maður gleymir sér einfaldlega og áður en maður veit af þá er maður komin langt yfir hámarkshraðann. Allavegana nú held ég mig bara við það sem stendur á skiltunum en ég er samt búin að setja mér smá reglu að maður má fara uppí næsta tug fyrir ofan ef það er lítil umferð og allt er eins og best verður á kosið. Verð að viðurkenna að ég hef nú bara dáldið gaman af þessu þar sem það verða margir mjög pirraðir á þessu aksturslagi mínu. Þetta á sérstaklega við þegar ég er að fara heim upp Ártúnsbrekkuna og yfir Gullinbrúnna. Leyfilegur hámarkshraði er 60 á brúnni þannig að ég er reyni að halda mig á undir 70. Þetta virðist fara alveg óhugnalega mikið í taugarnar á fólki sem auðvitað kyndir bara meira upp í mér og ég hægi frekar á mér frekar en að gefa undan og keyra hraðar. Maður samt spáir í þessum bullum í umferðinni. Þeir keyra alveg ofan í mann þannig að maður bara bíður eftir að þeir banki á gluggann og svo eru sumir svo kaldir að blikka mann með ljósunum. Úúúúú...ég er svo hrædd! Hvað ætlar gaurinn að gera? Hrekja mig útaf Gullinnbrúnni ef ég keyri ekki hraðar??? Kræst, svo þegar þeir loksins komast fammúr manni þá gefa þeir manni svona dauða lúkkið eins og ég sé einhver hálvita fyrir að vera á LÖGLEGUM HRAÐA!
Svona aðeins tengt þessu þá heyrði ég í pólsku fréttunum (sem ég hlusta á á netinu) að tvítugur strákur var að keyra yfir 100 þar sem leyfilegur hraði var 50, var að taka framúr og missti stjórn á bílnum þannig að hann keyrði beint á strætóstoppistöð þar sem fullt af fólki var að bíða. Til að gera langa sögu stutta þá létust 5 manns og 3 eru alvarlega slasaðir og þessi strákur á yfir höfði sér 12 ára fangelsi fyrir manndráp (x5)af gáleysi. Humm... fær mann til að hugsa?

Árshátíðin hjá LÍ er eftir 2 vikur og við Einar ætlum að fara. Ég er nú samt ekkert að deyja úr spennu þar sem að... jæja við skulum bara að segja að hljóðmsveitin sem á að spila er ekki alveg fyrir minn smekk (Brimkló). En ég meina það er fínasti kvöldmatur og skemmtiatriði og kostar ekkert þannig að það er svo sem engin ástæða til að sleppa því að fara, maður getur bara farið heim þegar ballið byrjar. Ég er meira að segja búin að verða mér úti um pössun. Besta besta Lára mín ætlar að vera svo góð að láta fara vel um sig hérna heima og hafa það gott meðan að við verðum að heiman. *Takk sæta mín*

Svona í lokin þá verð ég víst að skrifa inn smá dagbókarfærslu sem ég er búin að lofa svo lengi. Geri þetta nú aðalega fyrir Tullu sem þarf að hafa hægt um sig þar til Stubburinn fæðist. En ég tek þetta bara í brotum og ef það er eitthvað sem er of embarrisíng þá tek ég það út ;)annars er þetta orðrétt....nema kannski smá komment fá mér innan sviga :D

21.04.96

Kæra dagbók

Núna eru aðeins 3 dagar í samræmduprófin og ég er að reyna að læra. Eftir síðasta prófið sem verður í dönsku ætla allir krakkarnir að fara að djamma og djúsa (úúú villt) Fyrst förum ég og Lára á útvarpslóðina að öskra (never happend)og svo förum við til Lýðs að skála. Mamma ætlar meir að segja að kaupa eina kampavínsflösku handa okkur. Síðan um kvöldið förum við á ball í skólanum. Það ætla allir að mæta blindfullir. Síðan eftir ballið ef það verður ekki öllum hent út (úúú) þá förum við niður í bæ og skemmtum okkur fram á rauða nótt (þetta hefur verið aldeilis skipulagt). Ég ætla að ná mér í einhvern gæja (OMG!). Skil það ekki en alltaf þegar ég er full þá gengur svo vel að ná sér í strák (humm...wonder why).

Jæja þetta er komið gott í fyrstu adrennu þar sem að framhaldið er of vandræðalegt þar sem ég er að lýsa mínum fyrri strákamálum. Vona að einhver hafi haft gaman að þessu, mér finnst þetta allavegana stórskemmtilegt!

luv,Karen

p.s.þoli ekki þessa krapp sjónvarpsdagskrá á laugardagskvöldum :(

30 september 2006

Ótrúlega óáhugavert líf þessa dagana...

Vá hvað þetta er hóflega orðað miðað við að ég hef nákvæmlega ekkert að segja. Veit ekki einu sinni hvort ég muni getað klárað þessa færslu þar sem að Einar er að spila á gítarinn og sjónvarpið er líka í gangi og ég finn ekki fjarsýringuna. Verð að muna kaupa ól á fjarstýringuna eða raddstýringu á sjónvarpið eða kannski bara líma fjarstýringuna við borðið næst þegar ég finn hana...
Allavegana þá gengur verkefnið svona lala en leiðbeinandinn okkar er ekkert að leiðbeina okkur. Ég efast meira að segja um að hann geri sér almennilega grein fyrir um hvað verkefnið er. Fyrir utan það þá er maðurinn HAGFRÆÐINGUR og hefur lítið vit og örugglega enn minni áhuga á vörustjórnun. Við verðum bara að halda okkar striki og vona að við séum á réttri leið þar til við fáum eitthvað svar frá manninum sem er yfir lokaverkefnunum.
Daníel greyið er dáldið lítill í sér þar sem hann er að taka jaxl og þess vegna mjög órólegur. Á fimmtudagsnóttina þurfti ég í fyrsta skipti síðan hann fæddist að ganga um gólf með hann heillengi þar til hann sofnaði. Greyið litla.
Annars gengur "mittisminnkunin" ekkert sérstaklega vel fyrir utan mataræðið. Þannig er að einhvernveginn tókst mér að skadda mig eitthvað í liðþófanum í hægra hné og er ég búin að vera hölt og finna til síðustu 6-7 vikur þó þetta fari nú skánandi. Ég er að fara í segulómun á mánudaginn og þá verður hægt að ákveða hvort það verði eitthvða gert í þessu eða hvort ég verð látin skjögra þar til þetta lagast af sjálfu sér. Veit varla hvort er betra eða kannski verra en ef það verður gerð aðgerð þá er þetta bara pínupons, tvö smágöt sitthvoru megin og allt gert í gegnum þau. Ég bara skil ekki hvernig mér tókst að fara að þessu, þetta flokkast víst til íþróttameiðsla og ég held að við vitum öll´að ég er ekki beint neinn íþróttaálfur.
Ég er byrjuð að taka strætó í og úr vinnunni núna. Ég bara hef það ekki í mér að láta Einar og Daníel hanga í meira en hálftíma í bíl á dag bara til að skutla mér og ná í mig. Það sem ég hef hins vegar tekið eftir síðan ég byrjaði að taka bössinn er hvað það er lítið stoppað fyrir manni á gangbrautum. Ég man þegar ég var að labba með Daníel í vagninum í den og þá var maður ekki einu sinni kominn að gangbrautinni þegar bílarnir fóru að hægja á sér. Núna er maður eiginlega í svona chiken við bílstjórana, hvor gefur undan? Hver gefur í? Ætli maður komist lifandi yfir götuna? Í raun er þetta hápunktur lífs míns þessa dagana.

19 september 2006

Verkefnið mitt

Tók þetta úr verkefnalýsingunni sem við skiluðum inn til leiðbeinandans. Þetta hefur tekið einhverjum breytingum eins og búast mátti við. Ég er að vinna í þessu á fullu þessa dagana og þannig verður það næstu 2 mánuðina þar sem verkefnið á að vera 18.000 til 25.000 orð.

Erlenda varslan (custody) er ekki nægilega arðbær og þurfum við að yfirfara gjaldskránna, athuga þjónustustig, yfirfara ferla og finna leiðir til að gera þjónustuna skilvirkari. Annar hluti var að hanna hermilíkan fyrir þjónustuþáttinn (samskiptin) við erlendu aðilana. Þetta er gert til að gera sér betur grein fyrir í hvað tíminn hjá starfsmanni fer þar sem hingað til hefur reynst erfitt að rukka einstaka viðskiptamenn fyrir sértæka þjónustu. Þetta er þjónusta eins og skýrslugerð og sérstök yfirlit og samanburðir t.d. milli markaða.
Við höfum hugsað okkur að taka á þessu vandamáli með flæðisútreikningum og Little´s law þar sem að við teljum að það muni veita LÍ mjög góða heildasýn yfirstarfsemina og kostnaðinn. Með flæðiritum má einnig sjá virðislausar athafnir og tækifæri á breytingum til hagræðingar.

16 september 2006

Gellan bara í gettóinu!

Akkúrat núna er ég mikið að spá í að að eyða út síðustu færslu þar sem ég var að segja frá hugleiðinum mínum um að fara útá bílaplan með olíubrúsa......
Þannig er að þegar ég er að keyra inn í götuna mína núna áðan þá sé ég einn og einn krakka skjótast yfir götuna eins og ketti og bíllinn bakvið mig var líka eitthvað að keyra skringilega. Svo þegar ég stíg útúr bílnum heima þá heyri ég bara gelgjuöskur og hróp og köll. Auðvitað fer ég að tékk á þessu....viti menn bakvið húsið mitt, inní miðju hverfinu stendur bíll í ljósum logum! Við fyrstu sýn þá leit þetta út eins og bíldruslan sem ég var að kvarta undan síðast (YESSSSS!!!!) en því miður var þetta ekki hún.... Allavegana þá var eitthvað kallgrey að reyna að slökkva í þessu með heimilisslökkvitæki en það dugði lítið. Ein stelpa þarna sagði mér að þær hefðu séð eitthvað loga undan bílnum svo allt í einu bara SPRENGING og þá varð hann alelda.
Allavegna þá lét ég þetta ekki stoppa mig í að skreppa út í 10-11 (nammidagur er heilagur) og þegar ég kom til baka þá var löggumann kominn og slökkviliðsgæjar að kæfa eldinn.
Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi heldur betur brotið upp annars mjög döll kvöld hjá flestum hérna í götunni. Bara fínasta fjölskylduskemmtun þar sem heilu stórfjölskyldurnar stóðu út á svölum (ég meðtalin) og ljósablossarnir frá myndavélunum minntu helst á Óskarsverðlaunahátíðina! Sammi á neðri hæðinni klikkaði ekki og tók myndir villt og galið. Hann ætlar síðan að vera svo sætur að senda mér nokkrar og þá skal ég setja þær hérna inn. Sammi var þegar kominn með nokkara góðar fyrirsagnir eins og "Skólinn er byrjaður" eða "Geðveiki í Grafarvogi". Við skulum sjá til hvort blöin ná að gera betur :)
Hverjar ætli séu líkurnar á því að það kvikni í bílhræinu góða á næstu dögum....?


Þessa mynd tók ég í morgun

Annars er ég bara á fullu í lokaverkefninu og get lítið hugsað um annað þessa dagana. Skiladagur er 13 nóv til leiðbeinanda og 20 nóv er lokalokalokaskil. Ég nenni ekki einu sinni að segja ykkur frá því um hvað verkefnið mitt er þar sem ég er í fríi núna, alveg nóg að vera farin að dreyma um þetta dót....

hilsen,
Gettógellna

06 september 2006

Veikindi, bíldráttur og Rockstar!

Hvað skal segja....?
Einar er kominn heim frá Svíþjóð okkur Daníel til mikillar ánægju. En gleðin stoppaði stutt því Einar kom heim aðfaranótt mánudags og á mánudagsmorgunn var Daníel kominn með hita og er búinn að vera veikur síðan :( Það er ekkert leiðinlegra en að hanga heima með veikt barn.. humm jú reyndar einn hlutur; að vera sjálf/ur veik/ur heima með veikt barn er horror!
Annars er maður að bralla ýmislegt. Eitt af verkefnunum mínum sem ég bjó til handa sjálfri mér hérna heima á mánudaginn var að hringja í Reykjavíkurborg og reyna að fá þá til að draga í burtu bíldruslu. Það er semsagt klesstur bíll sem einhver er að geyma hérna á bílastæðinu inní hverfinu og mig langaði að vita hvort ég gæti ekki valdið smá usla og látið draga þetta í burtu bara til að sjá hvort maður geti það :) En nei það er hægara sagt en gert að láta draga svona dót í burtu (dem).
Fyrsta spurning, er draslið á einkalóð eða borgarlandi? Svar: Einkalóð
Næsta spurning, er eitthvað húsfélag sem vill leggja fram kvörtun útaf druslunni? Humm...(þarna hugðist ég nota stöðu mína sem formaður húsfélagsins) Já ég vil leggja fram kvörtun! En nei okkar húsfélg hefur bara rétt til að kvarta undan drasli sem er á bílastæðunum sem tilheyra okkar bílastæði sem er hinmegin við húsið.
Þriðja spurning, stafar hætta af bíldruslunni? Lekur olía eða brotið gler? Svar: Nei
Allavegana niðurstaðan var sú að ef það er olía eða brotið gler þá er hægt að hafa samband við Umhverfissvið og þá er hægt að láta draga þetta í burtu. Ég er í þessum töluðu orðum að gera upp við mig hvort ég eigi að skreppa í smá göngutúr með olíubrúsa.....
Svona í lokin þá er ég að ritskoða dagbókina sem ég fann um daginn og vonandi mun ég nenna að slá eitthvað úr henni inn, okkur öllum til skemmtunar ;)
Jæja Rockstar á eftir (er reyndar búin að kíkja hver fer)popp & kók og nóg af sjónvarpsglápi undir teppi með kallinum.
Góðar stundir....

31 ágúst 2006

Gamlar dagbækur...

Var að finna gamla dagbók frá unglingsárunum. Þar er ég í 10. bekk og ég skrifa m.a. um djammið eftir samræmduprófin þar sem ég er gelgjutoppnum! Vá, þvílíkt rugl en ógeðslega skemmtilegt að lesa þetta. Humm... hver veit nema ég skelli inn hérna nokkrum færslum :)

29 ágúst 2006

Simbi

Hérna í húsinu okkar í Svarthömrunum búa tveir sætir kisar. Annar er útikisi sem heitir Simbi og hinn er innikisi og heitir Líf. Daníel er voðalega hrifin af þeim og þegar þeir verða á vegi okkar þá kemur sko ekkert annað til greina en að stoppa og klappa þeim og strjúka. Simbi er alltaf til í að koma til okkar enda mesti ljúflingur og ótrúlega kelinn. Maður verður samt að passa að Daníel verði ekki of ákafur (sem gerist oft) og rífi í feldinn! Hann kallar alltaf þegar hann sér Simba: Disi! Disi! og bendir með puttanum. Hann minnir mig nú á þegar ég var lítil eða kannski meira á sögurnar sem ég hef heyrt af sjálfri mér. Það var einmitt líka kisi í Háaleitinu þegar ég var lítil sem hét Sveipur.
Hann lét sig sko hafa það að ég var alltaf að kjassast í honum og bera hann frá einum stað á annan og svo til baka. Það eru meira að segja til myndir af honum þar sem ég er búin að troða honum í dúkkukerruna mína og er að keyra hann. Við skulum sjá til hvað Simbi endist lengi, ætli ég þurfi ekki að fara að múta honum með einhverju góðgæti til að hann láti sig ekki hverfa.
Annars held ég að börn hafi mjög gott af því að alast upp í kringum dýr þar sem þau læra að umgangast aðarar lífverur og bera virðingu fyrir þeim. Vonandi fáum við okkur kannski kisu eða eitthvað annað dýr þegar við komum aftur heim frá DK.

26 ágúst 2006

Vinnudjamm

Það er búið að vera nóg að gera síðustu tvo daga í vinnunni þó svo að ég sé í sumarfríi og var ekki beint að vinna.
Á fimmtudaginn fórum við í keilu uppfrá hjá Varnarliðinu. Það var mjög skrítið að fara þarna og maður þurfti að skrá sig í ferðina minnst 10 dögum fyrr til að þeir gætu nú örugglega athugað hvort við værum nokkuð tengd einhverjum hryðjuverkasamtökum! En þetta var skrítin upplifun. Strax við hliðið er þvílíkt eftirlit þó svo að það séu næstum allir farnir þarna af svæðinu. Meðan að einn hermaður kom inní rútuna til að tékka á skilríkjum hjá öllum þá stóð annar fyrir utan með RIFFIL í höndunum og BYSSU í slíðri á beltinu! Kræst, maður er svo óvanur að sjá svona vopn að það fór alveg um mann, ætlaði varla að þora að horfa á hann!
Keilan var fín þar sem your´s truely fór á kostum en maður fann alveg að maður var ekki beint á íslandi. Það er allt örðuvísi þarna, klósettin, borðin.... æ, get ekki alveg lýst þessu en það var allavegana allt mjög amerískt. Við spiluðum þrjá leiki og ég var alveg dauð eftir það þar sem við vorum fimm með einn leik í gangi á tveim brautum þannig að maður var stanslaust að gera. Lokatölur verða sem betur fer ekki gerðar opinberar.
Svo í gær var partý hjá Upplýsingatæknisviði sem mín deild tilheyrir. Jamm, það er mjög skrítið að við heyrum undir þessa deild (tölvunörd og svo við) en ekki undir Eignarstýringarsvið eins og við gerðum áður þar sem við erum að vinna bakvinnsluna fyrir eignarstýringu. Anyways.... Það kom rúta að sækja okkur niður í bæ og leiðinn var heitið uppí Hafravatn þar sem einhver innan bankans á bústað. Það fóru tvær rútur með klukkutíma millibili og ég fór með þeirri seinni. Það var búið að gera þvílíkt flott svæði þarna þar sem búið var að koma fyrir risastóru partytjaldi við vatnið með bekkjum og borðum og svo var Grillvagninn fenginn til að grilla ofan í liðið. Á hliðarlínunni við dansflötinn var langborð þar sem í boði voru skot af ýmsum gerðum, Brezzer 4 tegundir, rautt og hvítt og svo auðvitað bjórkútar.
Þegar við mættum á svæðið þá voru allir þeir sem komu með fyrri rútunni komnir á skallann venga einhvers spurningaleiks sem fól í sér mjög óhóflegt magn af skotum. Brynja og Kristín voru á snepplunum þegar ég kom að þeim og Brynja hélst varla á bekknum! Ég var auðvitað strax mönuð uppí að fá mér skot en ég þorði varla þar sem ég var með galtómann maga! Endaði samt með að ég fékk mér tvö skot og þegar kom síðan að matnum þá gat ég varla haldið á hnífapröunum vegna ölvunar! Eftir tvö skot! Vá hvað maður er orðinn mikill hænuhaus! En allt fór vel og maturinn var frábær. Svo var farið út og dansað og spjallað. Ásdís er komin með eitt prik fyrir meinta morðtilraun þar sem við vorum að dansa og hún lét mig óvart hrasa um tjaldsnúru þannig að ég datt killiflöt beint á bringuna! En ég hélt andlitinu þó ég missti andann þarna í smá stund. Ásdís... 1-0 fyrir þér , ég myndi passa mig á næsta djammi ;)
En þetta var mjög skemmtilegt og margir urðu mjög skrautlegir m.a. stakk einn maður sér til sunds í ísköldu vatninu við mjög misjafnar undirtektir!
Mér finnst alveg nauðsynlegt að halda af og til eitthvað svona starfsmannaparty eða eitthvað annað þannig að fólk fái tækifæri til að hittast og kynnast aðeins betur utan starfsumhverfisins. Hlakka til næst! Ég komst síðan að því að leigubíll neðan úr bæ og hingað heim kostar sléttar 2.000 krónur þannig að annaðhvort þarf ég að fara að semja eitthvað við þessa leigara eða kannski bara kynnast fleira fólki hérna uppí Grafarvogi!

23 ágúst 2006

Er ég kem heim í Búðardal....

Jæja, þá er maður kominn aftur í bæinn úr ferðalagi á Vestfirðina. Maður er úthvíldur eða eins úthvíldur og maður verður eftir 6 tíma akstur í sitthvora áttina. Búðardalslagið var auðvitað sungið hátt og snjallt þegar við renndum þarna í gegn í bæði skiptin. Þetta var ágætis ferðalag og náttúrufegurðin þarna á Vestfjörðum er alveg stórkostleg.
Í dag á hann Einar minn afmæli! Hann er 26 ára húrra, húrra, húrra! Við tókum forskot á sæluna og héldum uppá afmælið um helgina í bústaðnum. Þar fékk Einar frá okkur fjölskyldunni flottann Fender kassagítar. Ég var búin að plana þessa gítargjöf ca. 2 mánuði fram í tímann en þessi hugmynd hefur verið að blunda með mér mun lengur. Mér fannst Einar eiga skilið að fá loksins flotttann gítar þar sem hann á bara einhvern gamlann og lúinn og vegna námsáranna og almennra blankheita höfum við ekki getað endurnýjað hann.Mér datt í hug að fá foreldra okkar beggja með í þetta og svo var ég svo heppinn að kunningi minn ,sem er mjög kunnugur gítörum, hjálpaði mér að finna flottann og góðann gítar. Þegar búið var að versla gítarinn fór ég með hann beinustu leið til tengdó og fékk þau til að taka gripinn í sínum bíl uppí bústað. Svo á laugardagsmorguninn leyfði ég Einari að sofa út eða svona eins lengi og ég hafði þolinmæði til ;)Að lokum fór ég inn til hans þar sem hann var hálfsofandi og rétti honum kort og inní því var blað sem ég var búin að prenta út specifications um gítarinn.... Meðan að Einar var að vakna og átta sig á hvað hann var að lesa fór ég fram þar sem búið var að stilla gítarnum upp í eldhúsinu. Svo allt í einu heyrði maður bara drunur (Einar hafði stokkið fram úr kojunni) og svo kemur Einar inn og veit varla hvað hann á að halda um það fyrr en hann sér gítarinn! "Eruð þið ekki að djóka???" endurtekur hann bara nokkrum sinnum þar sem hann trúir ekki eigin augum! Svo tók hann auðvitað gítarinn úr kassanum og skoðaði í bak og fyrir og fór að prófa hann. Ég veit ekki hvort var skemmtilegra; fyrir hann að fá gítartinn eða mig að sjá hann svona ánægðann!
Hérna er svo mynd af gripnum þó svo að mér finnist hún ekki sýna nógu vel hvað hann er fallegur og nú er ég ekki sérfræðingur.



Fyrir utan þetta fórum við í gönguferðir, reyndum að tína ber en þau voru ekki tilbúin og grilluðum úti marg fleira skemmtilegt. Daníel naut sín mjög vel í sveitinni og lék sér mikið og ærslaðist í grasinu. Jæja segi þetta gott í bili þar sem verið er að kalla á mig, einhver virðist vilja fá hádegismatinn sinn :)

Já og ekki má gleyma að Jóhanna vinkona, Eva gamla bekkjasystir og Ísold litla sæta áttu allar afmæli í gær og þið fáið hérna allar risa knús og kossa frá mér.

16 ágúst 2006

Hallærislegar auglýsingar

Aldrei skal mann undra hversu hörmulega-ömurlega-hallærislegar auglýsingar eru framleiddar og virkilega látnar gossa í loftið. Þetta virðist vera sérstaklega áberandi núna þ.e. að það eru alltof margar lélegar auglýsingar í gangi.

1.ORVILLE. Einhver hallæris DJ sem er einhverra hluta vegna með að poppa örbylgjupopp meðan að hann er að spila. Ekki nóg með það heldur er hann í einni þeirra að éta poppið með kínaprjónum. Er einhver heil brú í þessu? Allavegana þegar ég er að djamma þá vil ég frekar fá mér í glas frekar en að fá mér popp! Glatað

2.ORKUVEITAN. Ég fæ smá ælu uppí mig bara við að hugsa um þennan viðbjóð. "pabbi, hvaðan kemur eiginlega rafmagnið?" Svo byrjar einhver svakalegur söngleikur þar sem aðal pointið er "Svona viljum við hafa það, ekkert vesen og allt í góðu lagi". Ekki misskilja mig, auglýsingin er flott en ég sé bara ekki tilganginn með henni. Afhverju í ósköpunum er Orkuveitan að eyða stórfé í gerð greinilega rándýrar auglýsingar, eins og hún geri ekki nóg af því fyrir. Er það þetta sem síðasta orkugjaldshækkun fór í? Ég geri mér grein fyrir því að nú hefur fólk val um að skipt við OR eða RARIK en kommon!Hérna má nálgast auglýsinguna.

3.KFC. Hrikalegar auglýsingar þar sem mismunandi fólk reynir að stama útúr sér að það viti ekkert betra en KFC."Ég verð a..að fá zingerborgarnn..nn minn í háádeginu á sunnudögum". Annars hvað? Ha? Kræst! Hvernig væri að gera þetta almennilega víst að þeir eru að þessu á annað borð og fá sér nokkuð sem kallast LEIKARAR. Það vill svo til að ég veit að það er til nóg af þeim og örugglega nokkrir sem hafa lausan tíma. Plís ekki vera að fá vini og fjölskyldu til að leika í svona drasli.. það er bara sorglegt.

4.Thule. Þeir hafa nú í gegnum tíðina verið með frábærar auglýsingar og mig verkja alveg við að sjá hvað þeir hafa farið illa að ráði sínu. Að horfa á Pétur Jóhann, sem er svo löngu útbrunninn, vera með eitthvað pínlegt grín vekur með mér löngun til að slökkva á sjónvarpinu. Sorry, ekki að virka.

5. SPARISÓÐIRNIR. Þetta er nýjasta lélega auglýsingin sem ég hef tekið eftir. Veit ekki hvort þetta á að vera artí eða hvað. Þarna eru "ungir námsmenn" að gera gott úr því sem þau hafa. Þarna koma ýmsar nýstárlegar aðferðir fyrir þá sem eru fátækir! Já, það er nefnilega hægt að teikna bindi og kraga á hvítann bol í staðinn fyrir að kaupa hlutina. Það er hægt að poppa í potti og fara svo að horfa á stjörnurnar og síðast en ekki síst er hægt að klippa út sjónvarp úr pappakassa og krota eitthvað framan í sig og gera eitthvað sem ég annað hvort náði ekki eða ég var búin að skipta um stöð. Til að toppa allt þá er þetta í svarthvítu og með svona gamaldags-effect. Ef Sparisjóðirnir hafa ekki efni á að nota nútímatækni við gerð auglýsinga þá þurfa þeir virkilega að fara að taka sig á í samkeppninni.

Og svo eru gamlar kellingar að kæra vegagerðamenn fyrir að vera að vinna berir að ofan og særa blygðunarkennd sína. Ég held ég verði bara að fara að taka mig til og fara að kæra eitthvað af þessu markaðs-auglýsingapakki því þessara auglýsinga láta mann alveg fara hjá sér.

Hérna eru nokkrar auglýsingar sem mér finnast góðar.
Hive - hefur þú frá mörgu að segja?
Colgate - 360 gráður tannburstinn
Dominos
IKEA
Pósturinn - allur pakkinn
Landsbankinn - Við elskum fótbolta
KB - námsmenn
Lottó
Flugger litir


Allavegana gaman að heyra ef einhver hefur einhverju við að bæta annan hvorn listann.

15 ágúst 2006

Ég eeeelska bunnys!

Mér finnst King kong algjört krapp en hún er ágæt þegar Bunnys taka hana!

Rise and shine syster!!!!

Jebb, klukkan er 06:06 og ég er komin á fætur. Ég er reyndar búin að vera vakandi frá 05:38 en ætli það sé ekki "the price you pay" fyrir að Daníel svaf góðann hádegisblund í gær í rúman 2 og hálfann tíma. Það er svona takmarkað hvað maður getur tekið daginn snemma og hef ég núna t.d. lítið annað að gera en að horfa á litla orminn minn rústa íbúðinni á ógnarhraða.

p.s. Ég er víst ekki morgunhressasta manneskja í heimi lengur eins og ég var...

13 ágúst 2006

Fínasta helgi

Á föstudaginn héldum við party og buðum gömlum skólafélögum Einars úr HR. Þetta var mjög fínt og rosalega skemmtilegur hópur sem auðvelt er að falla inní. Partýið var síðan búið kl 2 og allir reknir út, fjórum tímum síðar var ég vöknuð eiturhress með Daníel. EITURHRESSSSSS!
Í gær fengum við svo Atla "litla" frænda hans Einars sem er nú samt að verða stærri en hann btw Einar er 1,87 m! Við grilluðum og tókum svo 40 year old virgin sem er bara geðveikt fyndin mynd. Við vorum í hláturkasti næstum því allann tímann. Eftir myndina vorum við síðan eitthvað að ræða kalla og vaxmeðferðir og hvort að þeir gætu farið í svona brazilian. Þá kom Atli með frábæra setningu: Ef einhver kæmi með vax nálægt pungnum á mér þá myndi sá sami vera skítandi kertum næstu vikurnar!!! Mér finnst þetta alveg brilljant :D Já, það er gaman að fylgjast með þessum litla frænda hans Einars þroskast og verða fullorðinn. Ég man ennþá eftir honum þegar hann var 11 ára tittur (fyrir rúmum 6 árum) að vara mig við að fara ekki illa með frænda hans annars væri honum að mæta ;-)
Ég furða mig stundum ennþá á því hvernig ég hélt út þarna fyrstu vikurnar með Einari. Atli alltaf límdur við okkur eins og frímerki og Alda að springa af öfund þar sem að hún var ekki lengur "eina stelpan" sem Einar veitti athygli :) Ég verð að viðurkenna að það tók sinn tíma að vinna traust Atla og við Alda tókum hvort aðra í sátt eftir einhvern tíma enda mjög góð vinkona mín í dag. En allt var þetta nú þess virði. Úff, komin þokkalega út fyrir efnið!
Back to basics. Í dag vorum við síðan bara í rólegheitum að dúlla okkur heima, fyrir utan uppvasks-maraþonið sem tók alveg hátt í 40 mínútur. Við vorum semsagt ekki búin að vaska upp síðan fyrir partyið og hvert eitt og einasta glas heimilisins var skítugt! Það verður góður dagur þegar við loksins ákveðum að fá okkur uppþvottavél.
Ég ætlaði líka að vera svona súperdugleg í dag og fara að hjóla sem ég og gerði. Nema hvað að í miðjum hjólatúrnum þá fer ég að heyra eitthvað svona hljóð eins og það sé einhver fluga að koma öðru hvoru að mér. Svo stoppa ég og þá HEYRI ég að það er sprungið á dekkinu og það var ekkert smá gat! Hljóðið sem ég heyrði meðan eg var að hjóla var þegar gatið fór fram hjá bremsunni svona fff....ffff...ffff...fff. Þannig að auðvitað þurfti ég að labba alla leiðina til baka og teyma hjólið og það tók sko alveg hátt í hálftíma! En ég fékk samt ágætis æfingu útúr þessu og bíð spennt eftir harðsperrunum á morgun.
Ég veit að þetta er svakalega sundurslitinn texti en ég er að fara að lúlla núna og nenni ómögulega að laga hann samkvæmt aðferðafræði reglum.
Nighty-night...