10 mars 2007

Þá er fysta vikan í Átaksnámskeiðinu liðin og ég er búin að mæta á allar æfingar auk einnar auka í dag bara í tækjasalinn. Ég er að deeeeeeeeeeeyyyyyyyjaaaaaa! Ég er svo þreytt í kroppnum og sérstaklega í handleggsvöðvunum og bossanum. Á morgun er frí og ég ætla að reyna að hreyfa mig sem minnst og helst fara í sund og heita pottinn.
Á námskeiðinu er stelpa sem ég kannaðist við úr MH, Harpa, og við erum búnar að para okkur saman. Mjög gott að hafa einhvern félaga til að vera í þessu með manni. En allavegana árangurinn lætur ekki á sér standa og þolið er allt að koma til og viktin er svei mér þá að lækka töluna þó svo að ég viti að þetta er mestmegnis bjúgur sem er að fara, samt hvetjandi.

Ég heyrði aðeins í Ebbu um daginn og hún og Himmi eru að koma sér fyrir í rólegheitunum í Baunalandinu. Mér leist nú ekkert á blikuna þegar Ebba sagðist vera að fara á dönsku-námskeið í götunni rétt hjá Ungdomshuset en hún byrjar ekki alveg strax og lætin virðast sem betur fer vera gengin yfir. Vona að allt fari vel hjá þeim og vonandi getum við heimsótt þau bráðlega. Annars er allt á fullu í ferðadeildinni hérna á þessu heimil. Við erum búin að ákveða að fara til Parísar um páskana fyrir flugmiðana sem fylgdu með bílnum. Hrefna og Egill ætla að taka Daníel að sér og við Einar ætlum að eiga rómantíska langa helgi saman. Ég get bara varla beðið!

Snorri "litli" frændi minn er að fara að feramast í vor! Þetta finnst mér alveg ótrúlegt. Hann er jafngamall núna og ég var þegar hann fæddist... how fast they grow! Ég er að velt því fyrir mér hvað væri gaman að gefa honum í fermingagjöf en aldrei þessu vant þá stend ég á gati. Snorri spilar á píanó og spilar badmington en dettur ekkert í hug sem tengist þessu. Gefur einhver útivistardót ennþá? humm... það sem ég er spenntust fyrir er að gefa honum einhverja upplifun eða reynslu eins og gjafakort í einhverja ferð eða námskeið. Ég er alveg tóm. Kannast einhver við þetta?

04 mars 2007

Það byrjar á morgun!

Ég er búin að sjá það að ég þarf aðeins meira aðhald í líkamsræktarmálunum en ég gefst ekki upp og þess vegna er ég búin að skrá mig á Átaksnámskeið hjá World Class sem byrjar á morgun! Námskeiðið byrjar semsagt á morgun og tímar eru þrisvar í viku. Þetta er alveg allur pakkinn; líkamsrækt, fræðsla, mælingar og matardagbækur. Í beinu sambandi við þetta þá er ég búin að fjárfesta í nýrri grænmetisréttabók og er planið að útbúa nokkrar máltíðir í hverri viku sem samanstanda eingöngu úr grænmeti og þvíumlíkum mat.
Maður getur ekki annað en vonað að þetta verði skemmtilegt námskeið með fínum stelpum en hvort sem það nú verður þá efast ég ekki um að þetta mun bera tilætlaðann árangur. Ég hef einu sinni áður farið á svona námskeið ( í gamla daga) og þá fórum við Tulla saman. Ég komst alveg þvílíkt í gang við þetta námskeið og gat varla hugsað mér að fara ekki í líkamsrækt á hverjum degi en ég viðurkenni alveg að þetta fór dáldið útí öfgarna á þeim tíma. Vonandi verður þetta mun þetta vekja áhuga en allt er gott í hófi.

Í gær áttum við Einar 7 ára afmæli og við skelltum Daníel í næturpössun til Hrefnu og Egils og fórum út að borða og bíó. Við fórum á IndanMango sem er nýlegur staður rétt fyrir ofan Laugarveginn. Við vorum spennt að prófa nýjan stað með öðruvísi áherslum en maður er vanur. Staðurinn er mjög lítill og kósí og ég held að það komist ekki fleiri en ca.25 manns þarna í einu. Maturinn var ágætur og þá kannski sérstaklega miðað við verðið sem var í lægri kanntinum. Það vantaði hins vegar aðeins uppá þjónustuna eða öllu heldur samræminguna sem sást greinilega þegar einn þjónn rakst á annann og annar jógúrtdrykkurinn okkar fór beint í gólfið. Næst tókum við eftir að fólkið á næsta borði fékk vitlausann rétt afgreiddann, þjónarnir voru eitthvað að þræta hver hefði pantað hvaða rétt og svo var borinn fram fyrir okkur aðalréttur sem annað fólk átti að fá (við áttum eftir að fá forréttinn). En ég var samt það ánægð að ég ætla að fara þangað aftur. Eftir matinn kíktum við í Keiluhöllina í þykhokkí. Mér til mikillar undrunar vann Einar 2 af 3 leikjum! hehe ég er kannski dáldið góð með mig í þythokkíi ;)
Eftir þetta var ferðinni heitið í Sambíóin í Álfabakka þar sem Einar var búin að panta fyrir okkur sæti í Lúxussalinn. Það var mjög gaman að prófa loksins lúxussalinn og myndin Music an lyrics var bara mjög skemmtileg og stóðst fyllilega væntingar. Við fórum síðan bara beint heim og fengum að sofa aðeins út í morgun. Ég er eiginlega búin að ákveða það að það er alveg nauðsynlegt að skreppa svona saman tvö út ein a.m.k. einu sinni í mánuði, algjör draumur!

26 febrúar 2007

Ég vil þín njóta Toyota!

Hérna má líta dýrðina sem við Einar fjárfestum í í gær nema það að okkar er djúp vínrauður en ég fann enga þannig mynd og okkar er dottinn útaf söluskráinni. Við fórum semsagt á tilboðsdaga hjá Toyota um helgina og féllum alveg fyrir þessum Toyota Corolla Terra árgerð 2005. Það er alveg frábær tilfinning að keyra svona nýjann og fínann bíl þó svo að maður eigi nú minnst í honum.
Nú er eina vandamálið að ákveða hvert við eigum að fara fyrir farseðlana 2 sem fylgdu með í kaupunum... Einhverjar hugmyndir?

p.s. Einar er að smíða myndasíðu fyrir mig sem kemur í gagnið hérna vonandi fljótlega.

22 febrúar 2007

Endurnýjun

Það hlaut að koma að því að Blámann (eins og ég hugsa stundum um hann)myndi þurfa að kveðja þennan heim, en þó ekki eins snemma og raun ber vitni. Bíllinn var semsagt úrskuraðar "ekkiþessvirðiaðgeraviðhanntilaðstandastskoðun" á mánudaginn síðasta. Partar í bílinn myndu kosta tæp 100þ + vinna! Sem betur fer erum við í viðskiptum við svo svakalega gott verkstæði þannig að þeir gerðu okkur grein fyrir gangi mála áður en þeir fóru að ráðast í viðgerðir, settu meira að segja upp kostnaðinn og sögðu okkur svo blíðlega sorgarfréttirnar.
Það er því greinilega kominn tími á annan bíl því bíllaus getum við ekki verið. Nú er bara spurningin hvernig maður ætti að standa að þessu þar sem við verðum víst bara á landinu í rétt rúma 10 mánuði til viðbótar... Eftir miklar vangaveltur þá höfum við komist að því að það er best að fjárfesta í nýlegum bíl með góðu láni þannig að við greiðum bara afborganir og þufum í staðinn ekki að hafa áhyggjur af viðgerðum. Síðan verður bílinn (vonandi) bara seldur um leið og við förum af landinu.

Nú er bara spurning hvernig bíl maður ætti að fjárfesta í? Einhverjar hugmyndir?

11 febrúar 2007

Fyrr má nú rota...

Ég er ein af þeim sem vill hafa rólegt umhverfi í því samfélagi sem ég bý í. Þetta þýðir að ég kýs að lágmarka áreiti í kringum mig eins mikið og ég get. Það sem mér finnst standa helst uppúr í áreiti eru auglýsingar: fáðu þér svona, alvöru konur nota X og þar fram eftir götunum. Mér finnst þetta algjörlega óþolandi. En það má ekki misskilja mig, auglýsingar eru vissulega gagnlegar því þarna er verið að láta neytandann vita af valmöguleikum sínum. En þegar maður getur varla litið útum gluggann án þess að verða fórnarlamb einhverskonar markaðssetningar þá finnst mér þetta verið komið útí hróa. BTW fyrir utan húsið stendur akkúart bíll með risaauglýsingu sem á stendur klám.is!
Sem betur fer erum við þó ekki orðin eins slæm í þessu og flest lönd í kringum okkur. Mér fannst stigið stórt skref niður á við þegar strætóskýlin í Reykjavík voru bókstaflega seld á einu bretti til einkafyrirtækis sem setti upp núverandi skýli með risastórum auglýsingum. Mér finnst þetta ljótt og ég myndi miklu frekar kjósa að vera laus við þessa sjónmengun. Eins vil ég geta stjórnað því hvenær er verið að koma skilaboðum til mín, þegar ég er að horfa á sjónvarpið t.d. þá getur maður alltaf bara slökkt þegar maður er búinn að fá nóg eða í það minnsta skipt um stöð. Þegar þú ert úti á götu þá kemstu ekki hjá því að líta í kringum þig þó það sé ekki nema bara til að verða ekki undir næsta bíl!
Það sem fékk mig hinsvegar til að skrifa þennan pistil var tónlistarmynband sem ég rakst á áðan. Þar var á ferðinni Black eyed peas með einhvern nýasta smell frá sér, ekkert að því. Nema þegar ég horfi aðeins betur á þetta þá sé ég að þetta myndband er ekkert annað en ein stór auglýsing! Ég veit að mynbönd sem þessi eru oft notuð sem auglýsingar en þá er það yfirleitt eitthvða svona vægt sem fellur svona meira inní umhverfið. Svo var ekki í þessu tilviki. Allt í einu tekur aðalgellan upp eitthvað tæki í miðri dansrútínu og er eitthvað að dást að þessu. Ég kíki betur og sé að það stendur greinilega Samsung á þessu. Hérna er svo varan sem verið var að auglýsa
Mér finnst þetta algjörlega glatað svo ég tali nú bara ekki um hversu hallærislegt þetta er yfir höfuð inní þessu eða bara hvaða myndbandi sem er. Hvernig í ósköpunum er hægt að tengja mp3 spilara inní þetta dæmi. Veit ekki. Ég ætla síðan ekki einu sinni að byrja hvaða áhrif allur þessi auglýsingaráróður hefur á mann. Heimur versnandi fer, ekki síst ef álverið fær að stækka í Straumsvík en það er efni í annan pistil.
Ætli við munum ekki enda eins og í bókinni Lovestar eftir Andra Snæ þar sem fólk var látið vinna fyrir skuldum með því að heilaþvo vini, ættingja og fólk útá götu með því að þylja upp einhvern auglýsingatexta sem var sendur í þau. Úff... hlakka til...

06 febrúar 2007

Bogamenn eru fljótfærnir


Þetta eru sko orð að sönnu! Ég hef alltaf verið talin fljótfær og skotið fyrst en spurt svo og þetta á sko ekki bara við um mig því Lára vinkona er líka svona og hún er líka bogamaður. Ég segi stundum hluti án umhugsunar og ef maður bætir því ofan á mína óbilandi hreinskilni þá gæti ég svo sem alveg skilið að sumir myndu kjósa að ég myndi þegja meira. Það er kannski bara fínt að geta skellt skuldinni á stjörnumerkið sem maður er fæddur í?
Þetta á samt við fleiri hluti í lífi mínu. Ef mér dettur eitthvað í hug þá vil ég helst gera það strax og taka það með tropmi. T.d. húsgagnainnkaup, lífsháttarbreytingar eða breytingar á heimilinu og önnur verkefni. Það má aldrei neitt bíða, enda yrði sami hluturinn ekki eins spennandi ef maður þyrfti alltaf að bíða heillengi eftir honum og spá endalaust og spekúlera í áhrif hans og svoleiðis, það er bara seinnatíma vandamál (verkefni) og maður tekur á því þá. Ekki má heldur gleyma því hversu bjarsýn ég er alltaf á gott gengi í þessum verkefnum og iðulega reikna ég með minni tíma/fyrirhöfn/peningum en raunin síðan verður.
Það sem kemur síðan í framhaldi af öllum mínum hugdettum og framkvæmdargleði er að fá samþykki Einars. Hann er nú yfirleitt fljótur að gefa undan en stundum þarf hann að fá smá sannfæringu, ætli hann nenni nokkuð að mótmæla mér ;)
Það er svo sem ekkert að þessu, ég allavegana veit af þessu en þetta hefur aldrei komið mér neitt þannig í koll þannig að ég hafi þurft að endurhugsa gerðir mína eða gefið mér ástæðu til að breyta mínu ágæta fyrikomulagi. Annars held ég að ég myndi ekki koma miklu í verk ef ég myndi fara aðra leið.

Jæja nóg komið af pælingum. Helgin hjá okkur var alveg frábær þar sem við fórum í kaffiboði til Friðriks, Unnar og Tómasar á laugardaginn. Tómas var dálitla stund að sætta sig við að Daníel væri kominn í heimsókn og ætlaði virkilega að leika sér með dótið hans... En eftir að Daníel fékk jarðaberjasvala og sykursjokk út frá því þá voru þeir orðnir mestu mátar og sátu glaðir uppí sófa að horfa á Stubbana og leika sér og sprella. Beint eftir kaffiboðið fórum við í matarboð til Völu, Hjalta og Jökuls. Jökull er alveg ófeiminn og tók Daníel vel og var duglegur að sýna honum allt dótið sitt. Mest gaman var hjá strákunum þegar þeir fengu að vera inní svefnherbergi að hoppa á dýnu og ekki má gleyma vasaljósaleiknum skemmtilega sem Hjalti kynnti fyrir þeim.
Mér tókst hins vegar næstum því að höfðukúpubrjóta mig með því að ganga á hillu í barnaherberginu sem hafði verið máluð í felulit, gangandi vegfarendum til gleði. Hillan hafði semsagt verið máluð blá í sama lit og ský sem var á veggnum þar sem hillan hékk, auglóslega gert með ásetningi. Ég var hins vegar fljót að jafna mig enda pizzur með hvítri sósu (já hvítri) á boðstólnum!
Þetta var hin besta helgi í alla staði. Nú fer að styttast í að Ebba og Himmi fara til DK þannig að ég mátti til með að bjóða þeim í mat á miðvikudaginn svona til að fá að sjá þau einu sinni áður en þau sleppa af skerinu. Reikna með að það verði dýrindislæri í matinn enda alltof langt síðan the "grillmaster" hefur fengið að spreyta sig á gasgrillinu.

Jæja nóg í bili.

01 febrúar 2007

Áfram Karen!

Jæja, mætti í ræktina í gær sem er ekki frásögufærandi nema að ég sá þarna svona gellu sem ég veit ekki hvort var að mæta þarna til að horfa á sjálfa sig í spegli eða til að æfa. Þið þekkið típuna. Máluð, með eyrnalokka og hárið sett upp á hlaupabrettinu alltaf að kíkja í spegilinn hvernig hún væri nú að taka sig út þarna :) Ég veit ekki með ykkur en persónulega finnst mér bara ógeðslegt að vera máluð og svitna síðan ofan í það og hvað þá að vera með skartgripi á sér! En ég get ekki neitað því að ég hafði gaman af því að horfa á hana þar sem hún var á hlaupabrettinu fyrir framan mig. Ég er svo að fara að mæta aftur í dag til að hitta einhvern leiðbeinanda sem ætlar að fara með mér yfir tækin og búa til prógramm fyrir mig, þýðir ekkert annað annars mun á aldrei fara lengra en á hlaupabrettið og kannski í mesta lagi stígavélina.
Til að ég haldi áfram með heilsuæðið hérna þá er búið að skipta út öllu pasta hérna út fyrir lífrænt speltpasta og hrísgrjón úr fyrir brún hrísgrjón (nema í neyðartilvikum þar sem það tekur 45 mín að sjóða brún en bara 15 mín að sjóða hvít). Ég er byrjuð aftur að drekka de-tox teið mitt og ætla að fara aftur að bæta spíru-duftinu útí matinn. Þess á milli mun ég heilaþvo sjálfa mig t.d. með því að skrifa svona blogg ;)
Annars er Daníel hress og Lára er farin aftur út til DK til að brillera í arkitekta-náminu. Hennar verður sárt saknað en vonandi kíkir hún á klakann aftur bráðlega. Jæja best að fara að borga eitthvað af þessum reikningum, jóla-vísað er komið og núna skil ég afhverju við erum búin að safna svona mikið af vildarpunktum!

29 janúar 2007

Heima í dag

Ég er eitthvað svo óheyrilega andlaus þessa dagana. Daníel er búinn að vera veikur um helgina vegna bólusetningar sem hann fékk í 18 mánaða skoðuninni. Hann er búinn að vera mikið á höndum og þá litið út eins og hann væri við það að missa meðvitund á köflum og þess á milli hefur hann verið að hlaupa útum allt voða hress. Skrítið. Ég get nú ekki neitað því að það er nú ansi notalegt að hann vill vera svona mikið hjá manni þegar honum líður illa, manni finnst maður dáldið merkilegur og ómissandi. Auðvitað vildi ég frekar að hann væri frískur en það er gott að finna að hann þarf á manni að halda. Í dag er semsagt þriðji dagurinn sem hann er með hita en hefur engin önnur einkenni. Ætla að bíða til hádegis og hringja síðan í ungbarnaverndina því það er talað um að þetta ástand eigi ekki að vera í lengur en sólarhring. Okkur mun samt ekki leiðast í dag þar sem þetta er ekki svona týpísk veikindi þar sem börnin eru bara hreint út sagt leiðinleg og mjög þreytandi að vera með þau heima. Við erum með ýmislegt planað eins og að taka til hérna og Daníel er alveg einstaklega duglegur í að hjálpa. Í gær fórum við t.d. yfir allar flöskur og dósir og Daníel hjálpaði til samviskusamlega við að flokka og að lokum hjálpaði hann mér meira að segja að halda á þessu útí bíl. Svona er þessi pjakkur duglegur. p.s. Daníel tekst samt að fríkka með hverjum degi, meira að segja þó hann sé veikur ;-)

24 janúar 2007

Í fyrsta skipti - í hvert skipti!

Það hlaut að koma að því... ég hef verið dáldið á móti svonalöguðu, veit ekki afhverju, en nú er þetta orðið að raunveruleika á þessu heimili. Já, það er rétt. Það er komin uppþvottavél inní eldhús! Ég veit ekki afhverju ég hef verið dáldið skeptísk útí uppþvottavélar, ætli það sé ekki bara af því að ég er vön því að vaska... Einar er vanur að vaska upp. Veit ekki hvaða bull þetta er í manni, það er nú svo sem ekkert virðingarvert við að standa á hverjum degi fyrir framan vaskinn og skrúbba leirtau. Kannski hefur mér fundist ég vera svona alvöru húsmóðir að standa sveitt við uppvask á hverjum degi, hver veit. Reyndar finnst mér uppvask með skárri heimilisverkum sem fyrirfinnast og reyndar getur stundum verið ágætt að vaska upp, gefur manni smá tóm til að hugsa, eins og ég hef nú alltaf nóg að hugsa um ;-). En það sem hefur kannski helst farið í mig er að uppvask er ansi tímafrekt og þetta er tími sem mig langar miklu frekar til að eyða í eitthvað skemmtilegt t.d. leika við Daníel. Vélin var allavegana keypt á fimmtudaginn en við vorum í smávægilegum vandræðum með tenginguna í niðurfallið. Við vorum spennt fyrir að prófa vélina og höfðum sérstaklega ekki vaskað upp þannig að það var dáldið í vasknum. Þegar kom í ljós að við gætum ekki komið þessu saman sama dag þá stakk Einar uppá því að við myndum taka uppvaskið í síðasta skiptið uppá gamla mátann. Ég hélt nú ekki! That time has passed sagði ég og þess vegna fékk uppvaskið að liggja áfram í vasknum. Við tengdum svo vélina í dag og auðvitað var keypt Finish uppþvottaefni og fyrsti þvotturinn settur í gang enda veitti ekki af þar sem báðir vaskarnir voru orðnir stútfullir og grunsamleg lykt farin að hreiðra um sig. Meðan að vélin púlaði þá sátum við Einar í makindum uppí sófa að lesa og önnur eins kósýheit. Bæði uppþvottavélin og þvottaduftið (kraftkúlutæknin sko!) stóðust prófið með prýði og allt kom glansandi hreint út, miklu flottara en þegar maður vaskar upp sjálfur og þurrkar. Ég hef því skipt algjörlega um skoðun á þessum blessuðum vélum og er þetta nú orðið að uppáhalds heimilistækinu mínu! Svei mér þá ef ég verð ekki bara að gefa henni nafn, hehe!!

19 janúar 2007

Sólarlandaferð!


Ég var að enda við að panta dýrindis sólarlandaferð til Golden Sands í Búlgaríu. Ég er ekkert smá ánægð og spennt. Mér fannst við ekki geta annað enn að skella okkur í almennilega ferð núna í sumar þar sem við erum búnir að vera fátækir námsmenn svo lengi og erum á leið í þann pakka aftur í haust. Ég get varla beðið eftir að sjá Daníel vera að sprella í sandinum og það verður gott að komast í burtu aðeins. Við förum semsagt 2.júlí og verðum í 2 vikur. Jibbbííííí!

16 janúar 2007

It will all come with the cold water...

Dagarnir líða og janúar er nú þegar hálfnaður! Ótrúlegt og maður veit ekkert í hvað tíminn fer.
Steina eignaðist litla bjútíbollu í gær. Daman mætti 13:18 í heiminn og mældist 17 merkur og 51 cm. Innilega til hamingju Steina, Tóti og Ísold með nýjustu viðbótina í fjölskylduna.
Útskriftin mín er næsta laugardag og ég er alveg á mörkunum með að nenna að mæta á sjálfa athöfnina. Málið er að maður á að vera mættur kl. 10 og athöfnin á ekki að byrja fyrr en kl 13!!! Þetta er ekki djók. Í póstinum er okkur meira að segja bent á að taka með okkur nesti! Og hvað á síðan að gera í 3 tíma uppí Háskólabíói? Nei, við erum ekki að fara að kíkja á góða ræmu heldur erum við að fara í myndatöku og svo á að fara yfir "praktísk" atriði. Þetta á semsagt að taka 3 tíma! ÓMG! Svo er athöfnin sjálf 2 tímar þannig að við erum að tala um 5 tíma í hangs í Háskólabíói. Ég hef satt að segja ekki hugsað mér að mæta fyrr en svona kannski 12. Hef ekkert að gera í þessar myndatökur þar sem ég þekki aðeins örfáa sem eru að úskrifast með mér. Sjáum til, kannski bugast ég og mæti kl. 10.
Vala ætlar að vera svo góð að hjálpa mér kvöldið áður með veitingarnar því það verður greinilega ekki tími um morguninn ;-) Það verður fínt að slá botinum í þetta eða hitting the bottom in it eins og hægt er að segja líka. Ég er með eitthvað æði fyrir að setja íslenska málshætti yfir á ensku.
Jæja ég er að spá í að skella mér í náttgallan og skríða uppí rúm að lesa eitthvað skemmtilegt. Það er það besta sem ég get ímyndað mér þegar það er svona kalt veður og norðanátt. Ég er reyndar búin að finna eitt neikvætt við snjóinn núna sem ég er tilbúin að viðurkenna. Það er að mér finnst bara ogguponsulítið pirrandi þegar ég er í lágum stígvélum og pilsi og stíg óvart í djúpann snjó þanngi að það hellist gomma af ísköldum snjó beint á og í gegnum nælonsokkabuxurnar. Þetta sama atriði er ennþá meira pirrandi þegar maður er á hraðferð og er að draga Daníel á snjóþotu á eftir sér útí búð! Nóg í bili, góðar stundir!


13 janúar 2007

Snjór, já takk!

Ohhhh... mér finnst svo æðislegt þegar það er svona mikill snjór! Ég bókstaflega eeeeelska snjó! Það verður allt svo hreint og ferskt og hljóðlátt og síðast en ekki síst... stílhreint! Ég bara skil ekki fólk sem kann ekki að meta góða snjókomu og er að pirra sig yfir að umferðin gangi svo hægt. Mér finnst svo kósí að keyra bíl í miklum snjó. Þá er svo kósí í hlýjum bíl og fullt af snjó utan á rúðunum og ég eins og allir aðrir neyðist til að keyra hægt og rólega. Mér finnst þetta frábært, bara eins og góður skammtur af róandi fyrir samfélagið beint frá móðir náttúru og ekki veitir af! Svo er þetta auðvitað alveg frábært fyrir krakkana sem hlaupa út með snjóþotur og fara í snjókast og svo eru auðvitað aðrir sem eru yngri og eru kannski bara að sjá snjó í fyrsta skipti (svo þau muni) og geta bara ekki hætt að undrast á þessu hvíta efni sem þekur göturnar.
Það eru nú ekki allri sammála mér um þessa snjódýrkun t.d. Erna og Tedda vinkonur úr vinnunni. Ég get að vísu skilið þeirra snjónarmið að vissu leyti þar sem þær eru að norðan og eru vanar að vera fenntar inni næstum því á hverjum vetri.
Jæja ég vona bara að það snjói aðeins meira í dag og á morgun og hinn og hinn....

08 janúar 2007

Veik aftur...

Ég játaði mig sigraða í dag og staulaðist heim úr vinnunni áðan með gæsahúð dauðans og hor í nös. Ég er semsat veik aftur, var veik síðast í desember nota bene þannig að það er ekki einu sinni mánuður á milli veikinda hjá mér. Ég gjörsamlega þoli ekki að vera heima veik, finnst það alveg óheyrilega leiðinlegt að hanga ein í tómri íbúð. En ég er búin að koma mér upp smá veikindabæli hérna í hjónarúminu með allt sem ég þyrfti mögulega að nota til að ég þurfi alveg örugglega ekki að stíga framúr og undan heitri sænginni.
  • auka teppi
  • dagblöð, tímarit bækur
  • auka peysa
  • ávaxtasafi
  • heitt vatn með hunangi og sítrónu
  • strepsils
  • snýtipappír
  • símar
  • tölva
Sjáum til hvað ég endist lengi hérna uppí rúmi áður en ég freistast til að fara framúr og gera eitthvað gagnlegt...

03 janúar 2007



GLEÐILEGT NÝTT ÁR
2007!!!
Þá er nýtt ár loksins runnið upp enda það gamla orðið heldur betur tuskulegt. Það er margt spennandi á dagskrá á þessu ári og má þar helst nefna nýtt krílí hjá Steinu sem er áætlað þann 6.janúar, útskrift hjá mér þann 20. janúar og svo er það auðvitað langþráði draumurinn um nám og flutning til Danmerkur sem verður kannski efst á baugi.
Nýju ári fylgja auðvitað ný áramótaheit en þar sem ég er alltaf litli rebbellinn þá neita ég að strengja ármótaheit heldur setti ég mér raunsæ markmið seint, mjög seint (27.des), á síðasta ári. Þessi markmið eru ekki flókin og geranleg held ég bara.
Það er helst þetta:
  • Drekka a.m.k. 1 fullt vatnsglas á dag! Þeir sem þekkja mig vita hvað ég þoli ekki að drekka vatn, verður bara bumbult. En ég er búin að standa mig í þessu og í gær voru þau meira að segja tvö!
  • Taka inn fjölvítamín á hverjum degi. Þetta er í þeim tilgangi að vera hressari og orkumeiri og ég hef bara misst út einn dag en þá bætti ég það upp með því að taka Hárkúr, nokkurnveginn það sama - vítmaín eru vítamín!
  • Fara í líkamsrækt og setja það inní vikuplanið hjá okkur Einari. Ég held að þetta muni virka ef það er í planinu. En takið eftir að ég segi mæta í líkamsrækt en ekki missa eitthvað x bla bla bla. Ég hef reynt það áður og það hefur aldrei virkað, núna ný nálgun! Ég er allavegana búin að fjárfest í 3gja mánaða korti, raunsæ!
  • Borða minna hvítt hveiti og prófa mig áfram í spelti. Ath. minna er lykilorð hérna. Þetta er búið að ganga ágætlega og það er nú enginn svakalegur munur á speltpasta og venjulega nema kannski helst áferðin og svoleiðis.
  • Minnka sælgætisát. Þetta helst í hendur með líkamsræktinni eiginlega. Ég hef það allavegana frá fyrri reynslu að þegar ég hef mætt í líkamsrætk þá hef ég ekki tímt að eyðileggja árangurinn eftirá með nammi. Ef ég mæti hins vegar ekki í ræktina... þá hefur maður svo sem engu að tapa ;-)
  • Hérna kemur síðasta og er uppáhaldið mitt. Að hugsa betur um sjálfa mig! Já ég er búin að strita á síðasta ári og núna er kominn tími til að verðlauna mig. Þetta felur í sér að leyfa sér að fara í langt og gott bað á kvöldin, láta Einar nudda mig, fara ljós stöku sinnum og kaupa mér fallegar spennur í hárið, föt eða snyrtidót þegar mér dettur það í hug.´

Svona eftir á að hyggja þá er þetta nú bara eins og sniðið að þessum vinsælustu áramótaheitum í gegnum aldirnar. Væri gaman að heyra ef einhver annar hefur sett sér markmið á nýju ári.

27 desember 2006

Ristað brauð?

Þegar ég hugsa um ristað brauð þá hugsa ég um smjör og ost og í mesta lagi sultu eða marmelaði. Svo rakst ég á þetta! Hérna eru útlitsaðar 300 leiðir til að útfæra ristað brauð. Ég setti hérna inn fyrstu 20, afganginn má sjá hérna Svo skrítið hvað fólki dettur í hug.

Topped with butter (or a butter substitute)
Topped with your favorite jam
Topped with peanut butter
Topped with butter and sprinkled with a 30/70 mixture of cinnamon and sugar
Broken into bite sized pieces, placed in a bowl and topped with milk and sugar (known as milk toast)
Topped with butter and honey (or just honey)
Topped with gravy (as in
Chipped Beef On Toast)
Topped with
Vegemite (A thick brown paste made mostly from yeast extract, most commonly used in Australia by spreading thinly on toast or sandwiches.) Breakfast lover J.G. wrote us to say, "Butter or a substitute must be used with Vegemite in nearly every case. It's too salty otherwise. My wife, who had no idea what the stuff was, thought it vile when she first tried it. After I gave her a slice of fresh bread well buttered and spread with a little Vegemite, she was hooked!"
Topped with
Marmite - the U.K. equivalent of Vegemite. Richard of Waipukurau, New Zealand wrote in to say, "I prefer my toast spread with Marmite (New Zealand Marmite, not UK Marmite. The UK version is much sweeter). On top of that I like several slices of avocado. On top of the avocado I like several slices of tomato. Freshly ground black pepper tops it off. Variations include an addition of grilled bacon or ham." Thanks Richard. Your comments on Marmite were dyno-mite!
Sprinkled with salt (an unusual variation recently brought to public attention in England by "Marco" a contestant on their version of the "Big Brother" reality television program)
Topped with a combination of cream cheese and your favorite jam
Topped with pineapple-flavored cream cheese and banana slices
Topped with
Nutella, a creamy, chocolaty hazelnut spread sold in most grocery stores
Topped with honey butter (either store-bought or
homemade)
Topped with a combination of mashed banana and chopped almonds (see
recipe)
Topped with butter and dipped into hot cocoa
Topped with butter and dipped into coffee
Topped with
Marshmallow Fluff of similar marshmallow spread (also try in combination with melted chocolate or grated chocolate for "s'mores toast")
Topped with cinnamon raisin spread (see
recipe)
Topped with butter and slices tomatoes

25 desember 2006

Jólabloggið

Þá er aðfangadagurinn liðinn með öllu sínu pakkaflóði og upp er runninn hinn ljúfi jóladagur. Enn eitt metið var slegið í ár í pakkafjölda undir jólatrénu og má það að mestu leyti rekja til Daníels.
Við fengum líka heilann helling af jólakortum og ég hafði nánast meira gaman af því að opna og lesa þau en að fylgjast með hverjum pakkanum á fætur öðrum rifnum upp. Mér fannst sérstaklega gaman hvað það voru mörg kort með myndum og einnig voru mörg handgerð. Maður fær alltaf nett samviskubit þegar maður fær kort frá einhverjum sem maður sendi ekki sjálfur. En ef maður hugsar þetta öfugt þá hugsa ég aldrei hvort þeir sem ég sendi, sendi mér líka. Markmiðið með jólakortum er nú einu sinni að láta í ljós væntumþykju og hlýhug ásamt óskum um gleðilega hátíð. Ég vil nú samt óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Jóladagur er í mínum huga alltaf dagur aflöppunar og leti. Daníel var svo góður að lúlla til kl 8 í morgun! Þetta er besta jólagjöfin sem hann hefur getað gefið okkur. Svo erum við bara búin að hanga í leti og leika okkur af nýja dótinu hans Daníels. Veðrir er líka yndislegt þannig að ætli við förum ekki út í göngutúr á eftir og kíkjum svo kannski á jólapúslið. Í kvöld er okkur svo boðið til tengdó á Háaleitisbrautina. Það verður örugglega mjög gaman og er ég nokkuð viss um að Daníel mun vera í aðalhlutverki og þá sérstaklega hjá Öldu frænku sinni.

Jæja þetta er nóg í bili. Ætli ég þufi ekki að fara að koma mér úr náttfötunum og hafa til einhvern hádegismat... Allavegana hafið það gott og njótið samverustundanna.

18 desember 2006

15 desember 2006

Veik heima

Það hlaut að koma að því að maður léti bugast af öllum þessum pestum og veikindum sem eru í gangi þessa dagana. Þannig er því komið fyrir mér að ég sit veik heima og er að reyna að gera það upp við mig hvort ég eigi kannski að skella mér bara í sturtu og fara í vinnuna. Mér finnst nefnilega rosalega erfitt að réttlæta veikindadaga heima ef maður er ekki með hita eða getur bara bókstaflega ekki hreyft sig. Ég er búin að vera með hrikalega hálsbólgu undanfarna daga sem er alveg verst á kvöldin því þá leiðir hún útí eyrun þannig að mann kvíðir fyrir því að kyngja! Þessu fylgi síðan mikill hósti og kvef og raddmissir.
Einar þurfti að hafa vit fyrir mér í morgun og sagði mér að vera heima því ég þarf að vera góð um helgina þar sem ég þarf að æfa mig fyrir vörnina sem er á mánudaginn. Ég er svona að spá í hvað ég eigi þá að gera af mér í dag og er komin með nokkrar hugmyndir en enn sem komið er þá get ég ekki hreyft mig undan teppinu af því mér er svo kalt. Sjáum hvað setur, kannski ég fari bara í að skrifa jólakort uppí rúmi og láti það gott heita.
Í gærkvöldi fór ég til Atla litla frænda (8) sem hefur þurft að dveljast síðustu vikuna á barnaspítalanum. Greyið litla lenti í slysi meðan hann var að leika sér í leikkastala og flaug framaf eftir hæð hans og fékk innvortis blæðingar. Litli kallinn minn. Ég fór að heimsækja hann um daginn og þá fékk ég alveg sting um leið og ég kom inn því þarna lá hann eins og skata í rúminu og mátti ekki einu sinni reisa sig upp! Það var nú allt annað að sjá hann í gær þegar ég kom til að sitja aðeins hjá honum meðan að foreldrarnir fóru á jólatónleika hjá eldri stráknum. Í gær mátti hann nefnilega fara framúr í hjólastól. Atli heimtaði því að við færum í leiðangur um ganga spítalans þar sem hann þurfti nú að sýna mér hvern krók og kima. Ég get nú ekki sagt að það sé góð tilfinning að vera þarna og ég sá nokkur veik börn og þreytta og áhyggjusama foreldra. Ekki öfundsverðar aðstæður. Maður finnur að það er kvíði og vorkunn í loftinu þó svo að reynt sé að hressa uppá spítalann með besta móti og allt gert til að létta sjúklingum og aðstandendum lífið. Ég vona að ég þurfi aldrei að fara þangað aftur inn.
Það er hins vegar von á Atla heim núna um helgina en hann má ekki hreyfa sig neitt af viti næstu vikur og ekkert hlaupa eða spila fótbolta (sem er hans ástríða) næstu 2 mánuði!
Jæja ég ætla að hella mér uppá heitt te og reyna svo að leggja mig.
*Húsráð dagsins: Parkódín er mjög gott við hósta og stór skammtur af ibufeni slær hressielga á hálsbólgu tímabundið.
kve... atsjúúúúúúú!!!

13 desember 2006

ammmælisblogg...

Jæja þá er kellingin bara orðin 26 ára en ég er að sjálfsögðu bara 18 svona í alvörunni!
Frá upphafi sambands okkar Einars höfum við komið okkur upp ákveðinni hefði í sambandi við afmæli. Það byrjaði á því þegar Einar átti fyrst afmæli að ég var svo spennt yfir að gefa honum gjöfina að ég gaf honum hana seint kvöldið áður. Þannig skapaðist þessi hefði hjá okkur og núna í tæp 7 ár höfum við alltaf gefið hvort öðru gjöfina uppí rúmi eða rétt fyrir svefninn :) Þannig erum við alltaf fyrst til að gefa hvort öðru gjöf. Ég fékk semsagt frá Einari í gær fallega silfur eyrnalokka en ég var reyndar búin að fá aðra afmælisgjöf áður frá honum sem var svona meira samkomulag milli okkar. Í vinnunni í dag var síðan haldið afmæliskaffi nema hvað að þá birtist allt í einu sendill með risastóran og gullfallegann blómvönd handa mér! Ég missti næstum því andlitið, þetta var svo flottur blómvöndur með rósum og liljum og glimmeri yfir öllu saman. Þarna voru semsagt elsku vinkonur mínar, Ebba og Lára, að verki. Takk fyrir mig aftur stelpur og takk allir sem hafa sent mér kveðjur og hringt í tilefni dagsins!
Annars er lítið að frétta af mér nema að ég sit hérna uppí sófa og er að drepast úr hálsbólgu sem því miður er farin að leiða uppí eyrun. Ég vona bara að ég verði orðin hress fyrir vörnina sem er á mánudaginn. Annars er ég hrædd um að ég geti lítið kynnt þetta verkefni nema þá kannski helst á táknmáli.
Svona smá pæling hérna í endann. Ég var að heyra það í morgun að Mariah Carey sé að fara að feta í fótspor margra annara stjarna og gefa út sitt eigið ilmvatn, sinn persónulega ilm. Fregnir herma að ekki sé búið að gefa út ákveðna dagsetninu en hún er víst að vinna í þessu öllu saman núna stelpan. Yeah right... einhverra hluta vegna get ég ekki ímyndað mér Marihu (whatever) sitjandi heima hjá sér að blanda saman mismunandi ilmolíum og pæla eitthvað í þessu, fleiri? Þetta var nú bara smá útúrdúr sem fékk mig til að hlægja með sjálfri mér í morgun. og datt í hug að deila því Jæja ég hef ekki kraft í að skrif meira. Ætla að fara að kúra með teppi og heitt te.

03 desember 2006

Jólabakstur


Dagurinn í dag hefur farið í að leika við Daníel og baka smákökur þess á milli. Daníel er búinn að vera þvílíkt duglegur og stilltur að maður á bara ekki til orð, mætti halda að hann vissi að jólasveinninn væri á næsta leiti...

Allavegana langaði að láta eina ekta piparkökuuppskrift fylgja með. Þetta er ekki þessar týpísku heldur eru þetta sænskar piparkökur og maður sker ekkert úr þeim.

Sænskar piparkökur
½ kg hveiti
½ kg púðursykur
225 g smjörlíki
2 egg
30 g lyftiduft
1 tsk natron
1-2 tsk engifer
1 tsk kanill
11/2 tsk negull

Hrært, rúllað upp í stöngla, kælt, skorið í smáar kökur – sett á plötu og bakað við fremur hægan hita . ( hjá mér 150°C blástur í um 10-12 mín). Það má gjarnan minnka aðeins lyftiduftið, ég slumpa bara ;-) og svo passa sig að vera ekki of örlát á kryddið, ekki gott að hafa þær of sterkar.

Svo er hérna ein til sem er alveg ómissandi.

Kókostoppar
225 gr. strásykur
3 egg.stífþeytt
300 gr kókosmjöl
100 gr súkkulaði brytjað

Baka við 175 gráður í 10 - 15 mínútur. Bræða súkkulaði og setja með teskeið ofan á toppinn á hverri köku.

Jæja það er ekki eftir neinu að bíða, næsti skammtur er að verða tilbúinn í ofninum. Pabbi gamli kemur síðan til okkar í heimsókn í kvöld og þá er sko gaman hjá Daníel. Hann bókstaflega henndir sér utan um hálsin á öllum sem við hittum, jafnvel þó hann hafi aldrei séð viðkomandi áður! Ég er að spá í að hafa grillaðan fisk í kvöldmatinn með sítrónu og engifer, nammi namm.
Góðar stundir!

30 nóvember 2006

Kósý kvöld

Þá er ég loksins búin að hátta og leggja Daníel, taka til og ganga frá, setja í vél, vaska upp og sit núna uppí stóra sófanum með kertljós og örlítið rósavín (verðlaun). Einar er veikur og er að leggja sig þannig að það er ekkert sjónvarp í kvöld takk fyrir, bara kósý kvöld uppí sófa með góða bók og rómó tónlist.
Ég er greinileg ekki ennþá búin að venjast því að þurfa ekki að vera í verkefninu allar lausar stundir og satt að segja finnst mér ég bara hafa allt of mikið af lausum tíma. Ætli maður verði ekki fljótur að venjast þessu :) ahhh... var að muna núna að ég gleymdi að fara út með ruslið... humm.. segist bara hafa gleymt því. Bíddu, við hvern á ég að segja það? Sjálfa mig? Það er alveg ótrúlegt hvað ég lýg mikið að sjálfri mér og ég virðirst alltaf komast upp með það!! Veit ekki hvað ég hef oft svindlað í nammibindindum og sleppt því að gera hitt og þetta eins og maður sé alltaf að gera þetta fyrir einhvern annan. Kemur auðvitað niður á manni sjálfum.
Var í klippingu í dag og nú er ég aftur orðin mjög dökkhærð með smá breytingu þar sem ég er komin með þykkann og þungann topp. Fínt að breyta til eftir árstíðum. Ég hef svo sem aldrei verið hrædd við að breyta til í hárgreiðslumálunum. Sannast kannski best á því að ég var með fjólblátt hár í góðann tíma og svo auðvitað leyfði ég Láru að klippa mig eftir henntugleika (það krefst umburðarlyndi!). Man einu sinni eftir því að hún var eitthvað að klippa mig og ég endaði á að vera með því sem næst skallablett en ég meina þetta óx. Svo veit ég til þess að það koma annað eins slys fyrir hjá Láru þegar hún var að klippa einn ónefndann og eitthvað skrikaði höndin með rakvélinni... til að gera langa sögu stutta þá var bletturinn svertur með skósvertu! Ætli það sé ekki best að fara út með þetta rusl og halda svo áfram kósýheitunum...mmmmm..

28 nóvember 2006

Frelsið er yndislegt....

Þetta er bara eitt af þeim fáu lögum (um frelsi) sem ég hef verið að raula eftir að ég skilaði ritgerðinni minni inn í gær! Ég er semsagt búin, finíto, fin og THE END með þetta allt!!! I´m freeeeeeeeeeee to do what ever I... (Oasis skiluru) Var samt ekki í alveg eins góðu skapi í gær og í dag þar sem prentunin var dáldið bögg og ég er ekki alveg nógu sátt við hvernig viðaukarnir komu út en þeir voru prentaðir út úr Excell.... já já alltaf auðvelt að vera vitur eftir á en nú er þetta búið og ekkert meira hægt að gera í þessu. Ég var semsagt bara heima eftir vinnu í gær góðum fíling með Daníel og eldaði góðann mat. Einar mætti síðan heim með rósir handa duglega námsmanninum :-) Þegar búið var að leggja Daníel skelltum við okkur uppí sófa að kúra og horfa á tellann. Svo var bara farið snemma í háttinn og ég stillti klukkuna kl.6 af því að ég ætlaði að mæta súpersnemma í vinnuna en eitthvað stillti ég klukkuna vitlaust og Daníel hefur greinilega fundið að mamma sín þurfti að lúlla aðeins lengur þannig að við vöknuðum ekki fyrr en rétt fyrir 7!
Ég er allavegana útsofin og bara alveg ný manneskja í dag. EN! Þetta verður ekki gert aftur! Það er alveg glatað að vera meira að heiman en heima og að barnið manns sé með fráhvarfseinkenni vegna skorts á knúsum! En núna eru jólin framundan og ég ætla að fara að skella mér í smákökubakstur og jólagjafainnkaup þar sem vörnin er 18. desember. Minnir mig á það að það er enn ein eldraun sem maðru á eftir að ganga í gegnum. Fékk sent um daginn upplýsingar um prófdómarann minn og.....SHITT! Ég, eins og nútímamanneskju sæmir, googlaði auðvitað gæjann af því ég hafði aldrei heyrt um hann og.... ja þið getið bara lesið sjálf um hann hérna og dæmt um þetta. Ég nenni ekki að hugsa meira um þetta.
En allavegana þá er ég alveg að komast í jólagírinn og um næstu helgi verður kransinn tekinn fram og á mánudaginn ætla ég að koma með eitthvað skraut til að skreyta hornskrifborðið mitt. Möppur og pennastatíf munu fá að fjúka fyrir einhverju fallegu jólaglingri.... ohhhh hlakka svo til!

19 nóvember 2006

Snjókorn falla.....

.. á allt og alla! Vei eeeelska snjó!
Ég nenni ómögulega að rifja upp síðustu tvær vikur þannig að ég hef ákveðið að koma með suttu útgáfuna hérna:

Fréttir
  • Alveg orðin útkeyrð eftir alla vinnuna
  • Búin að skila rigerðinni til efnislegs yfirlestrar
  • Á eftir að ganga frá og fínpússa hana
  • Skil eftir 9 daga
  • Loksins búin að kaupa sófann sem mig langaði í
  • Í leiðinni kom nýtt ljós og sjónvarp inní stofu
  • Ekki búin að versla neinar jólagjafir

Ég er semsagt búin að eyða helginni í makindum með strákunum úppí stóra-súper-djúsí sófanum okkar. Ég verð nú að segja að þetta er bara besta frjáfesting sem ég hef gert fyrir utan íbúðina auðvitað sem rúmar þennan sófa :) Mér finnst þetta líka svo gaman af því að mér finnst eins og ég eigi þetta svo skilið eftir allt puðið og fátæktina meðan við vorum í skólanum. Svo ég tali nú ekki um gömlu góðu Guðrúnargötuna og allt það vesen sem fylgdi henni eins og einfalt gler og rafmagnstafla dauðans.

Daníel er búin að sakna mín ansi mikið og er komin með mikil fráhvarfseinkenn.i Það lýsir sér í því að hann vill vera mikið á höndum hjá mér og svona fyrst þegar ég er komin heim þá má ég helst ekki hverfa úr augnsýn og ALLS EKKI nálgast útidyrahurðina eða fatahengið!

Það sem er framundan hjá mér núna er að klára þessa blessuðu ritgerð sem er komin uppí tæp 11 þúsund orð og skila henni inn. Taka mér smá frí eftir það og reyna að redda nokkrum jólagjöfum og svo er það bara undirbúningur fyrir vörnina sem fer fram einhverntíma milli 16. og 20 desember.

Jæja best að fara kannski að kíkja út með litlu rófuna mína. Hann er alveg steinhissa á öllu þessu hvíta dóti sem er úti og getur varla slitið sig frá glugganum. Alveg frábært að fylgjast með þessu. Lítur út fyrir að Einar verði að vera heima að vinna í dag þar við komum ekki fjallabílnum einu sinni útaf bílastæðinu. Svona er það að búa í sveitinni kakkar mínir :)

13 nóvember 2006

Ég er á lífi....

.... eða rétt svo. 15 dagar í skil....

02 nóvember 2006

Brúðkaupsmyndirnar


Loksins, loksins er Einar búinn að skanna inn brúðkaupsmyndirnar og í leiðinni næstum búinn að bræða úr skannanum hjá tengdó. Þær eru semsagt hérna. Kannski ekki bestu gæðin en það er nú heldur ekki beint pointið.
Svo vorum við líka að setja inn fullt af nýjum myndum inná síðuna hans Daníels sem er hérna. Sko okkur, ekki dugleg?

31 október 2006

Jahá!

Þetta er semsagt nýjasta orðið mitt og þetta er orðið ansi áberandi. Jahá! Ég fór fyrst að taka eftir þessu hjá mér fyrir svona viku síðan og það hefur ágerst. Ég segi þetta oft þegar einhver hefur sagt mér eitthvað eða bara svona útí loftið í staðinn fyrir jæja eða eitthvað svol. Fór að spá í afhverju ég er að segja þetta og hvaðan það er komið... og ég er búin að fatta það. Ég held að þetta sé bara komið af því að ég er of þreytt til að hlusta á hvað er verið að segja við mig og athyglin er ekki þar sem hún á að vera og ég veit ekki hverju maður á að svara til að koma ekki illa út. Eða þá að ég nenni bara ekki að halda samtalinu áfram þar sem áhugaleysi mitt á málefnum annara er gjörsamlega komið á nýtt plan en þetta líka svínvirkar!
Það nýjasta í verkefninu er það að það er kominn nýr punktur í allt heila klabbið og nú eru bjartari tímar fraundan, vonandi. Það er ekki verra að það er komin aukavika á skilafrestinn vegna mikilla anna hjá þeim sem eru í fullu námi. En við ætlum að halda okkur við fyrr plan. Veit eiginlega ekki hvort mér finnst betra að fá þessa auka viku til að létta á manni (fá frí í kvöd) og þá um leið lengja biðina eftir lokadeginum eða bara hafa allt á 150 og standa á haus síðasta daginn!

Það eru merkilegri hlutir að gerast í heiminum en ég og mitt lokaverkefnisvandamál því að hún Tulla gamla bekkjasystir og Jónas voru að eignst lítinn strák á
fimmtudaginn síðasta. Það er þegar komin heimasíða fyrir litla gaurinn sem hlotið hefur nafnið Aðalsteinn Ingi Jónasson. Jii, hvað það var gaman að skoða síðuna hans Aðalsteins og ekki laust við að maður hafi fengið svona nett flash-back. Man alveg eftir minni fæðingu og þegar ég fékk litla engilinn minn uppá bringu. Man hvað maður var alveg uppgefinn eftir að hafa verið með hríðir í 16 tíma en hvað öll sú þreyta hvarf sem dögg fyrir sólu þegar Daníel var fæddur. Það er ekki laust við að það klingi nú aðeins í manni við að fylgajst með þessu öllu gerast hjá vikonum sínum núna, finnst svo langt síðan að Daníel fæddist (16 mán). En svo kemur ein andvökunóttin enn og þá er maður fljótur að ranka við sér aftur og slá öllum frekari barneignum á frest.
Það er alveg ótrúlegt hvað það eru margir komnir með börn núna eða eiga von á börnum, bara eins og faraldur en þetta er svona aðaltíminn sem barneignir byrja 23-27 ára.

Annars var ég að koma heim af stjórnarfundi hjá LÍfeyrissjóði Tannlækna kl.8 og er dauðþreytt eftir daginn. Hver verður ekki þreyttur eftir að þurfa að sitja undir tveggja og hálfs tíma yfirferð og umræðum um verðbréfamarkaði, gengi og fjárfestingastefnur. Ég var oft komin þarna útí dagdrauma meðan að sjóðstjórinn hélt áfram að babbla um nýmarkaði og spennandi tækifæri í erlendum skuldabréfasjóðum. Svo gat ég ekki einu sinni huggað sjálfa mig fyrir að þurfa að sitja svona "áhugaverða" fundi með því að fá mér nammi. Maður fær sér ekki beint súkkulaðimola með góðri samvisku fyrir framan 5 tannlækna! hehe
Jæja ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt með Einari og nýta þetta eina fríkvöld mitt....Jahá...

27 október 2006

hatahatahataþettalokaverkefni!!!!!!

Guð hvað ég er ekki að nenna þessu lokaverkefni. Ég er alveg að fara að gubba mig langar svo innilega ekki til að halda áfram með það enda er ég hundóánægð með það! Verkefnið sem við tókum að okkur leit vel út í fyrst en núna er búið að koma í ljós að þótt að verkefnið útaf fyrir sig sé verðugt að vinna það þá eru bara ýmsar ástæður sem gera manni erfitt fyrir. T.d. hafa tengiliðirnir okkar lítinn sem engann tíma til að sinna okkur eða veita okkur þær upplýingar sem við þurfum og fyrir utan það þá eru upplýsingarnar mjög breytilegar frá degi til dags. Leiðbeinandinn okkar veit ekkert um vörustjórnun enda er hann hagfræðingur. Hann er örugglega mjög klár en hann samþykkti nálgun á verkefninu sem við erum búin að komast að NÚNA að myndi aldrei ganga á þjónustu. GOD ÉG ER ALVEG BRJÁLUÐ! Fyrir utan það þá hefur hann ekkert haft samband við okkur og einu sinni sendum við á hann einhverja klausu til að líta á og við heyrðum ekkert frá honum. Meðan að okkar er svona ganslaus þá er ég að heyra um aðra sem eru að veita þvílílkt aðhald og fara yfir og gagnrýna það sem betur mætti fara! Satt að segja þá veit ég ekkert hvering þetta um fara þar sem það eru ekki nema innan við þrjár vikur í skil til leiðbeinanda. Ég er löngu hætt að stefna á góða einkunn, markmiðið var bara að ná en nú er ég meira að segja farin að efast um að það náist. Það sem fer mest í taugarnar á mér er að ég tel mig engann aula í námi og ég ætti að geta gert gott lokaverkefni en allar þessar slæmu og leiðinlegu aðstæður eru að gera það gjörsamlega ómögulegt. Æ, ég veit ekkert hverju ég ætlaði að koma til skila með þessu... Þurfti bara að pústa, ætli það sé ekki best að fara að reyna að skrifa eitthvað meira í þessa blessuðu ritgerð.

25 október 2006

Strætóferðir og fleira

Mér er bara farið að finnast voðalega notalegt að taka strætó. Maður hefur smá tóm til að hugsa og svo er ég farin að taka eftir ýmsum hlutum í umhverfinu sem ég bara hef aldrei tekið eftir áður. Ég hef t.d. tekið eftir því að það hefur risið stórt hús uppá Höfða rétt hjá AGA. Ótrúlegt hvað þessi hús eru fljót að rísa. Maður spáir líka í því hvað það er búið að byggja mikið undanfarin ár og hver býr eiginlega í öllum þessum húsum? Útlendingar? Svo hef ég tekið eftir því að það er einhver sem lætur alltaf blóm á staðinn þar sem var keyrt yfir konuna á Miklubrautinni. Mér finnst voðalega sorglegt að hugsa um hvernig fólkinu hlýtur að líða sem setur þessi blóm þarna regluleg. Það hlýtur að sakna ástvinar síns sárlega. Hvað fleira.... Tjörnin er búin að vera frosin undanfarna daga og endurnar hafa þurft að vanda aðflugið til að lenda á litla þiðnaða blettinum.
Ég hugsa líka oft um fólkið sem er í vagninum og fæ ósjaldan smá nostalgíu. Sá t.d. stelpu um daginn vera að lesa One flew over the cuckoo´s nest. Man eftir því þegar maður var að lesa þessar bækur og um leið uppgötva bókmenntir. Ég man mér fannst ég voðalega vel lesin þegar ég var svona búin að lesa það merkilegast í þessum bókaflokki. Svo er alltaf a.m.k. einn gaur sem er með tónlist í heyrnatólunum á hæsta þannig að næsta fólk í kring fær að njóta tónlistarinnar með honum. En í staðinn fyrir að pirra mig yfir þessa þá er ég frekar farin að hafa áhyggjur af heyrninni hjá þessum greyjum, svona er maður orðinn gamall.
Annars er ég alltaf að komast meira og meira á þá skoðun að það ætti að hætta þessari endalaus byggingu á nýjum hverfum og þétta byggðina. Suðvesturhornið er farið að minna mann á risastóra pönnuköku! Það er alveg ótrúlegt fé sem fer í að halda þessu gangandi. Það þarf t.d. að leggja rafmagns og vatnslagnir í þetta allt svo ekki sé minnst á vegakerfið með tilheyrandi ljósabúnaði og viðhaldi og almenningssamgöngur. Ég sé alveg möguleikana á því að byggja stærri byggingar en við gerum nú þegar og svo eru margir blettir ónýttir. Ég lagði t.d. í Grettisgötu um daginn og þar var alveg heil röð af gömlum og ljótum timburhúsum sem hefði sennilega nægt að blása á og þau hefðu jafnast við jörðu. Svona lagað finnst mér að megi bara jafna við jörðu og byggja þarna kannski 3gja hæða hús eins og hefur verið gert annarstaðar á Grettisgötunni. Svo mætti sko alveg fara að taka til hendinni þarna í Vogahverfinu við sjóinn. Vera bara með fjöldaniðurrif þar! Jæja nú er ég komin svo langt í þessum pælingum að ég er virkilega farin að spá í að sækja um hjá Borgarskipulagsnefnd Reykjavíkurborgar.

22 október 2006

Gaggalagúúúúú!!!!!!!!!!!

Já það er rétt, ég er vöknuð, búin að fara í sturtu og klæða mig og klukkan er ekki nema 9 og Daníel er í pössun! Var búin að plana að ég ætlaði að sofa þvílíkt út en svo vaknaði maður bara uppúr 8 og fór að pæla í því hvað Daníel væri að gera.
Ástæðan fyrir því að hann er í pössun er sú að við vorum á árshátíð Landsbankans í gærkvöldi. Hún var haldin í nýju Laugardagshöllinni og vá hvað þetta var stórt og mikið af fólki! Rúmlega 2.000 manns og þar sem við sátum frekar aftarlega þá var það að fara á klóið bara langferð. En þetta var hrikalega flott og skemmtilegt. Skari skrípó og Eva María voru gestgjafar og svo var Vesturport með atriði og meira segja gerð stuttmynd í tilefni dagsins. Ég var ekki alveg að fíla þetta Vesturportdæmi þar sem fólk var að hanga niður úr köðlum og eitthvða svoleiðis. Var bara ekki að ná þessu en stuttmyndin var geðveikt fyndin. Þarna var í aðalhlutverkum svona lykilfólk í bankanum og auðvitað Bjöggi sem lék the godfather hehehe! Maður hefði eiginlega þurft að sjá þetta :)
Svo var maturinn alveg ótrúlega góður. Skil bara ekki hvernig það er hægt að framreiða mat fyrir 2.000 manns í einu og svo var hann geðveikur í þokkabót. Þjónarnir voru með eitthvað kerfið þarna sem var þannig að ef það vantaði disk einhverstaðar þá stóð þjóninn með upprétta hendi og með hvítann borðklút í hendinni. Það var mikið freistandi að rugla þessu kerfi hjá þeim og standa upp mep klútinn ;) En þessi framleiðsla jafnaðist ekkert á við það sem við sáum í Póllandi þegar við vorum á árshátíð TM software. Þar voru þjónarnir undir heraga og algjört show þegar þeir báru fram matinn.
Í stuttu máli sagt þá var þetta frábært kvöld fyrir utan blessaðar sólarsokkabuxurnar mínar sem auðvitað rifnuðu eins og ég vissi að myndi gerast. Algjört drasl og ég veit um 2 aðrar sem þetta kom fyrir. Ég sem keypti meir að segja XL til að reyna að koma í veg fyrir þetta en allt kom fyrir ekki.
Jæja þarf að fara að drífa mig að ná í Daníel heim til tengdó, maður er nú farin að sakna hans!

18 október 2006

Fann mynd af sófanum!

16 október 2006

Sammála um að vera ósammála?

Nú er komið að því að við ætlum að fara að skipta út litla IKEA sófanum okkar fyrir stórann, djúpann, flottann alvöru sjónvarpssófa. Ég verð að viðurkenna að það hefur alltaf verið draumur hjá mér að eiga góðann sófa þar sem maður getur komið sér almennilega fyrir. Við Einar erum búin að vera að skoða dáldið enda enginn skortu á húsgagnaverslunum hérna. Hefur einhver spáði í hversu margar verslanir með sófa eru á Höfuðborgarsvæðinu? Eigum við að telja?

1.IKEA
2.Húsgagnahöllin
3.Habitat
4.Natuzzi
5.Settið
6.Verona
7.Línan
8.Heima
9.Kósý
10.Öndvegi
11.Hagkaup
12.InnX
13.Ego Dekor
14.Sætir sófar
15.Rúmfatalagerinn
16.Líf og list
17.Listadún
18.Míra
19.Egg
20.Seating Concept
21.Exó
22.Tekk company
23.TM húsgögn
24.Sófi.is

Örugglega einhverjar fleiri sem ég man ekki eftir. Vá, 24 verslanir sem selja sófa í einu eða öðru formi! Ef þetta segir ekki sitt um einkaneysluæði íslendinga þá veit ég ekki hvað. Það mætti kannski hafa sér vísitölu byggða á þessu sem myndi þá fara eftir fjölda, staðsetningu og vöruúrvali hjá hverri verslun. Það mætti kannski fara eftir bíóvísitölunni hans Einars, ætli maður láti hann bara um frekari útfærslu á þessu.
Allavegan þrátt fyrir mikinn fjölda verslana þá getum við ekki fundið sófa sem okkur líst báðum vel á. Reyndar þá erum við búin að finna “The Sofa” en Einar er eitthvað að þrjóskast við þannig að opinber staða okkar er ennþá sú að við erum ekki búin að finna sófa. Annað vandamál er að við getum heldur ekki komið okkur saman um stofuljós. Einari líst ekkert á það sem ég sýni honum en hann getur hins vegar ekki sagt eða lýst því sem hann vill fá. Erfitt.
Ég er alveg búin að sjá það fyrir mér að þegar stóri (3m*1,8m) sófinn, sem ég veit að Einar á eftir að samþykkja, verður kominn inn þá verður þörf á að fá eitthvað stórt og áberandi ljós til að vega á móti flykkinu. Ljósið yrði þá einskonar húsgagn útaf fyrir sig. Það sem ég hafði í huga fyrir stofuljós er IQ – ljós eða eitthvað í þeim stíl en þetta virðist vera einum of fyrir Einar sem er meira fyrir látlausari hluti. Kannski hefur hann bara áhyggjur af því að geta ekki komið ljósinu saman.
Einar hefur reyndar nú þegar viðurkennt að ég hafi ágætis auga fyrir innréttingum sem sannaðist þegar við vorum að setja vinnuherbergið upp. Þannig að ég held að þetta sé bara spurning um þolinmæði og þá mun Einar gefa undann... ég meina sjá að þetta mun passa og verða mjög flott.

12 október 2006

Bannað að hlægja!

Nú er komið svo langt síðan ég hef sagt frá Daníel að það er nú heldur betur tími til kominn.
Mér finnst foreldrahlutverkið vera það erfiðasta sem ég hef komist í og þá er ég ekki að meina líkamlega. Ég er að meina uppeldi. Ég veit að ég hef oft litið á illa uppalinn börn og hugsað guð afhverju gera foreldranir ekki þetta eða hitt? Little did I know!!! Börnin eru fljót að læra og ég hef oft oft oft lent í því að vanmeta litla gaurinn minn. Maður heldur alltaf að þau séu ekki að fatta eitthvað, heldur að þau séu ennþá svo miklir óvitar. En þau eru fljót að læra og fljót að læra að nýta sér aðstæður, ójá! Sem dæmi er Daníel búinn að fatta hvar Cheeriosið er geymt og hleypur oft í það. Við gerðum mistök að hlægja að þessu fyrst og fannst það voða sniðugt hvað hann var orðinn klár. Í dag er Cheeriosið komið á nýjann stað, uppí efstu hillu!
Maður má ekki springa úr hlátri þegar þau gera eitthvað sem getur orðið hættulegt eins og að hoppa uppí hjónarúminu. Þá finnst þeim þetta voða sniðugt og halda áfram til að fá athygli og oftar en ekki endar það illa annað hvort að við þurfum að skerast í leikinn (þá um leið erum við ljót og leiðnleg!)og láta hann hætta eða þá að hann meiðir sig.
Ég var líka með voða háleitar hugmyndir um að ég myndi sko ekki láta Daníel komast upp með að borða ekki það sem er á boðstólnum hverju sinni og ég myndi sko aldrei fara að elda eitthvað sér ofaní hann. Guess again! Ég segi nú ekki að ég gangi svo langt að elda sér ofan í hann en ég gef mig oft þegar hann vill ekki borða. Maður hefur svo miklar áhyggjur af því að hann fái engann mat ofan í sig að maður að lokum leyfir honum að fá skyr bara í staðinn fyrir brauðið. Ég veit alveg að hann sveltur ekki en það er hægara sagt en gert að segja: jæja, þá færðu bara ekkert að borða víst þú vilt ekki þetta! Hann er líka búinn að læra það að ef hann neitar að borða brauðið þá fær hann eitthvað annað... að lokum. Óþolandi hvað þessi börn læra!
Það er ekki hægt að segja annað en að ég er algörlega búin að endurskoða afstöðu mína til uppeldis og ég held að höfundar uppeldisbóka muni græða vel á mér. Reyndar held ég að ég og mínir líka séum bara akkúrat markhópurinn fyrir þessa höfunda.

07 október 2006

Hitt og þetta + smá dagbókarbrot

Var í allann dag uppí MBL-húsinu í lokaverkefninu. Er orðin dáldið stressið þar sem það er 1 mánuður og 1 vika í lokaskil og við vorum að enda við að breyta algjörlega uppbyggingu verkefnisins. Við erum endandlega búin að komast að því nálgunin sem við ætluðum að nota virkar ekki á þjónustu, aðeins áþreifanlega vöru. Er alveg komin með nóg af þessu verkefni en ég er samt að fara aftur á morgun allann daginn. Great!

Allavegana. Skráði mig um daginn á www.stopp.is. Ég er nú ekki beinn neinn ökuníðingur en það kemur fyrir að maður gleymir sér einfaldlega og áður en maður veit af þá er maður komin langt yfir hámarkshraðann. Allavegana nú held ég mig bara við það sem stendur á skiltunum en ég er samt búin að setja mér smá reglu að maður má fara uppí næsta tug fyrir ofan ef það er lítil umferð og allt er eins og best verður á kosið. Verð að viðurkenna að ég hef nú bara dáldið gaman af þessu þar sem það verða margir mjög pirraðir á þessu aksturslagi mínu. Þetta á sérstaklega við þegar ég er að fara heim upp Ártúnsbrekkuna og yfir Gullinbrúnna. Leyfilegur hámarkshraði er 60 á brúnni þannig að ég er reyni að halda mig á undir 70. Þetta virðist fara alveg óhugnalega mikið í taugarnar á fólki sem auðvitað kyndir bara meira upp í mér og ég hægi frekar á mér frekar en að gefa undan og keyra hraðar. Maður samt spáir í þessum bullum í umferðinni. Þeir keyra alveg ofan í mann þannig að maður bara bíður eftir að þeir banki á gluggann og svo eru sumir svo kaldir að blikka mann með ljósunum. Úúúúú...ég er svo hrædd! Hvað ætlar gaurinn að gera? Hrekja mig útaf Gullinnbrúnni ef ég keyri ekki hraðar??? Kræst, svo þegar þeir loksins komast fammúr manni þá gefa þeir manni svona dauða lúkkið eins og ég sé einhver hálvita fyrir að vera á LÖGLEGUM HRAÐA!
Svona aðeins tengt þessu þá heyrði ég í pólsku fréttunum (sem ég hlusta á á netinu) að tvítugur strákur var að keyra yfir 100 þar sem leyfilegur hraði var 50, var að taka framúr og missti stjórn á bílnum þannig að hann keyrði beint á strætóstoppistöð þar sem fullt af fólki var að bíða. Til að gera langa sögu stutta þá létust 5 manns og 3 eru alvarlega slasaðir og þessi strákur á yfir höfði sér 12 ára fangelsi fyrir manndráp (x5)af gáleysi. Humm... fær mann til að hugsa?

Árshátíðin hjá LÍ er eftir 2 vikur og við Einar ætlum að fara. Ég er nú samt ekkert að deyja úr spennu þar sem að... jæja við skulum bara að segja að hljóðmsveitin sem á að spila er ekki alveg fyrir minn smekk (Brimkló). En ég meina það er fínasti kvöldmatur og skemmtiatriði og kostar ekkert þannig að það er svo sem engin ástæða til að sleppa því að fara, maður getur bara farið heim þegar ballið byrjar. Ég er meira að segja búin að verða mér úti um pössun. Besta besta Lára mín ætlar að vera svo góð að láta fara vel um sig hérna heima og hafa það gott meðan að við verðum að heiman. *Takk sæta mín*

Svona í lokin þá verð ég víst að skrifa inn smá dagbókarfærslu sem ég er búin að lofa svo lengi. Geri þetta nú aðalega fyrir Tullu sem þarf að hafa hægt um sig þar til Stubburinn fæðist. En ég tek þetta bara í brotum og ef það er eitthvað sem er of embarrisíng þá tek ég það út ;)annars er þetta orðrétt....nema kannski smá komment fá mér innan sviga :D

21.04.96

Kæra dagbók

Núna eru aðeins 3 dagar í samræmduprófin og ég er að reyna að læra. Eftir síðasta prófið sem verður í dönsku ætla allir krakkarnir að fara að djamma og djúsa (úúú villt) Fyrst förum ég og Lára á útvarpslóðina að öskra (never happend)og svo förum við til Lýðs að skála. Mamma ætlar meir að segja að kaupa eina kampavínsflösku handa okkur. Síðan um kvöldið förum við á ball í skólanum. Það ætla allir að mæta blindfullir. Síðan eftir ballið ef það verður ekki öllum hent út (úúú) þá förum við niður í bæ og skemmtum okkur fram á rauða nótt (þetta hefur verið aldeilis skipulagt). Ég ætla að ná mér í einhvern gæja (OMG!). Skil það ekki en alltaf þegar ég er full þá gengur svo vel að ná sér í strák (humm...wonder why).

Jæja þetta er komið gott í fyrstu adrennu þar sem að framhaldið er of vandræðalegt þar sem ég er að lýsa mínum fyrri strákamálum. Vona að einhver hafi haft gaman að þessu, mér finnst þetta allavegana stórskemmtilegt!

luv,Karen

p.s.þoli ekki þessa krapp sjónvarpsdagskrá á laugardagskvöldum :(

30 september 2006

Ótrúlega óáhugavert líf þessa dagana...

Vá hvað þetta er hóflega orðað miðað við að ég hef nákvæmlega ekkert að segja. Veit ekki einu sinni hvort ég muni getað klárað þessa færslu þar sem að Einar er að spila á gítarinn og sjónvarpið er líka í gangi og ég finn ekki fjarsýringuna. Verð að muna kaupa ól á fjarstýringuna eða raddstýringu á sjónvarpið eða kannski bara líma fjarstýringuna við borðið næst þegar ég finn hana...
Allavegana þá gengur verkefnið svona lala en leiðbeinandinn okkar er ekkert að leiðbeina okkur. Ég efast meira að segja um að hann geri sér almennilega grein fyrir um hvað verkefnið er. Fyrir utan það þá er maðurinn HAGFRÆÐINGUR og hefur lítið vit og örugglega enn minni áhuga á vörustjórnun. Við verðum bara að halda okkar striki og vona að við séum á réttri leið þar til við fáum eitthvað svar frá manninum sem er yfir lokaverkefnunum.
Daníel greyið er dáldið lítill í sér þar sem hann er að taka jaxl og þess vegna mjög órólegur. Á fimmtudagsnóttina þurfti ég í fyrsta skipti síðan hann fæddist að ganga um gólf með hann heillengi þar til hann sofnaði. Greyið litla.
Annars gengur "mittisminnkunin" ekkert sérstaklega vel fyrir utan mataræðið. Þannig er að einhvernveginn tókst mér að skadda mig eitthvað í liðþófanum í hægra hné og er ég búin að vera hölt og finna til síðustu 6-7 vikur þó þetta fari nú skánandi. Ég er að fara í segulómun á mánudaginn og þá verður hægt að ákveða hvort það verði eitthvða gert í þessu eða hvort ég verð látin skjögra þar til þetta lagast af sjálfu sér. Veit varla hvort er betra eða kannski verra en ef það verður gerð aðgerð þá er þetta bara pínupons, tvö smágöt sitthvoru megin og allt gert í gegnum þau. Ég bara skil ekki hvernig mér tókst að fara að þessu, þetta flokkast víst til íþróttameiðsla og ég held að við vitum öll´að ég er ekki beint neinn íþróttaálfur.
Ég er byrjuð að taka strætó í og úr vinnunni núna. Ég bara hef það ekki í mér að láta Einar og Daníel hanga í meira en hálftíma í bíl á dag bara til að skutla mér og ná í mig. Það sem ég hef hins vegar tekið eftir síðan ég byrjaði að taka bössinn er hvað það er lítið stoppað fyrir manni á gangbrautum. Ég man þegar ég var að labba með Daníel í vagninum í den og þá var maður ekki einu sinni kominn að gangbrautinni þegar bílarnir fóru að hægja á sér. Núna er maður eiginlega í svona chiken við bílstjórana, hvor gefur undan? Hver gefur í? Ætli maður komist lifandi yfir götuna? Í raun er þetta hápunktur lífs míns þessa dagana.

19 september 2006

Verkefnið mitt

Tók þetta úr verkefnalýsingunni sem við skiluðum inn til leiðbeinandans. Þetta hefur tekið einhverjum breytingum eins og búast mátti við. Ég er að vinna í þessu á fullu þessa dagana og þannig verður það næstu 2 mánuðina þar sem verkefnið á að vera 18.000 til 25.000 orð.

Erlenda varslan (custody) er ekki nægilega arðbær og þurfum við að yfirfara gjaldskránna, athuga þjónustustig, yfirfara ferla og finna leiðir til að gera þjónustuna skilvirkari. Annar hluti var að hanna hermilíkan fyrir þjónustuþáttinn (samskiptin) við erlendu aðilana. Þetta er gert til að gera sér betur grein fyrir í hvað tíminn hjá starfsmanni fer þar sem hingað til hefur reynst erfitt að rukka einstaka viðskiptamenn fyrir sértæka þjónustu. Þetta er þjónusta eins og skýrslugerð og sérstök yfirlit og samanburðir t.d. milli markaða.
Við höfum hugsað okkur að taka á þessu vandamáli með flæðisútreikningum og Little´s law þar sem að við teljum að það muni veita LÍ mjög góða heildasýn yfirstarfsemina og kostnaðinn. Með flæðiritum má einnig sjá virðislausar athafnir og tækifæri á breytingum til hagræðingar.

16 september 2006

Gellan bara í gettóinu!

Akkúrat núna er ég mikið að spá í að að eyða út síðustu færslu þar sem ég var að segja frá hugleiðinum mínum um að fara útá bílaplan með olíubrúsa......
Þannig er að þegar ég er að keyra inn í götuna mína núna áðan þá sé ég einn og einn krakka skjótast yfir götuna eins og ketti og bíllinn bakvið mig var líka eitthvað að keyra skringilega. Svo þegar ég stíg útúr bílnum heima þá heyri ég bara gelgjuöskur og hróp og köll. Auðvitað fer ég að tékk á þessu....viti menn bakvið húsið mitt, inní miðju hverfinu stendur bíll í ljósum logum! Við fyrstu sýn þá leit þetta út eins og bíldruslan sem ég var að kvarta undan síðast (YESSSSS!!!!) en því miður var þetta ekki hún.... Allavegana þá var eitthvað kallgrey að reyna að slökkva í þessu með heimilisslökkvitæki en það dugði lítið. Ein stelpa þarna sagði mér að þær hefðu séð eitthvað loga undan bílnum svo allt í einu bara SPRENGING og þá varð hann alelda.
Allavegna þá lét ég þetta ekki stoppa mig í að skreppa út í 10-11 (nammidagur er heilagur) og þegar ég kom til baka þá var löggumann kominn og slökkviliðsgæjar að kæfa eldinn.
Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi heldur betur brotið upp annars mjög döll kvöld hjá flestum hérna í götunni. Bara fínasta fjölskylduskemmtun þar sem heilu stórfjölskyldurnar stóðu út á svölum (ég meðtalin) og ljósablossarnir frá myndavélunum minntu helst á Óskarsverðlaunahátíðina! Sammi á neðri hæðinni klikkaði ekki og tók myndir villt og galið. Hann ætlar síðan að vera svo sætur að senda mér nokkrar og þá skal ég setja þær hérna inn. Sammi var þegar kominn með nokkara góðar fyrirsagnir eins og "Skólinn er byrjaður" eða "Geðveiki í Grafarvogi". Við skulum sjá til hvort blöin ná að gera betur :)
Hverjar ætli séu líkurnar á því að það kvikni í bílhræinu góða á næstu dögum....?


Þessa mynd tók ég í morgun

Annars er ég bara á fullu í lokaverkefninu og get lítið hugsað um annað þessa dagana. Skiladagur er 13 nóv til leiðbeinanda og 20 nóv er lokalokalokaskil. Ég nenni ekki einu sinni að segja ykkur frá því um hvað verkefnið mitt er þar sem ég er í fríi núna, alveg nóg að vera farin að dreyma um þetta dót....

hilsen,
Gettógellna

06 september 2006

Veikindi, bíldráttur og Rockstar!

Hvað skal segja....?
Einar er kominn heim frá Svíþjóð okkur Daníel til mikillar ánægju. En gleðin stoppaði stutt því Einar kom heim aðfaranótt mánudags og á mánudagsmorgunn var Daníel kominn með hita og er búinn að vera veikur síðan :( Það er ekkert leiðinlegra en að hanga heima með veikt barn.. humm jú reyndar einn hlutur; að vera sjálf/ur veik/ur heima með veikt barn er horror!
Annars er maður að bralla ýmislegt. Eitt af verkefnunum mínum sem ég bjó til handa sjálfri mér hérna heima á mánudaginn var að hringja í Reykjavíkurborg og reyna að fá þá til að draga í burtu bíldruslu. Það er semsagt klesstur bíll sem einhver er að geyma hérna á bílastæðinu inní hverfinu og mig langaði að vita hvort ég gæti ekki valdið smá usla og látið draga þetta í burtu bara til að sjá hvort maður geti það :) En nei það er hægara sagt en gert að láta draga svona dót í burtu (dem).
Fyrsta spurning, er draslið á einkalóð eða borgarlandi? Svar: Einkalóð
Næsta spurning, er eitthvað húsfélag sem vill leggja fram kvörtun útaf druslunni? Humm...(þarna hugðist ég nota stöðu mína sem formaður húsfélagsins) Já ég vil leggja fram kvörtun! En nei okkar húsfélg hefur bara rétt til að kvarta undan drasli sem er á bílastæðunum sem tilheyra okkar bílastæði sem er hinmegin við húsið.
Þriðja spurning, stafar hætta af bíldruslunni? Lekur olía eða brotið gler? Svar: Nei
Allavegana niðurstaðan var sú að ef það er olía eða brotið gler þá er hægt að hafa samband við Umhverfissvið og þá er hægt að láta draga þetta í burtu. Ég er í þessum töluðu orðum að gera upp við mig hvort ég eigi að skreppa í smá göngutúr með olíubrúsa.....
Svona í lokin þá er ég að ritskoða dagbókina sem ég fann um daginn og vonandi mun ég nenna að slá eitthvað úr henni inn, okkur öllum til skemmtunar ;)
Jæja Rockstar á eftir (er reyndar búin að kíkja hver fer)popp & kók og nóg af sjónvarpsglápi undir teppi með kallinum.
Góðar stundir....

31 ágúst 2006

Gamlar dagbækur...

Var að finna gamla dagbók frá unglingsárunum. Þar er ég í 10. bekk og ég skrifa m.a. um djammið eftir samræmduprófin þar sem ég er gelgjutoppnum! Vá, þvílíkt rugl en ógeðslega skemmtilegt að lesa þetta. Humm... hver veit nema ég skelli inn hérna nokkrum færslum :)

29 ágúst 2006

Simbi

Hérna í húsinu okkar í Svarthömrunum búa tveir sætir kisar. Annar er útikisi sem heitir Simbi og hinn er innikisi og heitir Líf. Daníel er voðalega hrifin af þeim og þegar þeir verða á vegi okkar þá kemur sko ekkert annað til greina en að stoppa og klappa þeim og strjúka. Simbi er alltaf til í að koma til okkar enda mesti ljúflingur og ótrúlega kelinn. Maður verður samt að passa að Daníel verði ekki of ákafur (sem gerist oft) og rífi í feldinn! Hann kallar alltaf þegar hann sér Simba: Disi! Disi! og bendir með puttanum. Hann minnir mig nú á þegar ég var lítil eða kannski meira á sögurnar sem ég hef heyrt af sjálfri mér. Það var einmitt líka kisi í Háaleitinu þegar ég var lítil sem hét Sveipur.
Hann lét sig sko hafa það að ég var alltaf að kjassast í honum og bera hann frá einum stað á annan og svo til baka. Það eru meira að segja til myndir af honum þar sem ég er búin að troða honum í dúkkukerruna mína og er að keyra hann. Við skulum sjá til hvað Simbi endist lengi, ætli ég þurfi ekki að fara að múta honum með einhverju góðgæti til að hann láti sig ekki hverfa.
Annars held ég að börn hafi mjög gott af því að alast upp í kringum dýr þar sem þau læra að umgangast aðarar lífverur og bera virðingu fyrir þeim. Vonandi fáum við okkur kannski kisu eða eitthvað annað dýr þegar við komum aftur heim frá DK.

26 ágúst 2006

Vinnudjamm

Það er búið að vera nóg að gera síðustu tvo daga í vinnunni þó svo að ég sé í sumarfríi og var ekki beint að vinna.
Á fimmtudaginn fórum við í keilu uppfrá hjá Varnarliðinu. Það var mjög skrítið að fara þarna og maður þurfti að skrá sig í ferðina minnst 10 dögum fyrr til að þeir gætu nú örugglega athugað hvort við værum nokkuð tengd einhverjum hryðjuverkasamtökum! En þetta var skrítin upplifun. Strax við hliðið er þvílíkt eftirlit þó svo að það séu næstum allir farnir þarna af svæðinu. Meðan að einn hermaður kom inní rútuna til að tékka á skilríkjum hjá öllum þá stóð annar fyrir utan með RIFFIL í höndunum og BYSSU í slíðri á beltinu! Kræst, maður er svo óvanur að sjá svona vopn að það fór alveg um mann, ætlaði varla að þora að horfa á hann!
Keilan var fín þar sem your´s truely fór á kostum en maður fann alveg að maður var ekki beint á íslandi. Það er allt örðuvísi þarna, klósettin, borðin.... æ, get ekki alveg lýst þessu en það var allavegana allt mjög amerískt. Við spiluðum þrjá leiki og ég var alveg dauð eftir það þar sem við vorum fimm með einn leik í gangi á tveim brautum þannig að maður var stanslaust að gera. Lokatölur verða sem betur fer ekki gerðar opinberar.
Svo í gær var partý hjá Upplýsingatæknisviði sem mín deild tilheyrir. Jamm, það er mjög skrítið að við heyrum undir þessa deild (tölvunörd og svo við) en ekki undir Eignarstýringarsvið eins og við gerðum áður þar sem við erum að vinna bakvinnsluna fyrir eignarstýringu. Anyways.... Það kom rúta að sækja okkur niður í bæ og leiðinn var heitið uppí Hafravatn þar sem einhver innan bankans á bústað. Það fóru tvær rútur með klukkutíma millibili og ég fór með þeirri seinni. Það var búið að gera þvílíkt flott svæði þarna þar sem búið var að koma fyrir risastóru partytjaldi við vatnið með bekkjum og borðum og svo var Grillvagninn fenginn til að grilla ofan í liðið. Á hliðarlínunni við dansflötinn var langborð þar sem í boði voru skot af ýmsum gerðum, Brezzer 4 tegundir, rautt og hvítt og svo auðvitað bjórkútar.
Þegar við mættum á svæðið þá voru allir þeir sem komu með fyrri rútunni komnir á skallann venga einhvers spurningaleiks sem fól í sér mjög óhóflegt magn af skotum. Brynja og Kristín voru á snepplunum þegar ég kom að þeim og Brynja hélst varla á bekknum! Ég var auðvitað strax mönuð uppí að fá mér skot en ég þorði varla þar sem ég var með galtómann maga! Endaði samt með að ég fékk mér tvö skot og þegar kom síðan að matnum þá gat ég varla haldið á hnífapröunum vegna ölvunar! Eftir tvö skot! Vá hvað maður er orðinn mikill hænuhaus! En allt fór vel og maturinn var frábær. Svo var farið út og dansað og spjallað. Ásdís er komin með eitt prik fyrir meinta morðtilraun þar sem við vorum að dansa og hún lét mig óvart hrasa um tjaldsnúru þannig að ég datt killiflöt beint á bringuna! En ég hélt andlitinu þó ég missti andann þarna í smá stund. Ásdís... 1-0 fyrir þér , ég myndi passa mig á næsta djammi ;)
En þetta var mjög skemmtilegt og margir urðu mjög skrautlegir m.a. stakk einn maður sér til sunds í ísköldu vatninu við mjög misjafnar undirtektir!
Mér finnst alveg nauðsynlegt að halda af og til eitthvað svona starfsmannaparty eða eitthvað annað þannig að fólk fái tækifæri til að hittast og kynnast aðeins betur utan starfsumhverfisins. Hlakka til næst! Ég komst síðan að því að leigubíll neðan úr bæ og hingað heim kostar sléttar 2.000 krónur þannig að annaðhvort þarf ég að fara að semja eitthvað við þessa leigara eða kannski bara kynnast fleira fólki hérna uppí Grafarvogi!

23 ágúst 2006

Er ég kem heim í Búðardal....

Jæja, þá er maður kominn aftur í bæinn úr ferðalagi á Vestfirðina. Maður er úthvíldur eða eins úthvíldur og maður verður eftir 6 tíma akstur í sitthvora áttina. Búðardalslagið var auðvitað sungið hátt og snjallt þegar við renndum þarna í gegn í bæði skiptin. Þetta var ágætis ferðalag og náttúrufegurðin þarna á Vestfjörðum er alveg stórkostleg.
Í dag á hann Einar minn afmæli! Hann er 26 ára húrra, húrra, húrra! Við tókum forskot á sæluna og héldum uppá afmælið um helgina í bústaðnum. Þar fékk Einar frá okkur fjölskyldunni flottann Fender kassagítar. Ég var búin að plana þessa gítargjöf ca. 2 mánuði fram í tímann en þessi hugmynd hefur verið að blunda með mér mun lengur. Mér fannst Einar eiga skilið að fá loksins flotttann gítar þar sem hann á bara einhvern gamlann og lúinn og vegna námsáranna og almennra blankheita höfum við ekki getað endurnýjað hann.Mér datt í hug að fá foreldra okkar beggja með í þetta og svo var ég svo heppinn að kunningi minn ,sem er mjög kunnugur gítörum, hjálpaði mér að finna flottann og góðann gítar. Þegar búið var að versla gítarinn fór ég með hann beinustu leið til tengdó og fékk þau til að taka gripinn í sínum bíl uppí bústað. Svo á laugardagsmorguninn leyfði ég Einari að sofa út eða svona eins lengi og ég hafði þolinmæði til ;)Að lokum fór ég inn til hans þar sem hann var hálfsofandi og rétti honum kort og inní því var blað sem ég var búin að prenta út specifications um gítarinn.... Meðan að Einar var að vakna og átta sig á hvað hann var að lesa fór ég fram þar sem búið var að stilla gítarnum upp í eldhúsinu. Svo allt í einu heyrði maður bara drunur (Einar hafði stokkið fram úr kojunni) og svo kemur Einar inn og veit varla hvað hann á að halda um það fyrr en hann sér gítarinn! "Eruð þið ekki að djóka???" endurtekur hann bara nokkrum sinnum þar sem hann trúir ekki eigin augum! Svo tók hann auðvitað gítarinn úr kassanum og skoðaði í bak og fyrir og fór að prófa hann. Ég veit ekki hvort var skemmtilegra; fyrir hann að fá gítartinn eða mig að sjá hann svona ánægðann!
Hérna er svo mynd af gripnum þó svo að mér finnist hún ekki sýna nógu vel hvað hann er fallegur og nú er ég ekki sérfræðingur.



Fyrir utan þetta fórum við í gönguferðir, reyndum að tína ber en þau voru ekki tilbúin og grilluðum úti marg fleira skemmtilegt. Daníel naut sín mjög vel í sveitinni og lék sér mikið og ærslaðist í grasinu. Jæja segi þetta gott í bili þar sem verið er að kalla á mig, einhver virðist vilja fá hádegismatinn sinn :)

Já og ekki má gleyma að Jóhanna vinkona, Eva gamla bekkjasystir og Ísold litla sæta áttu allar afmæli í gær og þið fáið hérna allar risa knús og kossa frá mér.

16 ágúst 2006

Hallærislegar auglýsingar

Aldrei skal mann undra hversu hörmulega-ömurlega-hallærislegar auglýsingar eru framleiddar og virkilega látnar gossa í loftið. Þetta virðist vera sérstaklega áberandi núna þ.e. að það eru alltof margar lélegar auglýsingar í gangi.

1.ORVILLE. Einhver hallæris DJ sem er einhverra hluta vegna með að poppa örbylgjupopp meðan að hann er að spila. Ekki nóg með það heldur er hann í einni þeirra að éta poppið með kínaprjónum. Er einhver heil brú í þessu? Allavegana þegar ég er að djamma þá vil ég frekar fá mér í glas frekar en að fá mér popp! Glatað

2.ORKUVEITAN. Ég fæ smá ælu uppí mig bara við að hugsa um þennan viðbjóð. "pabbi, hvaðan kemur eiginlega rafmagnið?" Svo byrjar einhver svakalegur söngleikur þar sem aðal pointið er "Svona viljum við hafa það, ekkert vesen og allt í góðu lagi". Ekki misskilja mig, auglýsingin er flott en ég sé bara ekki tilganginn með henni. Afhverju í ósköpunum er Orkuveitan að eyða stórfé í gerð greinilega rándýrar auglýsingar, eins og hún geri ekki nóg af því fyrir. Er það þetta sem síðasta orkugjaldshækkun fór í? Ég geri mér grein fyrir því að nú hefur fólk val um að skipt við OR eða RARIK en kommon!Hérna má nálgast auglýsinguna.

3.KFC. Hrikalegar auglýsingar þar sem mismunandi fólk reynir að stama útúr sér að það viti ekkert betra en KFC."Ég verð a..að fá zingerborgarnn..nn minn í háádeginu á sunnudögum". Annars hvað? Ha? Kræst! Hvernig væri að gera þetta almennilega víst að þeir eru að þessu á annað borð og fá sér nokkuð sem kallast LEIKARAR. Það vill svo til að ég veit að það er til nóg af þeim og örugglega nokkrir sem hafa lausan tíma. Plís ekki vera að fá vini og fjölskyldu til að leika í svona drasli.. það er bara sorglegt.

4.Thule. Þeir hafa nú í gegnum tíðina verið með frábærar auglýsingar og mig verkja alveg við að sjá hvað þeir hafa farið illa að ráði sínu. Að horfa á Pétur Jóhann, sem er svo löngu útbrunninn, vera með eitthvað pínlegt grín vekur með mér löngun til að slökkva á sjónvarpinu. Sorry, ekki að virka.

5. SPARISÓÐIRNIR. Þetta er nýjasta lélega auglýsingin sem ég hef tekið eftir. Veit ekki hvort þetta á að vera artí eða hvað. Þarna eru "ungir námsmenn" að gera gott úr því sem þau hafa. Þarna koma ýmsar nýstárlegar aðferðir fyrir þá sem eru fátækir! Já, það er nefnilega hægt að teikna bindi og kraga á hvítann bol í staðinn fyrir að kaupa hlutina. Það er hægt að poppa í potti og fara svo að horfa á stjörnurnar og síðast en ekki síst er hægt að klippa út sjónvarp úr pappakassa og krota eitthvað framan í sig og gera eitthvað sem ég annað hvort náði ekki eða ég var búin að skipta um stöð. Til að toppa allt þá er þetta í svarthvítu og með svona gamaldags-effect. Ef Sparisjóðirnir hafa ekki efni á að nota nútímatækni við gerð auglýsinga þá þurfa þeir virkilega að fara að taka sig á í samkeppninni.

Og svo eru gamlar kellingar að kæra vegagerðamenn fyrir að vera að vinna berir að ofan og særa blygðunarkennd sína. Ég held ég verði bara að fara að taka mig til og fara að kæra eitthvað af þessu markaðs-auglýsingapakki því þessara auglýsinga láta mann alveg fara hjá sér.

Hérna eru nokkrar auglýsingar sem mér finnast góðar.
Hive - hefur þú frá mörgu að segja?
Colgate - 360 gráður tannburstinn
Dominos
IKEA
Pósturinn - allur pakkinn
Landsbankinn - Við elskum fótbolta
KB - námsmenn
Lottó
Flugger litir


Allavegana gaman að heyra ef einhver hefur einhverju við að bæta annan hvorn listann.

15 ágúst 2006

Ég eeeelska bunnys!

Mér finnst King kong algjört krapp en hún er ágæt þegar Bunnys taka hana!

Rise and shine syster!!!!

Jebb, klukkan er 06:06 og ég er komin á fætur. Ég er reyndar búin að vera vakandi frá 05:38 en ætli það sé ekki "the price you pay" fyrir að Daníel svaf góðann hádegisblund í gær í rúman 2 og hálfann tíma. Það er svona takmarkað hvað maður getur tekið daginn snemma og hef ég núna t.d. lítið annað að gera en að horfa á litla orminn minn rústa íbúðinni á ógnarhraða.

p.s. Ég er víst ekki morgunhressasta manneskja í heimi lengur eins og ég var...

13 ágúst 2006

Fínasta helgi

Á föstudaginn héldum við party og buðum gömlum skólafélögum Einars úr HR. Þetta var mjög fínt og rosalega skemmtilegur hópur sem auðvelt er að falla inní. Partýið var síðan búið kl 2 og allir reknir út, fjórum tímum síðar var ég vöknuð eiturhress með Daníel. EITURHRESSSSSS!
Í gær fengum við svo Atla "litla" frænda hans Einars sem er nú samt að verða stærri en hann btw Einar er 1,87 m! Við grilluðum og tókum svo 40 year old virgin sem er bara geðveikt fyndin mynd. Við vorum í hláturkasti næstum því allann tímann. Eftir myndina vorum við síðan eitthvað að ræða kalla og vaxmeðferðir og hvort að þeir gætu farið í svona brazilian. Þá kom Atli með frábæra setningu: Ef einhver kæmi með vax nálægt pungnum á mér þá myndi sá sami vera skítandi kertum næstu vikurnar!!! Mér finnst þetta alveg brilljant :D Já, það er gaman að fylgjast með þessum litla frænda hans Einars þroskast og verða fullorðinn. Ég man ennþá eftir honum þegar hann var 11 ára tittur (fyrir rúmum 6 árum) að vara mig við að fara ekki illa með frænda hans annars væri honum að mæta ;-)
Ég furða mig stundum ennþá á því hvernig ég hélt út þarna fyrstu vikurnar með Einari. Atli alltaf límdur við okkur eins og frímerki og Alda að springa af öfund þar sem að hún var ekki lengur "eina stelpan" sem Einar veitti athygli :) Ég verð að viðurkenna að það tók sinn tíma að vinna traust Atla og við Alda tókum hvort aðra í sátt eftir einhvern tíma enda mjög góð vinkona mín í dag. En allt var þetta nú þess virði. Úff, komin þokkalega út fyrir efnið!
Back to basics. Í dag vorum við síðan bara í rólegheitum að dúlla okkur heima, fyrir utan uppvasks-maraþonið sem tók alveg hátt í 40 mínútur. Við vorum semsagt ekki búin að vaska upp síðan fyrir partyið og hvert eitt og einasta glas heimilisins var skítugt! Það verður góður dagur þegar við loksins ákveðum að fá okkur uppþvottavél.
Ég ætlaði líka að vera svona súperdugleg í dag og fara að hjóla sem ég og gerði. Nema hvað að í miðjum hjólatúrnum þá fer ég að heyra eitthvað svona hljóð eins og það sé einhver fluga að koma öðru hvoru að mér. Svo stoppa ég og þá HEYRI ég að það er sprungið á dekkinu og það var ekkert smá gat! Hljóðið sem ég heyrði meðan eg var að hjóla var þegar gatið fór fram hjá bremsunni svona fff....ffff...ffff...fff. Þannig að auðvitað þurfti ég að labba alla leiðina til baka og teyma hjólið og það tók sko alveg hátt í hálftíma! En ég fékk samt ágætis æfingu útúr þessu og bíð spennt eftir harðsperrunum á morgun.
Ég veit að þetta er svakalega sundurslitinn texti en ég er að fara að lúlla núna og nenni ómögulega að laga hann samkvæmt aðferðafræði reglum.
Nighty-night...

10 ágúst 2006

Best að halda sig bara á malbikinu!

Ég hef nú alltaf talið mig vera svona lala í landafræði okkar stórmerkilega og frábæra lands ;) Kannski ekki súpersleip, veit t.d. ekki hvar Trékillisvík er (man einhver eftir Sigga sæta kennaranema?) en ég kunni þó allar blessuðu sýslurnar utanbókar á sínum tíma. Ég hef farið "Hringinn" nokkrum sinnum og kann að nefna svona flest það sem þykir merkilegt sem er á leiðinni þótt ég hafi oftast setið í bílveikispillu-móki afturí.
Nú ætlaði ég sko að vera heldur betur sniðug og fara í fríinu mínu á Vestfirði. Þetta er eflaust sá staður sem 99,9% ferðalanga sneiðir framhjá. Ég á það stundum til að vera súperbjarsýn og þá á sama tíma lítið raunsæ. Ég hef geinilega verið í einu svona kasti þegar ég pantaði einmitt sumarbústað hjá Landsbankanum, já bara næstum þvi í miðju Ísafjarðardjúpi. Fannst það alveg frábær hugmynd að skreppa þangað með kallinn og strákinn og ég lét ekki þar við sitja heldur bauð ég pabba, tengdó og systur hans Einars með. Jæja og nú fer svo að líða að þessari ferð eða eftir viku og ég er svona að skoða kortin og fatta bara að hvernig í and#*$ á maður að komast þangað??? Það er ekki mikið mál að fara hringveginn þ.e. ef maður ratar útúr bænum og keyrir BEINT AF AUGUM þá endar maður á Akureyri fyrr eða síðar. Það er annað mál með Vestfirðina! Það er hægt að velja úr mörgum leiðum (sennilega útaf færð) og meira að segja er hægt að taka ferju ef maður vill auka við fjölbreytnina í ferðamátum. Ég nefndi þetta vandamál við samstarfskonur mínar sem eru ALLAR utan af landi en þær gátu lítið hjálpað mér. Kommon, ef maður er útaf-landi-lið á maður þá ekki að kunna allt vegakerfið utanbókar? Það hélt ég! Allavegana þá byrjum við að leita að einhverjum innan bankans sem þekkir til þarna og viti menn við finnum hann Snorra sem er í Einkabanka-þjónustunni. Þannig að við hringjum í hann (svona erum við kammmó alltaf í LÍ) og hann er sko til í að hjálpa litla áttavillta borgarbarninu. Gaurinn þylur upp fyrir mig leiðina og meira að segja hvað er skemmtilegt að skoða þarna. Svo kemur í ljós að þessi maður (fæddur ´70) er búinn að kaupa hús í Súðavík og er að gera það upp. Ég sem hélt að það væri svo gott sem "ghost town" eftir hamfarirnar, sýnir hvað maður veit lítið. Hann segist vera 3 tíma að skunda í bæinn. Þorði nú ekki að spyrja meira út í þetta en ég trúi varla að hann ætli að búa þarna, ég meina ég veit að það er farið að tala um Kjarlarnes og Akranes sem nokkurskonar úthverfi höfuðborgarinnar en Súðavík? En það er samt sniðugt örugglega að eiga þetta sem sumarhús, veit að það er hægt að kaupa fínustu íbúðir á slikk (3-4 millur)á svona afskertari stöðum. En ætli ég láti það ekki bíða aðeins, fyrst skulum við sjá hvort ég rati í sumarbústaðinn og heim aftur !

07 ágúst 2006

Brúðkaupsafmæli - Pappírsbrúðkaup

Við Einar áttum 1 árs brúðkaupsafmæli í gær. Við vorum ekkert búin að plana þar sem við áttum von á að fara í útilegu en það var hætt við það vegna veðurs. Þannig að á síðustu stundu ákváðum við að slá til og gera eitthvað saman. Við vorum svo heppin að Hrefna og Egill gátu tekið Daníel í næturpössun. Þetta var fyrsta næturpössunin sem við höfum látið Daníel í og hann er nú orðinn næstum 14 mánaða. Maður var svona pínu stressaður (aðalega pössunarpíanna vegna) en að fá smá frí saman var svo sannarlega orðið löngutímabært.
Við skelltum okkur á Austur-India félagið og maturinn þar var geggjaður. Í fordrykk fengum við okkur Mango-Lassi sem er svona unaðslegur jógúrt drykkur og í forrétt fengum við okkur síðan Tandoribakaðann lax með kryddjurtum. Þetta var bæði rosalega gott (fæ alveg vatn í munninn) en það jafnaðist ekkert á við aðalréttinn. Einar fékk sér blöndu af kjöti bökuðu í Tandori ofninum og ég fékk mér risarækjur sem voru allsvakalega kryddaðar. Eftir matinn ákváðum við að rölta aðeins um Laugarveginn í góða veðrinu og það var þvílíkt næs og rómó. Svo fórum við bara heim og áttum rólega stund þar yfir spilum og spjalli. Það var svo alveg GEÐVEIKT að fá að sofa út saman í fyrsta skipti síðan að Daníel fæddist!
Þegar ég er að skrifa þetta hérna þá hljómar þetta dáldið óspennandi en við áttum alveg frábært kvöld bara við tvö ein saman. Það er alveg nauðsynlegt að fá smá, bara pínu, frí frá Daníel a.m.k. einu sinni á ári til að endurhlaða batteríin. Við vorum nú samt strax farin að sakan hans um leið og við vöknuðum. Spurning hvort við semjum ekki bara við Hrefnu og Egill að gera þetta að árlegri brúðkaups-afmælis-gjöf?
p.s. Fann ekki betri brúðkaupsmynd af okkur þar sem við eigum enn eftir að skanna inn pro-myndirnar. Tengdamamma á það til að festast í þessum ská-myndatökum og allar myndirnar sem hún tók af okkur þennan daginn eru svona :D

05 ágúst 2006

Aðeins að breyta til

Ég er orðin rauðhærð... eða því sem næst. Ljósu strípurnar fengu að fjúka og rauðar komnar í staðinn. Mér finnst þetta nú kannski ekki mikil viðbrigði enda hef ég oft og mörgum sinnum verið rauðhærð áður og fyrir utan það þá stoppa ég stutt við hvern lit og greiðslu. Humm, nú fékk ég hugmynd. Kannski ég ætti að skanna inn nokkrar myndir sem ég á af mér í gegnum tíðina og bera þær saman hérna. Spurning?
Ég er auðvitað skítfallinn í þessu átaki mínu sem ég þóttist vera í. Ég veit líka alveg hvað varð mér að falli. Það var þessi vitleysis hugmynd í henni Ásdísi að ef maður væri í boði þá mætti maður fá sér pínu flís af svona köku og pínu flís af annari köku, bara svona til að vera með. Ég tók þessu fegins hendi en fyrr en varði var ég búin að teygja skilgreininguna út í að ef manni væri líka boðið nammi þá mætti maður fá einn mola og svo mátti ég fá pínu nammi á laugardögum af því að það eru nammidagar.... Svo er það að kaupa nammi líka svo mikill ávani, alveg ótrúlegt. Ég labba stundum að kassanum þar sem er alltaf troðið af sælgæti og mig langar bara að kaupa eitthvað, bara hvað sem er nánast! ÉG HEF GJÖRSAMELGA ENGA SJÁLFSSTJÓRN! Ætli ég yrði ekki að láta svipta mig fjárræði ef ég ætlaði að standa mig í átakinu. En það þýðir ekkert annað en að byrja uppá nýtt, batnandi manni er best að lifa (grennast). Ég er meira að segja farin að skoða það að fara í líkamsrækt og velta fyrir mér hvað árskort kosta. Ég hata líkamsrækt eða öllu heldur líkamsræktarstöðvar. Mér finnst maður oftar en ekki líta út eins og algjör hálviti hoppandi og skoppandi eins apar í hóp fyrir framan spegil. En ég gæti sætt mig við spinning, var nú einu sinni alveg hreint ágæt í því. Það var þegar ég var 16-17 ára og ég, Eva og Tulla vorum í Erobikk-sport í Faxafeninu. Ahhh.. good times.
Jæja það er á stenfuskránni hjá mér í dag að taka allsvakalega til hérna, fara í Smáralind, kíkja í góðann göngutúr og elda svo eitthvað gott í kvöld kannski.
Í þessum töluðu orðum þá sitja strákarnir mínir hérna hjá mér báðir sofandi. Einar er semsagt sofnaður með Daníel sofandi í fanginu á sér! Ætla að reyna að ná mynd af þessu og ef það tekst þá birti ég hana hérna ef Einar leyfir!
Bæbæ.

03 ágúst 2006

Hehehe!!!!


Fann þessa núna rétt áðan. Þarf að segja meira ?!?

02 ágúst 2006

Sérviska

Það eru allir með einhverjar sérviskur sama hvort þeir gera sér grein fyrir því og vilja viðurkenna það eða ekki! Ég held að ég sé nú alveg í meðallagi en það væri samt gaman að heyra hvaða sérvisku fólk er með.
Hérna kemur listinn minn:

* Ég borða aldrei endann á brauði, pylsu, hamborgara og fl. - Ég veit ekki afhverju ég geri þetta ekki en yfirleitt finnst mér síðasti bitinn eitthvað svo ólystugur þannig að ég hef bara gert þetta af vana og pæli ekki í þessu.

* Ég geng aldrei yfir holræsi - Þetta er nú kannski frekar hjátrú sem Ebba tróð inn hjá mér þegar ég var yngir. Ég er nú reyndar ekki hjátrúafull en einhvernveginn hef ég bara vanið mig á það að sneiða framhjá holræsum.

* Ég borða alltaf fyrst súkkulaðið utan af frostpinnum og skil marsipanrúllur að - veit ekki afhverju en kannski save the best for the last?

* Ég skoða alltaf bók í bak og fyrir áður en ég byrja að lesa hana - Ég tékk á því hvað hún er löng, hver gaf hana út og æviágrip rithöfundar. Finnst þetta bara skemmtilegt þó ég geri þetta án umhugsunar.

* Ég skil alltaf eftir endann á banananum, þið vitið þar sem er svona stubbur - Einu sinni heyrði ég að það gætu verið pöddur þarna, nóg fyrir mig til að sleppa þessu fyrir lífstíð!

* Ég vil alltaf hafa allt nákvæmt og akkúrat sem ég geri þ.e.a.s. verður að passa innan rammans - Ég smyr alla brauðsneiðina jafnt og líka útí hornin, svo verður osturinn líka að passa akkúrat. Ef osturinn stendur út fyrir þá verð ég að klípa af honum. Ef uppvaskið er meira en kemst fyrir á uppþvottagreindinni þá verður afgangurinn bara að bíða þar til fyrra hollið er búið að þorna!

* Ég passa mig að gleypa aldrei eða sem minnsta mögulega loft þegar ég er að borða - Veit ekki hvaðan þetta kemur en sennilega frá mömmu. Þegar ég drekk gos þá geri ég eitthvað þannig að loftið/gasið aðskilst, get ekki útskýrt betur.


Humm.... eitthvað varð listinn minn styttri en ég átti von á og ég sé líka að þetta tengist mikið mat, hvað segir það um mann? Ætli það sé ekki miklu erfiðara að segja eitthvað um sjálfann sig þar sem maður er svo vanur að gera þetta og finnst þetta eðlilegt. En maður vill hafa sínar sérviskur og það fer stundum meira að segja í taugarnar á mér þegar ég sé annað fólk gera öðruvísis. Ég tek mér bara tíma í að smyrja brauðsneið handa Daníel þótt hann sé hoppandi brjálaður og öskrandi við hliðina á mér. Það gefur mér meira að gera þetta "rétt" en að þagga fyrr niður í Daníel. Svona er þetta sérstakt.