04 október 2007

Hvað er ég að gera?

Klukkan er hálf 2 og ég þarf að vakna eftir 5 tíma til að hefja mína daglegu rútínu. Ástæðan fyrir því að ég er vakandi er sú að ég sofnaði AFTUR með Daníel í kvöld og vaknaði ekki fyrr en kl. hálf 12. Er ótrúlega fúl útí sjálfa mig því ég missti af þætti sem ég ætlaði að horfa á í kvöld. Hvað gerir maður þegar maður lendir í svona og finnst maður hafa verið svikinn um heila kvöldstund friði og "gera það sem ég vill" tíma? Ég byjaði auðvitað á því að fara inní eldhús og fá mér stórt mjólkurglas og súkkulaðikex, en ekki hvað? Síðan er ég búin að þrjóskast við að fara að sofa og horfði á 2 Grey´s þætti í röð. Núna finn ég mér ekkert meira að gera en langar ekki að fara að sofa og þess vegna er ég sennilega að blogga. Mér finnst alveg ótrúlegt ef einhver á eftir að nenna að eyða tíma sínum í að lesa þetta!
Ég sakna Einars alveg ótrúlega. Ég fann sérstaklega fyrir þessu í gær þegar Daníel var fyrst búinn að gubba í Krónunni og svo yfir hálfa stofuna seinna um kvöldið. Ég var dauðuppgefin þegar ég var búin að koma honum í háttinn og þrífa allt og lyktaði sjálf af ælu og svita þegar ég loksins settist niður. Þá fannst mér ég vera virikilega ein þar sen ég sat í hljóðri íbúðinni og hafði engann til að deila þreytunni minni með....

01 október 2007

Punktablogg hjá mér líka

Hef annaðhvort ekki haft tíma til að blogga alveg rosalega lengi eða þegar ég loksins fæ smá tíma fyrir sjálf mig þá nenni ég yfirleitt ekki að eyða þeim í þetta.... En einhver verður að punkta mitt viðburðaríka og æsispennandi líf niður!
  • Daníel er búinn að vera með þurran hósta í viku. Fáum lítinn svefn á nóttunni vegna hóstakasta. Fór loks með hann til læknis eftir að vera búin að prófa allt annað og læknirinn sagði að það væri ekkert að honum, stálhraustur. Læknirinn sagði að allar hóstamixtúrur væru gagnslausar þar sem nú væri bannað að framleiða þær með kódíni. Skrifaði lyfseðil fyrir parkódín sem ég á að gefa 1/2 fyrir svefn. Á víst að vera mjög hóstastillandi.
  • Fengum tilboð um íbúð í síðustu viku í DK. Rosalega fín íbúð 57 fm og leigan um 60.000 kr á mánuði og allt innifalið. Fengum hana ekki því Einar hafði misskilið inntökuskilyrðin. Kannski bara fyrir bestu því hún var frekar langt í burtu eða 45 mín með lest niðrí bæ. Höldum áfram að leita.
  • Einar fór með Ebbu og Láru (o.fl.) á djammið í Köben. Pínu abbó út í Einar verð ég að viðurkenna fyrir utan hvað það er skrítið að maðurinn minn er með vikonum mínum án mín. En rosalega fegin að þær drógu hann með sér.
  • Fór í sumarbústað um helgina með Völu og Jökli. Mjög fínt. Gott að breyta um umhverfi.
  • Er búin að vera að taka til í tæpa 2 tíma í kvöld þar sem ég var að skila sameigninni af mér + drasl eftir sumarbústaðaferðina.
  • Gengur ekkert með Grey´s vegna tímaskorts.... humm gæti verið að horfa á það núna...
  • Vægur vinnuleiði farinn að láta kræla á sér þar sem einungis 74 dagar eru þangað til ég hætti en hver er að telja? Ég stend sjálfa mig að því að vera hætt að vanda mig og hugsa æ þetta er allt í lagi, verð hvort sem er farin áður en nokkur fer að pæla í þessu....
  • Klippikonan mín er hætt að klippa vegna grindagliðnunar og ég er ónýt. Finnst ekkert verra en að leita að nýjum hárgreiðsludúdda og þetta hafa yfirleitt verið verstu tímabil hár-sögu minnar! aarrgggg!
  • Mental note I: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI!
  • Einar kemur eftir 12 daga og verður þá heima í viku. Mig er farið að hlakka til... held ég. Er eiginlega búin að bæla söknunartilfinningar mínar alltof mikið niður með mikilli vinni og verkefnum því þegar ég fer að hugsa of mikið um aðskilnaðinn þá missi ég algjörlega stjórn á tárakirtlunum.
  • Mental note II: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI Í ALVÖRUNNI!
  • Daníel er byrjaður að syngja á fullu lög sem hann hefur lært í leikskólanum. Þarf að fara að hafa mig alla við ef ég ætla ekki að detta afturúr.
  • Fékk að horfa á setningu alþingis í beinni útum gluggann hjá mér í dag. Eeeeelskaaaaa menn í búningum, sérstaklega lögreglu og hermannabúningum! Veit ekki hvað það er sem er svona flott við þá en þeir eru bara svo hraustlegir, snyrtilegir og flottir! Nei, ég er ekki blind þótt ég sé gift!

17 september 2007

Helgin

Einar kom á fimmtudagsnóttina og fékk að vera heima með Daníel veikan á föstudaginn. Við vorum síðan öll meira og minna veik alla helgina. Hortissjú og teppi hvert sem var litið hérna heima. Einar fór aftur til DK áðan og ég sit heima fárveik með Daníel líka veikann en hann er vonandi að ná sér. Já og þetta er eigninlega bara helgin í stórum dráttum. Fun...

11 september 2007

Skype

Ég gleymdi að minnast á það að ég er aðvitað komin með skype eða öllu heldur búin að virkja það og kíki við flest kvöld. Ég er meira að segja með webcam, endilega addið mér inn hjá ykkur notendanafnið er: karenolgaarsalsdottir

09 september 2007

Einar kemur heim...

... á fimmtudaginn. Reyndar lendir vélin hans ekki fyrr en hálf 12 um kvöldið sem þýðir að hann verður sennilega ekki kominn til mín fyrr en að ganga hálf 2 en ég kvarta ekki. Hann verður síðan hérna fram á mánudagsmorgun en þarf að fara eldsnemma um morguninn til að ná í tíma eftir hádegi. Það er dáldið erfitt að útskýra fyrir Daníel að pabbi sé "bráðum" að koma heima. Bráðum hjá honum þýðir kannski eftir 1-2 klukkutíma gerist X. Ég get heldur ekki sagt að eftir 5 daga þá komi pabbi heim því ekki kann hann að telja og enn síður myndi hann skilja hvað ég væri að tala um þegar ég tala um að pabbi komi á fimmtudaginn. Ég hef því haldið mig við bráðum en reynt að tala kannski bara minna um það til að valda honum ekki vonbrigðum þegar hann fattar að nú ætti pabbi að vera kominn.

Í gær var síðan Grafarvogsdagurinn og við Vala fórum með strákana á Korpúlfstaði að skoða vinnustofur og sýningar listamanna sem eru staðsettir þarna. Eftir hádegismat röltum við síðan á Foldabókasafn þar sem við tókum helling af barnabókum og nú eru báðir strákarnir komnir með bókasafnsskírteini. Þegar heim var komið var grenjandi rigning og við Daníel poppuðum og kúrðum síðan uppí sófa með teppi og vorum að lesa saman nýju barnabækurnar sem við höfðum tekið á bókasafninu. Mjög huggulegt að sitja svona saman og hafa það kósý meðan að rigningin glummdi fyrir utan.

p.s. næsta föstudag (14.sept) mun ég afhenda uppsagnarbréfið mitt og þá er opinberlega bara 3 mánuðir eftir af vinnunni!

06 september 2007

Traffík

Þar sem ég er að leggja af stað með Daníel á svo hræðilegum tíma í leikskólann meðan að hann er í aðlögun þá lendi ég í fáránlegum umferðarteppum. Ég eyði á gríns svona 20-25 mínútum á hverjum degi við að keyra að heiman og uppí Grænuhlíð rétt hjá Suðurveri. Mér er ósjálfrátt hugsað til hvernig hægt er að leysa þennan hnút meðan að ég bíð í bílnum á morgnana. Þegar við vorum úti í Póllandi þá vorum við fljót að læra það að nota ekki strætisvagna á háannatímum í borginni heldur notast þá við sporvagnana. Þannig að mér datt í hug: hvernig væri að leggja teina eftir Miklubrautinni endilangri t.d. byrja í Mosó eða Kjalarnesi og niður í bæ. Svo nálægt stoppistöðvum yrðu bílastæði t.d. hjá Grafarholti og fleiri stöðum þannig að maður myndi bara keyra að stoppistöð og taka næstu lest niðureftir. Lestir myndu auðvitað ganga bara með 10 mín millibili á háannatíma. Ég geri mér fullkomnlega grein fyrir að þetta myndi ekki hennta öllum en ég reikna fastlega með að a.m.k. 30% af ferðalöngum úr úthverfum borgarinnar gæti nýtt sér þetta.
Ef þetta myndi ganga vel þá væri hægt að gera það sama fyrir sunnan. Leggja t.d. teina frá Keflavík og niður í bæ. Kannski eruð þetta bara draumórara en eitt er víst; mér er svo sannarlega farið að leiðast útsýnið frá Miklubrautinni á morgnana!

05 september 2007

Lífsins gangur

Óumflýjanlega er lífið að færast í eðlilegt horf eftir "brotthvarf" húsbóndans af heimilinu. Við Daníel erum að spjara okkur ágætlega verð ég að segja og þessi aukna vinna og álag er búið að venjast og ekki lengur álag þannig að ég finni fyrir því. Ég er ánægð með sjálfa mig að geta séð um hlutina sjálf og haldið heimilinu eðlilega gangandi fyrir mig og strákinn minn. Ég er búin að taka flest allt til nema að skúra þar sem ég sofnaði óvart í kvöld í rúminu hans Daníels í staðinn fyrir að taka til eins og ég geri venjulega á kvöldin eftir daginn. Já, ég er farin að vera allt í öllu hérna og fjarlægði meira að segja eina stærstu óléttu kóngulóarhlussu sem ég hef séð. Hún var hafði skriðið inn um gluggann og hékk makindalega fyrir ofan náttborðið hjá mér. Þurfti aðeins að tala við sjálfa mig og róa áður en ég réðst á hana með krukkuna en tókst verkið samt og nú getum við Daníel sofið róleg. Eftir á að hyggja þá hefði ég auðvitað átt að nota ryksuguna á hel%&$ið eins og maður gerði við hrossaflugurnar í gamla daga á Guðrúnargötunni.
Það er margt skrítið við að búa allt í einu ein eftir svona mörg ár í sambúð. Mér líður hálfpartinn eins og ég sé skilin... En það eru hins vegar margir kostir í stöðunni líka.
  1. Ég er t.d. búin að skipta hjónarúminu í þrennt þar sem ég er með sitthvorn koddann á hverjum stað og ég færi mig síðan á milli eftir því með hvaða kodda ég er í stuði til að sofa með.
  2. Ég þarf ALDREI að bíða eftir klósetinu eða sturtunni þó að ég geti því miður ekki lengur leyft mér að fara í sturtu á morgnana vegna Daníels.
  3. Ég get breytt íbúðinni eins og mér sýnist og er t.d. búin að færa allt tölvudót inní vinnuherbergi þar sem það á heima.
  4. oooooog mér dettur ekki meira í hug! Fyndið var alveg búin að finna fullt um daginn.

Ég finn líka að vinir og vandamenn láta aðstæður mína sig miklu varða. Ég er mjög þakklát öllum en í raun er ástandið ekki eins slæmt og ég hélt að það yrði og ég er alveg að bjarga mér ágætlega. Heimsóknir og símtölu eru hins vegar áfram vel þegin þar sem það eru takmörk sett hvað ég get rætt mikið við sjálfa mig.

Svona í lokin þá er Daníel að standa sig vel í leikskólanum í aðlöguninni. Á morgun á hann að vera fram yfir hvíldina og það verður spennandi að sjá hvort hann sé tilbúinn að leggja sig með krökkunum. Hann virðist samt vera dáldið lítill í sér á köflum enda miklar breytingar bæði heima og að heiman hjá honum og hann er búinn að vera dáldið á flækingi undanfarna daga þar sem ég þarf líka að vinna þótt hann sé í aðlögun. Ég reyni að gera eitthvað skemmtilegt með honum þegar við erum komin heim og veita honum næga athygli. Vonandi gengur þetta yfir fljótlega.

01 september 2007

Þreytt eftir frí

Komin heim úr 2gja vikna dvöl í Póllandi með smá viðkomu í Danmörku á heimleiðinni. Einar er semsagt farinn til DK og skólinn hjá honum er byrjaður. Ég sakan hans meira en ég get úrskýrt enda höfum við aldrei verið aðskilin í meira en 4 daga síðustu 7 árin.
Daníel er hrikalega erfiður og algjör martröð í ferðalögum en þetta er víst aldurinn. Ég er ennþá dauðþreytt eftir ferðalagið og íbúðin er öll í drasli því ég hef litla orku til að gera eitthvað í því. Langar helst bara að fara að sofa en ég verð í það minnsta að ganga frá þvottinum og leirtauinu áður en að því verður. Á morgun fer Daníel í pössun til tengdó og ég að vinna í nokkra klukkutíma því Daníel er að halda áfram í aðlögun á leikskólanum og ég mun því sennilega lítið komast í vinnuna næstu daga. Vona bara að þetta muni ganga vel enda er hann spenntur þegar við tölum um leikskólann.
Ég segi kannski betur frá ferðalaginu í næsta pósti.
Það er samt ein bók sem mig langar til að segja frá áður en ég hætti. Ég var að enda við að kaupa bókina "501 must-read books". Þetta er algjör snilldarbók sem segir frá 501 áhugaverðustu bókum að mati gagnrýnenda. Bókinni er skipt í kafla eftir tegund bókmenntana t.d. nútímabókmenntir, saga, vísindaskáldsögur og fleira. Um hverja bók er stutt ágrip, gagnrýni og sagt frá höfundinum og í sumum tilfellum hvaða áhrif tiltekin bók hafði á samfélagið t.d. ef hún var bönnuð eða olli uppþoti eða hugarfarsbreytingum og þess háttar. Allavegana þá ætla ég að sökkva mér í þessa bók og finna mér góða bók til að lesa. Anyways þvotturinn bíður....

09 ágúst 2007

Nú styttist í annan endann

Já nú er heldur betur farið að styttast í að hann Einar fari til Danmerkur í frekara nám. Ég er persónulega búin að taka mitt kvíðakast á þetta og gerði það fyrir ca.2 mánuðum en eftir því sem þetta færist nær þá er þetta að verða raunverulegra og raunverulegra. Stundum stend ég mig að því að hugsa að þetta sé ekkert að fara að gerast, það muni pottþétt eitthvað koma uppá sem muni breyta öllu saman en á sama tíma er maður spenntur og líka pínu áhuggjufullur.
Ég hef t.d. aldrei verið "einstæð" móðir áður og hvernig ætli það sé að elda fyrir einn og hálfan? Kann maður svoleiðis skammtastærðir? Hvernig ætli það sé að vera ekki alltaf háður einhverjum örðum um tíma og aðrar auðlindir t.d. bílinn en um leið að einhver annar sé háður manni helmingi meira? Hvernig ætli sé að fara ein að sofa á kvöldin, kvöld eftir kvöld? Og hvernig á ég að útskýra fyrir Daníel að pabbi sé í öðru landi en sé ekki fluttur inní tölvuna (webcam) ?

Þetta eru stórar áskoranir framundan og mig hlakkar að vissu leyti að takast á við þær því þær munu svo sannarlega gera mig reynslunni ríkari. En það eru hins vegar líka kostir við að Einar fari út... Ég get t.d. algjörlega stjórnað sjónvarpsdagskránni sjálf. Það verður enginn heima til að freista mín með óhollustu ;-) Það verður helmingi minni þvottur og síðast en ekki síst þá ræð ég öllu ein!!! Nú er það bara heilaþvottu eina ferðina enn: þetta eru mjög jákvæðar breytingar og þig hlakkar til að takast á við þær! Svo getur maður alltaf verið þakklátur fyrir það að Einar skyldi velja Danmörk fram yfir Kanada sem var inní myndinni í byrjun sem námsland.


Í öðrum fréttum þá er Daníel búinn að fá það staðfest að hann má byrja í aðlögun 20. ágúst. Verst að við verðum ekki á landinu þá :( Við erum semsagt búin að senda póst og biðja um að fá að koma með hann fyrir helgina því þá verður Einar í fríi því annars þarf ég að taka ein alla aðlögunina með ekkert sumarfrí sem þýðir a) launalaust frí sem ég get ekki leyft mér b) farið með hann í aðlögun á daginn óg setja hann síðan í pössun (guð má vita hvar) til að ég geti unnið þetta upp. Hvorugt finnst mér vera álitlegur kostur og ég vona bara að við fáum að troða okkur aðeins inn áður en við förum til að þetta taki þá í það minnst skemmri tíma eftir heimkomuna.
Annars er Daníel held ég mjög spenntur fyrir leikskólanum og talar mikið um að Jökull sé á leikskólanum sem er í hverfinu okkar. Hann mun hafa gott af því að fara og vera innan um aðra krakka.


30 júlí 2007

Löngu komin heim + helgin

Hvernig var í Búlgaríu? FRÁBÆRT! Gott veður, mikil afslöppun og leti út í eitt! Ég var samt komin með dáldið nóg af þessu góða lífi í lokin og farin að langa að komast heim þar sem hægt var að gera eitthvað annað en að hanga á ströndinni eða eitthvað álíka. Myndir eru á síðunni hans Daníels sem fór auðvitað á kostum í ferðinni og allir dýrkuðu! Þetta eru rúmlega 100 myndir en þetta er rjóminn af rúmlega 230 myndum sem við tókum í ferðinni!

Það sem er hins vegar ofarlega í huga mér þessa dagana er dáldið fyndið atvik sem gerðist um helgina. Við Einar fórum semsagt með Daníel í fyrstu tjaldútileguna hans núna um helgina. Samkvæmt límiðanum á tjaldinu okkar þá höfum við víst ekki farið í útilegu síðan 2004! Vá hvað útilegur hafa breyst mikið á þessum stutta tíma! Þegar litið var yfir tjaldsvæðið þá var ekki eitt einasta tjald að sjá heldur var það troðfullt af tjaldvögnum, húsbílum og hjólhýsum og jeppum! Við vorum í einu af 3 tjöldum á svæðinu - TJALDsvæðinu. Allavegana þá erum við í góðum gír fyrir utan tjaldið okkar að grilla sykurpúða og spjalla þegar nokkrir krakkar labba upp að okkur.
Krakki1: Eruð þið bara í tjaldi?
Við: Já
Krakki1: Er ykkur ekkert kalt?
Við (dáldið hissa)? Nei
Krakki2 (10 ára): Eruð þið fátæk?

Þarna sprungum við úr hlátri en viðurkenndum eins og var að við værum bláfátæk og hefðum engann veginn efni á að kaupa okkur milljón króna skuldahala. Krökkunum fannst við eitthvað skrítin og fóru en eftir sátum við í pælinum um hvert æska landsins stefndi og hve lífsgæðakapphlaupið í íslandingum væri búið að ná nýjum hæðum þegar börn vita ekki einu sinni hvernig það er að gista í tjaldi! Ekki lauk þessu þarna því við virðumst hafa verið umræðuefnið á svæðinu því skömmu seinna sáum við fólk standa rétt hjá og gjóa augunum til okkar. Svo kemur kona um sextugt og segir: rosalega eru þið lítil sæt fjölskylda í litlu dúllutjaldi. Ég sagði auðvitað konunni að við værum fátæk samkvæmt fyrri greiningu. Hún vissi ekki alveg hvernig ætti að taka þessu og tók uppá að hughreysta okkur með því að endurtaka hvað við værum miklar dúllur áður en hún hrökklaðist í burtu. Við Einar höfðum gaman af þessu og eyddum afgangnum af kvöldinu í að finna góð mótsvör sem við hefðum átt eða getað notað í báðum tilfellum.

Niðurstaðan er þessi: Eins gott að mæta ekki í tjaldi á tjaldsvæði ef þú vilt ekki verða fyrir aðkasti :)

06 júlí 2007

Eg er i orlofi!

jaja gat ekki stadist ad skrifa sma herna inn vist eg for a netid herna a hotelinu a annad bord. Vona ad tetta skiljist allt.
Vid erum buin ad hafa tad rosa gott og vedrid er buid ad leika vid okkur nema i gaerkvoldi ta var mikid rok tannig ad vid forum snemma heim. I dag er 32 stiga hiti og sjorinn er 23 gradur. Tad var skyad i morgun tannig ad vid forum bara a leikvollinn med Daniel. Daniel elska sjoinn og finnst skemmtilegast ad sitja sandinum eda ta ad elta oldurnar og tegar tar na honum ta skrikir hann hatt! hann er audvitad eftirlaeti allra herna enda eru ljoshaerd born med bla augau og ljosa hud sjaldgaef a tessum slodum. Allir vilja klappa honum og brosa til hans. Hotelid er frabart og mjod god adstada. Forum i gaer ad versla inn og komum heim med 3 innkaupapoka fyrir um 3.000 kall. Tad er odyrt herna en ekki ef madur passar sig ekki. Jaja tetta er gott i bili. Ja vardandi postkort ta hef eg ekki fundid postkassa herna ennta en vid aetlum til Albena um helgina og sennilega til Varna bradlega tannig ad kannski verdur eitthvad tar. Heyrumst!

28 júní 2007

Afleiðngar líkamsræktar....

Ég fór í svakalegan tíma á þriðjudaginn í bodyshape eftir smá hlé. Ég var svo þreytt eftir tímann og dauð í kroppnum að ég ætlaði varla að geta keyrt heim. Þegar heim var komið þá var ekki séns að lyfta Daníel upp hvað þá að sjá um að hátta hann! Þetta var samt ekki í líkingu við það sem ég vissi að biði mín....
Miðvikudagur. Ég vaknaði en þorði varla að hreyfa mig vegna ótta við sásauka. Gafst að lokum upp þegar Daníel vaknaði því ég vissi að það væri bara tímaspursmál hvenær hann myndi hoppa ofan á mig. Harðsperrurnar voru ekki eins slæmar og ég hélt þær yrðu... þær fóru hins vegar versnandi eftir því sem leið á daginn. Ég vissi að ég yrði að fara á æfingu ef ég ætlaði að geta farið framúr daginn eftir en vegna anna og ótrúlegra óþæginda þá gat ég ekki hugsað mér að hreyfa mig.
Dagurinn í dag. Ég vaknaði nokkrum sinnum um morguninn vegna sársauka í vöðvunum bara við að snúa mér í rúminu!!! Það var vont að ANDA!Þarna var Daníel farinn að pota í mig og draga mig frammúr þannig að ég stulaðist framúr til að fara í heita sturtu...það tók tvær tilraunir að komast yfir brúnina á baðkarinu. Eftir sturtuna bruddi ég tvær parkódín og var til í slaginn. Næsta hindrun var stiginn niður. GOD! Ég var virkilega að spá í að bara láta mig rúlla niður, yrði örugglega skárra.
Þegar í vinnuna var komið tók við annar stigi, ég afréð að leggja í hann enda parkódínið ekki alveg komið í gang þannig að ég tók lyftuna upp á 1. hæð. Þegar ég var mætt við skrifborði þá reyndi ég að spara allar hreyfingar yfir daginn og rúllaði mér á stólnum ef það þýddi að ég gat möguleg komist hjá því að standa upp. Um hádegi var ég engu skárri og eftir að vera búin að vera skemmtiefni fyrir minn helming skrifstofunnar tók ég stórann skammt af íbufeni og uppúr því fóru harðsperrurnar að skána. Eftir vinnu fórum við síðan í sund og það gerði gæfumuninn. Ég gat í það minnsta gengið upp stigann hérna heima án þess að gefa frá mér eitt einasta hljóð þannig að það er nokkuð gott. Á morgun er annar bodyshape tími en því miður þá er ég að fara á tónleikana The Wall þannig að ég kemst ekki.... æ ég veit ekki hvern ég er að reyna að blekkja, það er langt þangað til að ég mun treysta mér til að fara í annan svona tíma :D

p.s. tæknilega 3 dagar í Búlgaríu!!!

21 júní 2007

How quick they grow!

Hann Daníel er alveg ótrúlegur og þroskinn þeysist áfram. Daníel er farin að tengja mikið orðin saman sem hann kann og út koma oft ótrúlega fyndnar meiningar.
Eins og sumir vita þá á ég það til að vera dáldið stjórnsöm og meira að segja afskiptasöm á köflum myndu sumir segja. Hann Daníel hefur kannski ekki erft frá mér neitt útlitstengt en hann hefur svo sannarlega marga skapgerðarþætti sem koma beint frá mér! Hann er farinn að vera dáldið frekur og lætur ganga mikið á eftir sér. Auk þess er hann farinn að skipa fólki mikið fyrir. Hann á það til að fara út á svalir ef krakkar eru að leika sér í garðinum og kalla (öskra) yfir þá alskyns skipanir sem hvorki þau né við skiljum. Það eina sem við skiljum er að hann bannar þeim að gera þetta eða hitt og vill oft á tíðum að þau hætti einhverju! Svo í gær þá tók hann pabba sinn algjörlega fyrir. Þetta var semsagt um eftirmiðdaginn og það var opið útá svalir þar sem við erum með borð og stóla.

D: pabbi út
E: nei ekki núna Daníel
D: út núna!
E: ok
D: pabbi sitja
E: (gáttaður sest)
D: pabbi ekki sitja!
E: (yfir sig hrifinn af setningunum) ok og stendur upp og fer inn
D: NEI! Pabbi út!

Þarna er ég farin að veltast úr hlátri inní eldhúsi. Þetta er alveg ótrúlegt að um leið og hann er farinn að geta tjáð sig eitthvað þá byrjar hann á að skipa okkur fyrir hægri vinstri! Greinilega sonur minn!
Ég er voðalega hissa á þessu skyndilega tali því þetta gerðist næstum því allt á bara 1-2 dögum að hann fattaði að tengja þetta saman. Hann kann fleiri fleiri orð en þarna loksins fattaði hann hvað hann ætti að gera, alveg eins og þegar maður lærir að lesa... þetta bara allt í einu smellur!


Í morgun var hann síðan að tjá sig um það að hann vildi ekki fara til dagmömmunnar heldur vera heima að kúra. Getur einhver ímyndað sér eitthvað betra en að vera heima með barninu sínu og kúra bara undir teppi og hafa það huggó? Ekki ég allavegana þannig að ég þurfti að taka á öllu mínu til að neita honum um þetta og skella honum beint í fötin. En núna um leið og Daníel er byrjaður að tala þá er hann farinn að gabba mig enn meira. Áðan vorum við að fara í bað. Þá segir minn allt í einu "Daníel kúka". Ég auðvitað hendist af stað og kippi honum blautum uppúr og vonast eftir fyrstu koppaferðinni. En allt kemur fyrir ekki og Daníel viðurkennir að hann þurfti ekki að kúka! Skamm skamm Daníel fyrir að gabba mömmu svona þannig að uppskeran var aðeins rennandi blautt gólf.

Annars er lítið að gerast núna. Kári og co. voru að fara heim til US í dag þannig að við erum búin að endurheimta íbúðina okkar aftur. Það er vissulega mjög gaman að hafa gesti en þegar þetta er í lengri tíma þá er maður alltaf ánægður að hafa húsið útaf fyrir sig. Alda kemur á sunnudagskvöldið og þá megum við sennilega búast við því að Daníel verði tekinn í gíslingu af henni. Lára var að klára að verja lokaverkefnið í gær og henni gekk bara mjög vel þannig að hún kemur til landsins um helgina. Já svo er það bara tónleikar næsta föstudag og væntanleg útskriftarveisla helgina þar á eftir og svo út 2. júlí. Semsagt allt frábært og margt skemmtilegt í gangi og ekki annað að sjá nema að það sé tóm gleði framundan

kv,

07 júní 2007

Á maður að þora að vona?

Ég er búin að vera að velt mér dáldið uppúr þessu skítaveðri síðustu daga enda sit ég allann daginn við risastórann glugga og sé fólk rigna niður daglega. Alveg ótrúlegt hvað þetta getur verið niðurdrepandi. Ég hinsvegar kíkti á spánna nokkra daga fram í vikuna og ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég sá þetta:


18 Stiga hiti!!! OG sól! Annað hvort hefur einhverjum tekist að hakka sig inná veðurvefinn hjá mbl eða þá að spáin er gerð af sumarstarfsmanni ;)

Hvað fleira er framundan? Atli litli frændi minn(stóri frændi Daníels)á afmæli akkúrat 11.júní (spáin er 11.júní) þannig að hann fær prýðisgott veður til að spila fótbolta og annað skemmtilegt. Þetta er enginn smástrákur sko, við erum að tala um að gaurinn er að verða 9 ára takk fyrir! Hlakka til að finna handa honum eitthvað skemmtilegt, maður verður nú að standa sig í frænkuhlutverkinu. Beint á eftir Atla á ekki minni maður en Daníel Máni sjálfur sem á afmæli þann 13.júní og auðvitað langamma Daníels líka. Nóg að gera í afmælisgeiranum. Veit ekki alveg hvernig við höldum uppá afmælið en það væri gaman að geta kannski haldið það utandyra (minna vesen og færri horn í vegi hlaupandi krakka). Ég er hins vegar alveg blankó hvað varðar afmælisgjafir handa stráknum. Væri nú bara skynsamlegast að gefa honum eina bók og leggja inná banka hjá honum en mann langar alltaf til að gera eitthvað meira...
Anyways moving right along! Næst er það 20. júní sem er dagur sem ég er búin að setja á reminder hjá mér. Strax um morguninn á ég að vera að senda út jákvæða strauma út til DK þar sem Lára verður fyrst á svið um morguninn að verja flotta lokaverkefnið sitt. Þetta er svakalega flott hjá þér dúllan mín og þú átt eftir að rúlla þessu upp. gangi þér vel!
29.júní erum við Einar síðan búin að splæsa á okkur miðum á The Wall sem Sinfóníuhljómsveitin mun flytja ásamt Dúndurfréttum í Laugardagshöllinni. Langt síðan við Einar höfum gert eitthvað annað seman en að fara í bíó og ég held að þetta verði þrusustuð. Ég man enn þá eftir þegar maður fór á þetta í uppfærslur Versló þegar ég var í 10.bekk í Hvassó. Ég var ekki alveg með á nótunum þá um hvað var að gerast en fannst bara töff að fara á sýningu hjá Versló. Nú er öldin önnur. Við Einar erum búin að heita okkur því að við ætlum að nýta þessa rúmlega 2 mánuði sem við eigum eftir saman til hins ítrasta þanngi að það er spurning hvað maður gerir næst.

Nú er Erna í vinnunni komin úr 3gja mánaða heimsreisu og alveg að springa af nýrri reynslu og minningum. Við vinkonurnar í vinnunni erum duglega að reyna að spyrja hana spjörunum úr en það er hægra sagt en gert þegar manneskjan hefur ferið hringinn í kringum hnöttinn. Maður spyr ekki bara fékkstu gott veður? Hvar?Hvenær? Stelpan er búin að gera ýmislegt. Fara uppí hæstu hæðir til skoða fornar borgir í Perú, læra tangó í Argentínu, fara á fílsbak í Tælandi og matreiðslunámskeið í Bangkok. Ég horfi á reynslu hennar öfundaraugum og er búin að ákveða að þetta verð ég allt að prófa að upplifa einn daginn.

04 júní 2007

Sól T+28

Greinilega rigning og leiðinda veður þangað til... Ég er opinberlega komin í fýlu útí íslenskt veðurfar þar til sólin lætur sjá sig á ný og ég get mögulega hætt mér út og keypt mér sumarblóm á svalirnar.

Lárann mín kemur á skerið eftir ca.3 vikur og þá verður sko gaman. Heyrði aðeins í henni í gær þar sem hún var að vinna í lokaverkefninu sínu, svo dugleg!

31 maí 2007

könnun og þetta venjulega

You Are Most Like Miranda!
While you've had your fair share of romance, men don't come firstGuys are a distant third to your friends and career.And this independence *is* attractive to some men, in measured doses.Remember that if you imagine the best outcome, it might just happen.
Romantic prediction: Someone from your past is waiting to reconnect...
But you'll have to think of him differently, if you want things to work.


Ég sá svipað hjá Steinu og varð að prófa að sjá hvaða Sex and the City gella ég væri. Get nú ekki sagt að ég hafi beint séð mig fyrir mér sem Miröndu en ég get enn síður séð mig sem nokkra af hinum þannig að þetta er fínn millivegur.

Annars er lítið búið að vera í gangi hjá mér þar sem ég er búin að vera að vinna í húsinu hans pabba á hverjum einasta degi eftir vinnu í þessari viku. Held ég sé komin með ofnæmi fyrir ryki eða einhverju örðu þar sem ég er sí hnerrandi (jamm, meira en venjulega) og í morgun var ég með tárvot augu án ástæðu.
Í gær fór ég með Daníel og pabba að sækja um vegabréf. Ég sá strax þegar ég sótti Daníel að þetta yrði erfið myndataka en ákvað samt að láta slag standa. Þegar við mættum niðureftir þá var nokkuð mikið af fólki þarna og Daníel varð strax órólegur. Þegar var komið að myndatökunni sjálfri þá var Daníel orðinn vel pirraður og byrjaður að væla og varð alveg brjálaður ef ég ætlaði að láta hann niður. Ég þurfti semsagt að halda á honum vælandi meðan að ég sagði pabba til og aðstoðaði hann, þarna voru hendurnar byrjaðar að detta af mér. Myndatakan hans pabba tókst vel eftir nokkrar tilraunir og þá var röðin komin að Daníel. Það var ekki séns að Daníel væri til í að sitja eða standa á stólnum og öskrin í honum bergmáluðu yfir alla skrifstofuna! Stelpurnar í myndatökunni reynda hvað þær gátu til að friða strákinn t.d. með vatnsglasi, vínberjum og tuskudýrum en allt kom fyrir ekki. Það endaði á því að við þurftum frá að hverfa og nú þarf að fara aftur ef Daníel á að fá nýtt vegbréf fyrir ferðina okkar. Ég er búin að tilkynna það að ég ætli ekki að fara aftur með hann þar sem upphandleggsvöðvarnir mínir eru enn að jafna sig eftir hamfarirnar í gær. Það fellur því í hlut Einars að fara í töku 2!

Ég fékk reydnar smá gleði fréttir í dag. Ég fékk smá kauphækkun í dag og auðvitað brunaði ég beint niður í Kringlu og keypti mér skó... tvö pör! Nei, nei ég ætlaði nú að fara að endurnýja skódruslurnar mínar en nú gat ég bara gert það með aðeins betri samvisku. Í leiðinni kom ég líka við í frönsku búðinni og keypti sundskýlu á Daníel fyrir ferðina. Já, ég veit að það er langt í þetta en ég bara gat ekki haldið í mér. Það var komið fullt af nýjum vörum í búðina og ég varð alveg sjúk en því miður á Daníel nóg af fötum í bili þannig að ég gat ekki réttlætt að kaupa neitt meira á hann.

Átakið er enn í fullum gangi þó ég hafi ekki haft tíma til að mæta í ræktina síðustu vikuna vegna anna. Þetta stendur þó allt til bóta og ég stefni á að mæta í tíma á morgun eldhress. Ég er fyrir miklum vonbrigðum með veðrið þar sem ég var að stefna á að fara í lengri hjólatúr um helgina með Daníel en ég nenni því ómögulega í rigningarsudda og roki. Verður bara að bíða betri tíma.

Syndir dagins: pizza í kvöldmatinn (ekki mín hugmynd!)
afrek dagsins: ekkert sem mér dettur í hug.... :(

luv,

18 maí 2007

Þegar maður var lítill....

Föstudagskvöld og ég sit hérna ein heima dauðþreytt eftir enn eina"farðu-að-sofa" baráttuna við Daníel sem tók í þetta skiptið rúmann klukkutíma og grát og gnýstann tanna. Ástæðan fyrir því að ég sit heima í staðinn fyrir að vera úti að borða með Einari og firmanu hans er sú að barnapían veiktist í dag og ekki gat ég skilið greyið eftir eitt heima eina ferðina enn... honum gæti verið rænt!

Ég er í smá nostalgígufýling. Mér finnst þetta aðalega koma þegar ég spái í leikföngunum hans Daníels, þá fer maður ósjálfrátt að hugsa hvað maður var sjálfur að gera og hafa gaman af þegar maður var lítill. Ég man t.d. eftir teiknimyndum eins og My little pony og Klaufabárðunum. Svo má auðvitað ekki gleyma súperkúl teiknimyndunum um Jem og The missfits (... no one´s the same, Jem is my name!).Munið þið ekki? Hún var svona rosa vinsæl stelpa sem breyttist í súperkúl ´80 söngkonu þegar hún snerti stjörnu-eyrnalokkinn sinn og svo líka She-ra sem var víst tvíburasystir He-man og greinilega framleidd til að mæta kvennkyns markhópi.



Uppáhaldið mitt var hins vegar alltaf Tommi og Jenni sem er víst núna búið að skilgreina sem eitthvað hættulegt eða óviðeigandi fyrir börn. Þetta er bara rugl! Hvað er að því að henda keilukúlu í hausinn á Tomma? Eða sprengja á honum skottið? Eða frysta hann? Ég held að þetta sé bara allt í besta lagi og kennir manni bara þvert á móti að margur er knár þótt hann sé smár! Allavegana þá fannst þetta alveg frábært og ásamt jarðíkornunum frá Disney. Man einhver eftir einhverju fleira?

Ég hitti Önnu Lilju í dag úr MH og loksins loksins fékk ég að sjá Bjarka Heiðar í eigin persónu. Ég fékk meira að segja að halda á litlu bollunni en aðeins í smá stund því Daníel var ekki sáttur við að deila mömmu sinni og lét sko heyra í sér! Jæja það er best að fara snemma að sofa til að vera hress á morgun þegar litli prinsinn vaknar. Kannski maður skelli sér bara í sund enda fátt skemmtilegra hjá litla gaurnum en að busla í sundi.

hilsen,

14 maí 2007

Köttur í sekk og fleira...

Það er alltaf eitthvað. Maður hefði haldið að maður vissi allt um maka sinn og manninn sem maður er búinn að þekkja, eða hélt ég, best af öllum síðast liðin 7 ár. En svo virðist ekki vera. Ég var að komast að staðreynd um Einar sem ég þori bara varla að segja hérna. Ég var svo hissa og gáttuð að ég kom bara varla upp orði yfir undrun og jafnvel.... smá hræðslu? Mér finnst nú ekkert skrítið að karlgreyið hafi ekki verið að flagga þessu enda kemur þetta umræðuefni ekki oft upp en nú finnst mér ég vera knúin til að upplýsa fólk um þetta til að það viti að hverju það gengur, ég vildi að ég hefði vitað það á sínum tíma.... maðurinn KANN EKKI AÐ FLAUTA! Já, það er rétt! Mér finnst það alveg stórfuðulegt að ég hafi ekki vitað þetta áður en ég get nú ekki sagt að þetta hafi eitthvað verið að hrindra okkur í daglegum samskiptum enda er hann Einar gríðarlega fjölhæfur á mörgum öðrum sviðum. Ég reikna með að í framhaldinu munum við fara í einhverskonar flautukennslu og kannski hjónabandsráðgjöf en umfram allt munum við vinna í því að láta þetta ekki, endurtek EKKI, hafa áhrif á samband okkar. Ég held við munum líka bíða með að segja Daníel frá þessu, hann er of ungur enn.


Ég ætla ekki einu sinni að byrja að tala um þessar kosningar. Bara eitt orð: kosningasvindl!


Annars gengur lífið sinn vana gang hérna og við erum búin að vera dugleg að njóta veðurblíðunnar síðustu daga. Það er alveg yndislegt að vakna á hverjum morgni og líta á gluggann þar sem gluggatjöldin eru alveg að springa undan sjólargeislunum sem eru að reyna að komast inn. Við erum búin að mála gólfið á svölunum... humm eða helminginn þar sem við þurftum að færa draslið til en svo þegar við ætluðum að mála hinn helminginn þá var pensillinn orðinn ónýtur. Spurning hvenær við drífum okkur að kaupa annan pensil til að klára verkið. Svo er húsmóðirin búin að kaupa fallega blómapotta til að hengja á svalarhanriðið og til að toppa allt þá var keypt borð og tveir stólar. Mmmm.. ég sé alveg fyrir mér dýrindis sumar úti á svölum með kaldann drykk í annari til að dreypa á jafnvel:)


Baðherbergið hefur líka hlotið smávægilega andslitslyftingu þar sem við erum loksins búin að mála það og ljóti spegillinn og áhöldin hafa vikið fyrir nýjustu tísku frá IKEA. Nú eigum við bara eftir að kaupa nýtt ljós inná baðið og nokkrar flísar til að skella utan á baðkarið og þá er þetta fínt. Alveg ótrúlegur kraftur sem hleypur í mann á vorinn :)


Matarvenjur Daníels eru alltaf að verða sértækari og sértækari. Á fimmtudaginn var grill hjá okkur og ég var sérstaklega með kjöt sem ég veit að Daníel myndi rífa í sig en allt kom fyrir ekki. Hann vildi ekki snerta á kjötinu, kartöflunum eða grænmetinu, það eina sem hann vildi var að borða eintómt smjör með skeið uppúr dollunni! Þetta bætist þá ofna á tómatsósu- og fetaostaátið sem við höfum furðað okkur á hingað til. Eins vill hann ekki hafa neitt ofaná brauðinu heldur aðeins og eingöngu þurrt brauð og kanntarnir finnast honum bestir. Hvað á maður að gera (nei við leyfum honum ekki að borða eintómt smjör) þegar barnið vill ekkert borða við matarborðið? Jæja við sjáum til. Um helgina vorum við síðan að læra litin og Daníel er kominn með gulan, rauðann, grænann og bláann ásamt svörtum og hvítum. Hann var mjög snöggur að ná þess en hann er þegar farinn að stríða mér með því að láta mig fá annan lit en ég bið um en viðurkennir svo alveg að þetta var t.d. ekki rauður eins og ég bað um og fer að skellihlægja og hleypur í burtu. Algjör pjakkur.

03 maí 2007

Here we go again!

Jæja það kemur víst engum á óvart ég er aðeins búin að gefa eftir í átakinu góða og sérstaklega eftir að námskeiðinu lauk. But no more! Í dag er fyrsti dagurinn í nýja átakinu mínu eða réttara sagt framhaldsátakinu. Ég er búin að fá nokkrar stelpur sem voru í átaksnámskeiðinu með mér í þetta og við ætlum að reyna að halda hópinn og svona... humm hljómar dáldið eins og AA fundir fyrir alkahólista en hvað með það ef það hjálpar manni.



Díses kræst hvað ég vildi að ég gæti verið þessi heilbrigða manneskja sem lítur ekki við sælgæti og nartar bara í sellerí yfir sjónvarpinu og finnst alltaf svo ótrúlega gaman í líkamsrækt og að labba á fjöll. Því miður þá er ég bara ekki þannig úr garði gerð og mér finnst þetta bara drulluerfitt og því miður léttast lítið. En þá er gott að vera með svona bloggsíðu þar sem maður getur sett fram fögur fyrirheit og smá heilaþvott í von um að vinir manns reki mann áfram og láti mann standa við þetta allt saman.



Afrek gærdagsins: 6 km sokk/labb við Ægissíðuna

Syndir gærdagsins: pizza í verðlaun fyrir erfiðið.... jæja 1-1=0 maður kemur allavegana út á sléttu!



28 apríl 2007

Gamlar minningar

Það var eitthvað sem ég gerði áðan sem minnti mig á einn strák sem ég var einu sinni með en svo gat ég ómögulega munað hvað hann hét! Ég átti nú nokkra kærasta á mínum yngri árum og þetta var auðvitað það merkilegasta sem var að gerast hjá manni á þeim tíma. Ég hélt nú að ég myndi alltaf muna eftir hverjum og einum eða í það minnsta full nöfn þeirra en nú virðast aðrir hlutir hafa tekið þeirra sæti í hausnum hjá mér og ég er því búin að gleyma þessu mest öllu. Ástæðan fyrir því að ég var að reyna að rifja upp nafnið á gæjanum var af því að ég ætlaði að gúggla hann og athuga hvort ég myndi finna eitthvað. Ég á nefnilega helst von á því að þessi gæji hafi brotið eitthvað af sér í gegnum lífstíðina og gott ef hann situr ekki bara inni. En það kemur auðvitað í ljós að ég man ekki fullt nafn eða bara nafn yfir höfuð heldur man ég bara gælunafnið hans! En úr því að maður er að tala um gamla kærasta þá veit ég nú eitt og annað um mína fyrrverandi t.d. einn hefur farið í meðferð, einn er giftur, einn hefur unnið íslandsmeistaratitilinn í handbolta og einn er a.m.k. tvíkynhneigður!

Jii ég fékk svo mikla nostalgígju við að skrifa þetta að ég fór inní vinnuherbergi að grafa upp gömlu Beneventum-blöðin. Það er alveg ótrúlega gaman að rifja framhaldsskólaárin upp og vá hvað ég hugsaði oft með mér "þessi" og "já ég man eftir þessu" "þessi" "bíddu var þessi í MH?" Ég mæli eindregið við alla sem eru að lesa þennan texta að grafa upp gömlu menntaskólablöðin eða albúmin og rifja aðeins upp þessi ár... þið verðið sko ekki fyrir vonbrigðum!

Nú væri ég sko til í að finna eins og eina gamal minningabók frá því í grunnskóla og lesa í gegnum hana, það væri sko æði. BTW þá sagði Anný mér að Dóri (Hvassó) væri að setja allar gömlu spólurnar, sem skólinn á, á DVD og þar á meðal er Rokcy Horror og Kabarettinn góði. Hún var búin að lofa að lána mér eða gera aukaeintak handa mér þannig að ég ætla að fara að inna hana eftir þessu. Ef ég fæ þetta í hendurnar er þá ekki einhver áhugasamur að kíkja til mín eitthvert kvöldið og horfa á þetta? Mér er sagt að við Sara höfum farið "á kostum" sem kynnar og ekki má gleyma Rokcky þar sem allir voru að syngja og dansa á nærfötunum einum saman ;-)

Jæja nóg í bili.

23 apríl 2007

Aftur mánudagur???

Afrek helgarinnar: mætti í ræktina á föstudaginn og laugardaginn
Syndir helgarinnar: fékk mér sætabrauð með kaffinu á laugardag og sunnudag!

Ætli maður komi þá ekki bara út á núlli? Nú er vika eftir af átaksnámskeiðinu og ég bara hreinlega verð að taka mig á! Það er bara 1 og hálft kg í að ná 5 kg markmiðinu mínu þannig að nú er bara harkan 6. Ég geri mér auðvitað fullkonma grein fyrir því að þetta mun ekki nást á einni viku ;) en ég finn alveg að ég er búin að slaka töluvert á í mataræðinu og ég væri sennilega búin að ná þessu ef ekki hefði verið fyrir þessa páska og slabb síðustu viku.

Bruninn sem var hérna í síðustu viku virðist vera á allra vörum. Ég get nú ekki sagt að ég sjái mikið eftir Pravda-húsinu úr því sem komið var. Það sem ég sé hins vegar mest eftir er kebaab-staðurinn á horninu! Ég kom alltaf (sennilega teljandi á annari hendi) við þarna eftir djammið og fékk mér bita. Það verður spennandi að sjá hvað þeir muni reisa þarna í staðinn en Villi er víst búinn að lofa uppí ermina á sér að þarna muni ekki eiga sér annað Iðu-slys... sjáum til.

19 apríl 2007

Jónsi maður.....

Jón Viktor náði fyrsta áfanga að stórmeistaratitli
Jón Viktor Gunnarsson náði í dag fyrsta áfanga að stórmeistaratitli í skák í lokaumferð Minningarmótsins um Þráin Guðmundsson sem fram fór í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni. Jón Viktor samdi jafntefli við alþjóðlega meistarann Innu Gaponenku frá Úkraínu og tryggði sér með því áfangann. Lettneski stórmeistarinn Normunds Miezes varð hins vegar sigurvegari mótsins.


Sko Jónsa, bara ennþá að keppa í skák. Ég man ennþá eftir því þegar við vorum að búa til risastórann "velkominn heim" borða í bekknum þegar hann var að koma heim eftir að hafa sigrað norðurlandameistaratitilinn. Jæja ég vona að allavegana að honum gangi vel og verði heimsfrægur, hann á það sko alveg skilið.

16 apríl 2007

Aftur kominn mánudagur....

Var að lesa viðtal við Dóru Jóhannsdóttur leikkonu í helgarblaði Fréttablaðsins. Þetta voru svona ýmisskonar spurningar með stuttum svörum m.a. þessi:

Ef þú hefðir ofurafl, hvert myndi þitt vera ?
Ég væri þá svona ofur-leikkona sem gæti þannig brugðið sér í allra kvikinda líki og leikið alla út í horn.


Ég trúið því bara ekki þegar ég las þetta og þurfti þess vegna að lesa það aftur. Hvað er að þér?? hugsaði ég. Hver myndi virkilega kjósa sér þetta sem ofurafl? Kommon, hversu miklu meira kúl er að geta flogið eða lesið hugsanir??? Mig hefur alltaf dreymt um þetta tvennt. Ég ætla bara rétt að vona að ef einhver á ofurafl-spjald að hann fari þá ekki að eyða því í hana!

Annars fórum við að kíkja á leiksskólann hans Daníels í dag og hann leit mjög vel út. Þetta er alveg risa, risa stór leikskóli og leikskólastýran útskýði að það væri vegna þess hversu gamall hann væri og þá hefði verið allt önnur hugsun í gangi. Okkur leist bara mjög vel á þetta allt samana og ég fylltist upp af hugmyndum að skemmtilegu dóti til að gera með Daníel. Á leikskólanum voru líka að vinna 2 strákar um tvítugt sem mér fannst alveg meiriháttar jákvætt. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það sér rosalega gaman að vinna á leiksskóla þó það hljóti auðvitað að vera erfitt um leið. Ég gæti alveg hugsað mér að prófa að vinna í einhvern tíma á leiksskóla og reyndar var okkur Einari að detta það í hug að ég gæti prófað það þegar við verðum úti í DK. Það væri þá auðvitað eftir að ég væri búin að læra að tala smá, gengur nú ekki mikið að ráða inn manneskju á leikskólann sem kann minna í dönsku en krakkarnir!

Svo er hérna smá auka sem ég ætla að fara að taka upp í blogginu:

Afrek dagsins: Líkamsrækt + taka til
Syndir dagsins: nokkrara M&M hnetu kúlur
Syndir helgarinnar: alltofmargar til að tala um hérna....

11 apríl 2007

Komin heim!

Jæja þá er maður kominn heim frá Amsterdam. Þetta var fínasta ferð og ég varð margs vísari t.d. um flughraða. Þannig var að fluginu okkar seinkaði um klukkutíma en áhöfnin fullvissaði okkur um að við myndum halda áætluðum komutíma. Hvernig má það vera? Jú, sagði sæti flugþjónninn við einn áhyggjufullann farþega, "we will fly faster"! Það er semsagt hægt að fljúga þessum flykkjum mun hraðar en er gert. Afhverju er þetta ekki auglýst? Ég sem er oft t.d. flugveik myndi með glöðu geði borga aðeins meira fyrir hraðflug. Ég vildi að ég hefði vitað þetta fyrr!
Einar er nú þegar búinn að skrifa niður það helsta úr ferðalaginu og má lesa það á blogginu hans hérna
Á leiðinni heim vorum við farin að telja niður tímana þar til við myndum hitta litla gaurinn okkar og ég var farin að ímynda mér að hann myndi koma hlaupandi á móti okkur. Þetta var nú ansi langt frá því sem gerðist því þegar Daníel sá okkur þá fannst honum það ekkert merkilegt og forðaði sér frekar en hitt. Það tók hann smá tíma að venjast okkur aftur og taka okkur í sátt, það vorum nú við eftir allt saman sem SKILDUM HANN EFTIR! Við höfðum sem betur fer keypt dáldið af samviskubits-gjöfum og þær hjálpuðu til.
Það er fínt að vera komin heim þó ég geti nú ekki beint glaðst yfir þessu blessaða veðri sem herjar hérna á okkur. Nú er bara að telja niður dagana í næstu ferð.... humm 3 mánuðir mínus 9 dagar! Já, þetta er nú dáldið langt.. jæja... ok... ætli það sé ekki best að gera bara eitthvað af viti í millitíðinni eins og að vinna :)

04 apríl 2007

Brottför eftir 7 tíma...

Þá erum við búin að koma Daníel fyrir hjá afa sínum og ömmu á Háó og búin að pakka því litla sem við ætlum að taka með okkur. Við ætlum að taka rútuna uppá flugvöll þar sem ég er skíthrædd við að keyra þessa Reykjanesbraut og það gefur manni bara gott tækifæri til að slappa af.

Það var mjög erfitt að skilja við litla gaurinn okkar því hann vissi að það ætti að skilja hann eftir, hann vissi bara ekki að það yrði í heila 4 daga! Hjarta mitt brast þegar ég heyrði hann kalla á eftir mér og gráta þegar við lokuðum hurðinni á eftir okkur.... ég var næstum því hætt við ferðina. Ég hringdi hins vegar uppá Háó hálftíma seinna og þá var víst allt fallið í ljúfa löð fyrir utan þegar í sjónvarpinu birtist dökkhærð kona með sítt hár, þá hélt Daníel að það væri ég og byrjaði að kalla á mig sárum ópum.

Ég get varla beðið eftir að fara uppí flugvélina í fyrramálið og leggja af stað. Mér finnst alltaf svo "góð" flugvélalykt. Það er sennilega bara af því að maður tengir það alltaf við útlandaferðir og þær eru nú aldrei leiðinlegar ;-) Ég vona bara að ég verði ekki flugveik... á það dáldið til.

Ætli það sé ekki best að fara að lúlla til að vera hress í fyrramálið. Ég er búin að hlaða myndavélina og það verður tekið nóg af myndum í þessari ferð. Vonandi get ég síðan sett myndaalbúmið í gang á þessari síðu eins og ég var búin að tala um.


GLEÐILEGA PÁSKA OG MUNA AÐ BORÐA YFIR SIG AF PÁSKAEGGJUM!


26 mars 2007

Amsterdam eftir 10 daga...


Við Einar erum að fara í smá frí saman bara tvö ein um páskana. Við förum semstagt eldsnemma um morguninn til Amsterdam og verðum þar í 2 nætur og á laugardeginum ætlum víð síðan að skreppa til Antwerpen í Belgíu að heimsækja Öldu og Wannes. Það er búið að redda pössun fyrir Daníel og nú er ekkert annað að gera en að telja niður dagna!
Þetta verður frábært og ekki seinna að vænna að við hjónin fáum að skreppa í smá rómóferð. Við erum þegar búin að tryggja okkur gistingu á litlu hóteli í miðbænum og þaðan er nú stutt í allar áttir.

13 mars 2007

Valentines lost!

Jæja þá er loksins búið að hanna enskan texta og myndband Júróvisíon lagið okkar. Á ensku heitir það víst Valentine lost. Fannst það best eins og Dr,Gunni sagði það: þetta er kannski einhver hundur sem hann týndi einu sinni!
Ég veit nú ekki hvað skal segja um þetta lag enda náði ég textanum ekki fyrir fimmaur. Mér fannst myndbanið heldur ekki skemmtileg enda veit ég ekkert ljótara en íslenskt landslag koma undan vetri, algjörlega litlaust og líflaust. Fyrir utan það þá minnir Eiríkur mig á breskan seiðskratta í þessu myndbandi með hreyfingum sínum og takið sérstaklega eftir framburðinum. Myndbandið er líka alltof drungalegt fyrir svona keppni sem er nú einmitt þekkt fyrir austurevrópskt gleðipopp! Við sjáum hvað setur.

10 mars 2007

Þá er fysta vikan í Átaksnámskeiðinu liðin og ég er búin að mæta á allar æfingar auk einnar auka í dag bara í tækjasalinn. Ég er að deeeeeeeeeeeyyyyyyyjaaaaaa! Ég er svo þreytt í kroppnum og sérstaklega í handleggsvöðvunum og bossanum. Á morgun er frí og ég ætla að reyna að hreyfa mig sem minnst og helst fara í sund og heita pottinn.
Á námskeiðinu er stelpa sem ég kannaðist við úr MH, Harpa, og við erum búnar að para okkur saman. Mjög gott að hafa einhvern félaga til að vera í þessu með manni. En allavegana árangurinn lætur ekki á sér standa og þolið er allt að koma til og viktin er svei mér þá að lækka töluna þó svo að ég viti að þetta er mestmegnis bjúgur sem er að fara, samt hvetjandi.

Ég heyrði aðeins í Ebbu um daginn og hún og Himmi eru að koma sér fyrir í rólegheitunum í Baunalandinu. Mér leist nú ekkert á blikuna þegar Ebba sagðist vera að fara á dönsku-námskeið í götunni rétt hjá Ungdomshuset en hún byrjar ekki alveg strax og lætin virðast sem betur fer vera gengin yfir. Vona að allt fari vel hjá þeim og vonandi getum við heimsótt þau bráðlega. Annars er allt á fullu í ferðadeildinni hérna á þessu heimil. Við erum búin að ákveða að fara til Parísar um páskana fyrir flugmiðana sem fylgdu með bílnum. Hrefna og Egill ætla að taka Daníel að sér og við Einar ætlum að eiga rómantíska langa helgi saman. Ég get bara varla beðið!

Snorri "litli" frændi minn er að fara að feramast í vor! Þetta finnst mér alveg ótrúlegt. Hann er jafngamall núna og ég var þegar hann fæddist... how fast they grow! Ég er að velt því fyrir mér hvað væri gaman að gefa honum í fermingagjöf en aldrei þessu vant þá stend ég á gati. Snorri spilar á píanó og spilar badmington en dettur ekkert í hug sem tengist þessu. Gefur einhver útivistardót ennþá? humm... það sem ég er spenntust fyrir er að gefa honum einhverja upplifun eða reynslu eins og gjafakort í einhverja ferð eða námskeið. Ég er alveg tóm. Kannast einhver við þetta?

04 mars 2007

Það byrjar á morgun!

Ég er búin að sjá það að ég þarf aðeins meira aðhald í líkamsræktarmálunum en ég gefst ekki upp og þess vegna er ég búin að skrá mig á Átaksnámskeið hjá World Class sem byrjar á morgun! Námskeiðið byrjar semsagt á morgun og tímar eru þrisvar í viku. Þetta er alveg allur pakkinn; líkamsrækt, fræðsla, mælingar og matardagbækur. Í beinu sambandi við þetta þá er ég búin að fjárfesta í nýrri grænmetisréttabók og er planið að útbúa nokkrar máltíðir í hverri viku sem samanstanda eingöngu úr grænmeti og þvíumlíkum mat.
Maður getur ekki annað en vonað að þetta verði skemmtilegt námskeið með fínum stelpum en hvort sem það nú verður þá efast ég ekki um að þetta mun bera tilætlaðann árangur. Ég hef einu sinni áður farið á svona námskeið ( í gamla daga) og þá fórum við Tulla saman. Ég komst alveg þvílíkt í gang við þetta námskeið og gat varla hugsað mér að fara ekki í líkamsrækt á hverjum degi en ég viðurkenni alveg að þetta fór dáldið útí öfgarna á þeim tíma. Vonandi verður þetta mun þetta vekja áhuga en allt er gott í hófi.

Í gær áttum við Einar 7 ára afmæli og við skelltum Daníel í næturpössun til Hrefnu og Egils og fórum út að borða og bíó. Við fórum á IndanMango sem er nýlegur staður rétt fyrir ofan Laugarveginn. Við vorum spennt að prófa nýjan stað með öðruvísi áherslum en maður er vanur. Staðurinn er mjög lítill og kósí og ég held að það komist ekki fleiri en ca.25 manns þarna í einu. Maturinn var ágætur og þá kannski sérstaklega miðað við verðið sem var í lægri kanntinum. Það vantaði hins vegar aðeins uppá þjónustuna eða öllu heldur samræminguna sem sást greinilega þegar einn þjónn rakst á annann og annar jógúrtdrykkurinn okkar fór beint í gólfið. Næst tókum við eftir að fólkið á næsta borði fékk vitlausann rétt afgreiddann, þjónarnir voru eitthvað að þræta hver hefði pantað hvaða rétt og svo var borinn fram fyrir okkur aðalréttur sem annað fólk átti að fá (við áttum eftir að fá forréttinn). En ég var samt það ánægð að ég ætla að fara þangað aftur. Eftir matinn kíktum við í Keiluhöllina í þykhokkí. Mér til mikillar undrunar vann Einar 2 af 3 leikjum! hehe ég er kannski dáldið góð með mig í þythokkíi ;)
Eftir þetta var ferðinni heitið í Sambíóin í Álfabakka þar sem Einar var búin að panta fyrir okkur sæti í Lúxussalinn. Það var mjög gaman að prófa loksins lúxussalinn og myndin Music an lyrics var bara mjög skemmtileg og stóðst fyllilega væntingar. Við fórum síðan bara beint heim og fengum að sofa aðeins út í morgun. Ég er eiginlega búin að ákveða það að það er alveg nauðsynlegt að skreppa svona saman tvö út ein a.m.k. einu sinni í mánuði, algjör draumur!

26 febrúar 2007

Ég vil þín njóta Toyota!

Hérna má líta dýrðina sem við Einar fjárfestum í í gær nema það að okkar er djúp vínrauður en ég fann enga þannig mynd og okkar er dottinn útaf söluskráinni. Við fórum semsagt á tilboðsdaga hjá Toyota um helgina og féllum alveg fyrir þessum Toyota Corolla Terra árgerð 2005. Það er alveg frábær tilfinning að keyra svona nýjann og fínann bíl þó svo að maður eigi nú minnst í honum.
Nú er eina vandamálið að ákveða hvert við eigum að fara fyrir farseðlana 2 sem fylgdu með í kaupunum... Einhverjar hugmyndir?

p.s. Einar er að smíða myndasíðu fyrir mig sem kemur í gagnið hérna vonandi fljótlega.

22 febrúar 2007

Endurnýjun

Það hlaut að koma að því að Blámann (eins og ég hugsa stundum um hann)myndi þurfa að kveðja þennan heim, en þó ekki eins snemma og raun ber vitni. Bíllinn var semsagt úrskuraðar "ekkiþessvirðiaðgeraviðhanntilaðstandastskoðun" á mánudaginn síðasta. Partar í bílinn myndu kosta tæp 100þ + vinna! Sem betur fer erum við í viðskiptum við svo svakalega gott verkstæði þannig að þeir gerðu okkur grein fyrir gangi mála áður en þeir fóru að ráðast í viðgerðir, settu meira að segja upp kostnaðinn og sögðu okkur svo blíðlega sorgarfréttirnar.
Það er því greinilega kominn tími á annan bíl því bíllaus getum við ekki verið. Nú er bara spurningin hvernig maður ætti að standa að þessu þar sem við verðum víst bara á landinu í rétt rúma 10 mánuði til viðbótar... Eftir miklar vangaveltur þá höfum við komist að því að það er best að fjárfesta í nýlegum bíl með góðu láni þannig að við greiðum bara afborganir og þufum í staðinn ekki að hafa áhyggjur af viðgerðum. Síðan verður bílinn (vonandi) bara seldur um leið og við förum af landinu.

Nú er bara spurning hvernig bíl maður ætti að fjárfesta í? Einhverjar hugmyndir?

11 febrúar 2007

Fyrr má nú rota...

Ég er ein af þeim sem vill hafa rólegt umhverfi í því samfélagi sem ég bý í. Þetta þýðir að ég kýs að lágmarka áreiti í kringum mig eins mikið og ég get. Það sem mér finnst standa helst uppúr í áreiti eru auglýsingar: fáðu þér svona, alvöru konur nota X og þar fram eftir götunum. Mér finnst þetta algjörlega óþolandi. En það má ekki misskilja mig, auglýsingar eru vissulega gagnlegar því þarna er verið að láta neytandann vita af valmöguleikum sínum. En þegar maður getur varla litið útum gluggann án þess að verða fórnarlamb einhverskonar markaðssetningar þá finnst mér þetta verið komið útí hróa. BTW fyrir utan húsið stendur akkúart bíll með risaauglýsingu sem á stendur klám.is!
Sem betur fer erum við þó ekki orðin eins slæm í þessu og flest lönd í kringum okkur. Mér fannst stigið stórt skref niður á við þegar strætóskýlin í Reykjavík voru bókstaflega seld á einu bretti til einkafyrirtækis sem setti upp núverandi skýli með risastórum auglýsingum. Mér finnst þetta ljótt og ég myndi miklu frekar kjósa að vera laus við þessa sjónmengun. Eins vil ég geta stjórnað því hvenær er verið að koma skilaboðum til mín, þegar ég er að horfa á sjónvarpið t.d. þá getur maður alltaf bara slökkt þegar maður er búinn að fá nóg eða í það minnsta skipt um stöð. Þegar þú ert úti á götu þá kemstu ekki hjá því að líta í kringum þig þó það sé ekki nema bara til að verða ekki undir næsta bíl!
Það sem fékk mig hinsvegar til að skrifa þennan pistil var tónlistarmynband sem ég rakst á áðan. Þar var á ferðinni Black eyed peas með einhvern nýasta smell frá sér, ekkert að því. Nema þegar ég horfi aðeins betur á þetta þá sé ég að þetta myndband er ekkert annað en ein stór auglýsing! Ég veit að mynbönd sem þessi eru oft notuð sem auglýsingar en þá er það yfirleitt eitthvða svona vægt sem fellur svona meira inní umhverfið. Svo var ekki í þessu tilviki. Allt í einu tekur aðalgellan upp eitthvað tæki í miðri dansrútínu og er eitthvað að dást að þessu. Ég kíki betur og sé að það stendur greinilega Samsung á þessu. Hérna er svo varan sem verið var að auglýsa
Mér finnst þetta algjörlega glatað svo ég tali nú bara ekki um hversu hallærislegt þetta er yfir höfuð inní þessu eða bara hvaða myndbandi sem er. Hvernig í ósköpunum er hægt að tengja mp3 spilara inní þetta dæmi. Veit ekki. Ég ætla síðan ekki einu sinni að byrja hvaða áhrif allur þessi auglýsingaráróður hefur á mann. Heimur versnandi fer, ekki síst ef álverið fær að stækka í Straumsvík en það er efni í annan pistil.
Ætli við munum ekki enda eins og í bókinni Lovestar eftir Andra Snæ þar sem fólk var látið vinna fyrir skuldum með því að heilaþvo vini, ættingja og fólk útá götu með því að þylja upp einhvern auglýsingatexta sem var sendur í þau. Úff... hlakka til...

06 febrúar 2007

Bogamenn eru fljótfærnir


Þetta eru sko orð að sönnu! Ég hef alltaf verið talin fljótfær og skotið fyrst en spurt svo og þetta á sko ekki bara við um mig því Lára vinkona er líka svona og hún er líka bogamaður. Ég segi stundum hluti án umhugsunar og ef maður bætir því ofan á mína óbilandi hreinskilni þá gæti ég svo sem alveg skilið að sumir myndu kjósa að ég myndi þegja meira. Það er kannski bara fínt að geta skellt skuldinni á stjörnumerkið sem maður er fæddur í?
Þetta á samt við fleiri hluti í lífi mínu. Ef mér dettur eitthvað í hug þá vil ég helst gera það strax og taka það með tropmi. T.d. húsgagnainnkaup, lífsháttarbreytingar eða breytingar á heimilinu og önnur verkefni. Það má aldrei neitt bíða, enda yrði sami hluturinn ekki eins spennandi ef maður þyrfti alltaf að bíða heillengi eftir honum og spá endalaust og spekúlera í áhrif hans og svoleiðis, það er bara seinnatíma vandamál (verkefni) og maður tekur á því þá. Ekki má heldur gleyma því hversu bjarsýn ég er alltaf á gott gengi í þessum verkefnum og iðulega reikna ég með minni tíma/fyrirhöfn/peningum en raunin síðan verður.
Það sem kemur síðan í framhaldi af öllum mínum hugdettum og framkvæmdargleði er að fá samþykki Einars. Hann er nú yfirleitt fljótur að gefa undan en stundum þarf hann að fá smá sannfæringu, ætli hann nenni nokkuð að mótmæla mér ;)
Það er svo sem ekkert að þessu, ég allavegana veit af þessu en þetta hefur aldrei komið mér neitt þannig í koll þannig að ég hafi þurft að endurhugsa gerðir mína eða gefið mér ástæðu til að breyta mínu ágæta fyrikomulagi. Annars held ég að ég myndi ekki koma miklu í verk ef ég myndi fara aðra leið.

Jæja nóg komið af pælingum. Helgin hjá okkur var alveg frábær þar sem við fórum í kaffiboði til Friðriks, Unnar og Tómasar á laugardaginn. Tómas var dálitla stund að sætta sig við að Daníel væri kominn í heimsókn og ætlaði virkilega að leika sér með dótið hans... En eftir að Daníel fékk jarðaberjasvala og sykursjokk út frá því þá voru þeir orðnir mestu mátar og sátu glaðir uppí sófa að horfa á Stubbana og leika sér og sprella. Beint eftir kaffiboðið fórum við í matarboð til Völu, Hjalta og Jökuls. Jökull er alveg ófeiminn og tók Daníel vel og var duglegur að sýna honum allt dótið sitt. Mest gaman var hjá strákunum þegar þeir fengu að vera inní svefnherbergi að hoppa á dýnu og ekki má gleyma vasaljósaleiknum skemmtilega sem Hjalti kynnti fyrir þeim.
Mér tókst hins vegar næstum því að höfðukúpubrjóta mig með því að ganga á hillu í barnaherberginu sem hafði verið máluð í felulit, gangandi vegfarendum til gleði. Hillan hafði semsagt verið máluð blá í sama lit og ský sem var á veggnum þar sem hillan hékk, auglóslega gert með ásetningi. Ég var hins vegar fljót að jafna mig enda pizzur með hvítri sósu (já hvítri) á boðstólnum!
Þetta var hin besta helgi í alla staði. Nú fer að styttast í að Ebba og Himmi fara til DK þannig að ég mátti til með að bjóða þeim í mat á miðvikudaginn svona til að fá að sjá þau einu sinni áður en þau sleppa af skerinu. Reikna með að það verði dýrindislæri í matinn enda alltof langt síðan the "grillmaster" hefur fengið að spreyta sig á gasgrillinu.

Jæja nóg í bili.

01 febrúar 2007

Áfram Karen!

Jæja, mætti í ræktina í gær sem er ekki frásögufærandi nema að ég sá þarna svona gellu sem ég veit ekki hvort var að mæta þarna til að horfa á sjálfa sig í spegli eða til að æfa. Þið þekkið típuna. Máluð, með eyrnalokka og hárið sett upp á hlaupabrettinu alltaf að kíkja í spegilinn hvernig hún væri nú að taka sig út þarna :) Ég veit ekki með ykkur en persónulega finnst mér bara ógeðslegt að vera máluð og svitna síðan ofan í það og hvað þá að vera með skartgripi á sér! En ég get ekki neitað því að ég hafði gaman af því að horfa á hana þar sem hún var á hlaupabrettinu fyrir framan mig. Ég er svo að fara að mæta aftur í dag til að hitta einhvern leiðbeinanda sem ætlar að fara með mér yfir tækin og búa til prógramm fyrir mig, þýðir ekkert annað annars mun á aldrei fara lengra en á hlaupabrettið og kannski í mesta lagi stígavélina.
Til að ég haldi áfram með heilsuæðið hérna þá er búið að skipta út öllu pasta hérna út fyrir lífrænt speltpasta og hrísgrjón úr fyrir brún hrísgrjón (nema í neyðartilvikum þar sem það tekur 45 mín að sjóða brún en bara 15 mín að sjóða hvít). Ég er byrjuð aftur að drekka de-tox teið mitt og ætla að fara aftur að bæta spíru-duftinu útí matinn. Þess á milli mun ég heilaþvo sjálfa mig t.d. með því að skrifa svona blogg ;)
Annars er Daníel hress og Lára er farin aftur út til DK til að brillera í arkitekta-náminu. Hennar verður sárt saknað en vonandi kíkir hún á klakann aftur bráðlega. Jæja best að fara að borga eitthvað af þessum reikningum, jóla-vísað er komið og núna skil ég afhverju við erum búin að safna svona mikið af vildarpunktum!

29 janúar 2007

Heima í dag

Ég er eitthvað svo óheyrilega andlaus þessa dagana. Daníel er búinn að vera veikur um helgina vegna bólusetningar sem hann fékk í 18 mánaða skoðuninni. Hann er búinn að vera mikið á höndum og þá litið út eins og hann væri við það að missa meðvitund á köflum og þess á milli hefur hann verið að hlaupa útum allt voða hress. Skrítið. Ég get nú ekki neitað því að það er nú ansi notalegt að hann vill vera svona mikið hjá manni þegar honum líður illa, manni finnst maður dáldið merkilegur og ómissandi. Auðvitað vildi ég frekar að hann væri frískur en það er gott að finna að hann þarf á manni að halda. Í dag er semsagt þriðji dagurinn sem hann er með hita en hefur engin önnur einkenni. Ætla að bíða til hádegis og hringja síðan í ungbarnaverndina því það er talað um að þetta ástand eigi ekki að vera í lengur en sólarhring. Okkur mun samt ekki leiðast í dag þar sem þetta er ekki svona týpísk veikindi þar sem börnin eru bara hreint út sagt leiðinleg og mjög þreytandi að vera með þau heima. Við erum með ýmislegt planað eins og að taka til hérna og Daníel er alveg einstaklega duglegur í að hjálpa. Í gær fórum við t.d. yfir allar flöskur og dósir og Daníel hjálpaði til samviskusamlega við að flokka og að lokum hjálpaði hann mér meira að segja að halda á þessu útí bíl. Svona er þessi pjakkur duglegur. p.s. Daníel tekst samt að fríkka með hverjum degi, meira að segja þó hann sé veikur ;-)

24 janúar 2007

Í fyrsta skipti - í hvert skipti!

Það hlaut að koma að því... ég hef verið dáldið á móti svonalöguðu, veit ekki afhverju, en nú er þetta orðið að raunveruleika á þessu heimili. Já, það er rétt. Það er komin uppþvottavél inní eldhús! Ég veit ekki afhverju ég hef verið dáldið skeptísk útí uppþvottavélar, ætli það sé ekki bara af því að ég er vön því að vaska... Einar er vanur að vaska upp. Veit ekki hvaða bull þetta er í manni, það er nú svo sem ekkert virðingarvert við að standa á hverjum degi fyrir framan vaskinn og skrúbba leirtau. Kannski hefur mér fundist ég vera svona alvöru húsmóðir að standa sveitt við uppvask á hverjum degi, hver veit. Reyndar finnst mér uppvask með skárri heimilisverkum sem fyrirfinnast og reyndar getur stundum verið ágætt að vaska upp, gefur manni smá tóm til að hugsa, eins og ég hef nú alltaf nóg að hugsa um ;-). En það sem hefur kannski helst farið í mig er að uppvask er ansi tímafrekt og þetta er tími sem mig langar miklu frekar til að eyða í eitthvað skemmtilegt t.d. leika við Daníel. Vélin var allavegana keypt á fimmtudaginn en við vorum í smávægilegum vandræðum með tenginguna í niðurfallið. Við vorum spennt fyrir að prófa vélina og höfðum sérstaklega ekki vaskað upp þannig að það var dáldið í vasknum. Þegar kom í ljós að við gætum ekki komið þessu saman sama dag þá stakk Einar uppá því að við myndum taka uppvaskið í síðasta skiptið uppá gamla mátann. Ég hélt nú ekki! That time has passed sagði ég og þess vegna fékk uppvaskið að liggja áfram í vasknum. Við tengdum svo vélina í dag og auðvitað var keypt Finish uppþvottaefni og fyrsti þvotturinn settur í gang enda veitti ekki af þar sem báðir vaskarnir voru orðnir stútfullir og grunsamleg lykt farin að hreiðra um sig. Meðan að vélin púlaði þá sátum við Einar í makindum uppí sófa að lesa og önnur eins kósýheit. Bæði uppþvottavélin og þvottaduftið (kraftkúlutæknin sko!) stóðust prófið með prýði og allt kom glansandi hreint út, miklu flottara en þegar maður vaskar upp sjálfur og þurrkar. Ég hef því skipt algjörlega um skoðun á þessum blessuðum vélum og er þetta nú orðið að uppáhalds heimilistækinu mínu! Svei mér þá ef ég verð ekki bara að gefa henni nafn, hehe!!

19 janúar 2007

Sólarlandaferð!


Ég var að enda við að panta dýrindis sólarlandaferð til Golden Sands í Búlgaríu. Ég er ekkert smá ánægð og spennt. Mér fannst við ekki geta annað enn að skella okkur í almennilega ferð núna í sumar þar sem við erum búnir að vera fátækir námsmenn svo lengi og erum á leið í þann pakka aftur í haust. Ég get varla beðið eftir að sjá Daníel vera að sprella í sandinum og það verður gott að komast í burtu aðeins. Við förum semsagt 2.júlí og verðum í 2 vikur. Jibbbííííí!

16 janúar 2007

It will all come with the cold water...

Dagarnir líða og janúar er nú þegar hálfnaður! Ótrúlegt og maður veit ekkert í hvað tíminn fer.
Steina eignaðist litla bjútíbollu í gær. Daman mætti 13:18 í heiminn og mældist 17 merkur og 51 cm. Innilega til hamingju Steina, Tóti og Ísold með nýjustu viðbótina í fjölskylduna.
Útskriftin mín er næsta laugardag og ég er alveg á mörkunum með að nenna að mæta á sjálfa athöfnina. Málið er að maður á að vera mættur kl. 10 og athöfnin á ekki að byrja fyrr en kl 13!!! Þetta er ekki djók. Í póstinum er okkur meira að segja bent á að taka með okkur nesti! Og hvað á síðan að gera í 3 tíma uppí Háskólabíói? Nei, við erum ekki að fara að kíkja á góða ræmu heldur erum við að fara í myndatöku og svo á að fara yfir "praktísk" atriði. Þetta á semsagt að taka 3 tíma! ÓMG! Svo er athöfnin sjálf 2 tímar þannig að við erum að tala um 5 tíma í hangs í Háskólabíói. Ég hef satt að segja ekki hugsað mér að mæta fyrr en svona kannski 12. Hef ekkert að gera í þessar myndatökur þar sem ég þekki aðeins örfáa sem eru að úskrifast með mér. Sjáum til, kannski bugast ég og mæti kl. 10.
Vala ætlar að vera svo góð að hjálpa mér kvöldið áður með veitingarnar því það verður greinilega ekki tími um morguninn ;-) Það verður fínt að slá botinum í þetta eða hitting the bottom in it eins og hægt er að segja líka. Ég er með eitthvað æði fyrir að setja íslenska málshætti yfir á ensku.
Jæja ég er að spá í að skella mér í náttgallan og skríða uppí rúm að lesa eitthvað skemmtilegt. Það er það besta sem ég get ímyndað mér þegar það er svona kalt veður og norðanátt. Ég er reyndar búin að finna eitt neikvætt við snjóinn núna sem ég er tilbúin að viðurkenna. Það er að mér finnst bara ogguponsulítið pirrandi þegar ég er í lágum stígvélum og pilsi og stíg óvart í djúpann snjó þanngi að það hellist gomma af ísköldum snjó beint á og í gegnum nælonsokkabuxurnar. Þetta sama atriði er ennþá meira pirrandi þegar maður er á hraðferð og er að draga Daníel á snjóþotu á eftir sér útí búð! Nóg í bili, góðar stundir!


13 janúar 2007

Snjór, já takk!

Ohhhh... mér finnst svo æðislegt þegar það er svona mikill snjór! Ég bókstaflega eeeeelska snjó! Það verður allt svo hreint og ferskt og hljóðlátt og síðast en ekki síst... stílhreint! Ég bara skil ekki fólk sem kann ekki að meta góða snjókomu og er að pirra sig yfir að umferðin gangi svo hægt. Mér finnst svo kósí að keyra bíl í miklum snjó. Þá er svo kósí í hlýjum bíl og fullt af snjó utan á rúðunum og ég eins og allir aðrir neyðist til að keyra hægt og rólega. Mér finnst þetta frábært, bara eins og góður skammtur af róandi fyrir samfélagið beint frá móðir náttúru og ekki veitir af! Svo er þetta auðvitað alveg frábært fyrir krakkana sem hlaupa út með snjóþotur og fara í snjókast og svo eru auðvitað aðrir sem eru yngri og eru kannski bara að sjá snjó í fyrsta skipti (svo þau muni) og geta bara ekki hætt að undrast á þessu hvíta efni sem þekur göturnar.
Það eru nú ekki allri sammála mér um þessa snjódýrkun t.d. Erna og Tedda vinkonur úr vinnunni. Ég get að vísu skilið þeirra snjónarmið að vissu leyti þar sem þær eru að norðan og eru vanar að vera fenntar inni næstum því á hverjum vetri.
Jæja ég vona bara að það snjói aðeins meira í dag og á morgun og hinn og hinn....

08 janúar 2007

Veik aftur...

Ég játaði mig sigraða í dag og staulaðist heim úr vinnunni áðan með gæsahúð dauðans og hor í nös. Ég er semsat veik aftur, var veik síðast í desember nota bene þannig að það er ekki einu sinni mánuður á milli veikinda hjá mér. Ég gjörsamlega þoli ekki að vera heima veik, finnst það alveg óheyrilega leiðinlegt að hanga ein í tómri íbúð. En ég er búin að koma mér upp smá veikindabæli hérna í hjónarúminu með allt sem ég þyrfti mögulega að nota til að ég þurfi alveg örugglega ekki að stíga framúr og undan heitri sænginni.
  • auka teppi
  • dagblöð, tímarit bækur
  • auka peysa
  • ávaxtasafi
  • heitt vatn með hunangi og sítrónu
  • strepsils
  • snýtipappír
  • símar
  • tölva
Sjáum til hvað ég endist lengi hérna uppí rúmi áður en ég freistast til að fara framúr og gera eitthvað gagnlegt...

03 janúar 2007



GLEÐILEGT NÝTT ÁR
2007!!!
Þá er nýtt ár loksins runnið upp enda það gamla orðið heldur betur tuskulegt. Það er margt spennandi á dagskrá á þessu ári og má þar helst nefna nýtt krílí hjá Steinu sem er áætlað þann 6.janúar, útskrift hjá mér þann 20. janúar og svo er það auðvitað langþráði draumurinn um nám og flutning til Danmerkur sem verður kannski efst á baugi.
Nýju ári fylgja auðvitað ný áramótaheit en þar sem ég er alltaf litli rebbellinn þá neita ég að strengja ármótaheit heldur setti ég mér raunsæ markmið seint, mjög seint (27.des), á síðasta ári. Þessi markmið eru ekki flókin og geranleg held ég bara.
Það er helst þetta:
  • Drekka a.m.k. 1 fullt vatnsglas á dag! Þeir sem þekkja mig vita hvað ég þoli ekki að drekka vatn, verður bara bumbult. En ég er búin að standa mig í þessu og í gær voru þau meira að segja tvö!
  • Taka inn fjölvítamín á hverjum degi. Þetta er í þeim tilgangi að vera hressari og orkumeiri og ég hef bara misst út einn dag en þá bætti ég það upp með því að taka Hárkúr, nokkurnveginn það sama - vítmaín eru vítamín!
  • Fara í líkamsrækt og setja það inní vikuplanið hjá okkur Einari. Ég held að þetta muni virka ef það er í planinu. En takið eftir að ég segi mæta í líkamsrækt en ekki missa eitthvað x bla bla bla. Ég hef reynt það áður og það hefur aldrei virkað, núna ný nálgun! Ég er allavegana búin að fjárfest í 3gja mánaða korti, raunsæ!
  • Borða minna hvítt hveiti og prófa mig áfram í spelti. Ath. minna er lykilorð hérna. Þetta er búið að ganga ágætlega og það er nú enginn svakalegur munur á speltpasta og venjulega nema kannski helst áferðin og svoleiðis.
  • Minnka sælgætisát. Þetta helst í hendur með líkamsræktinni eiginlega. Ég hef það allavegana frá fyrri reynslu að þegar ég hef mætt í líkamsrætk þá hef ég ekki tímt að eyðileggja árangurinn eftirá með nammi. Ef ég mæti hins vegar ekki í ræktina... þá hefur maður svo sem engu að tapa ;-)
  • Hérna kemur síðasta og er uppáhaldið mitt. Að hugsa betur um sjálfa mig! Já ég er búin að strita á síðasta ári og núna er kominn tími til að verðlauna mig. Þetta felur í sér að leyfa sér að fara í langt og gott bað á kvöldin, láta Einar nudda mig, fara ljós stöku sinnum og kaupa mér fallegar spennur í hárið, föt eða snyrtidót þegar mér dettur það í hug.´

Svona eftir á að hyggja þá er þetta nú bara eins og sniðið að þessum vinsælustu áramótaheitum í gegnum aldirnar. Væri gaman að heyra ef einhver annar hefur sett sér markmið á nýju ári.

27 desember 2006

Ristað brauð?

Þegar ég hugsa um ristað brauð þá hugsa ég um smjör og ost og í mesta lagi sultu eða marmelaði. Svo rakst ég á þetta! Hérna eru útlitsaðar 300 leiðir til að útfæra ristað brauð. Ég setti hérna inn fyrstu 20, afganginn má sjá hérna Svo skrítið hvað fólki dettur í hug.

Topped with butter (or a butter substitute)
Topped with your favorite jam
Topped with peanut butter
Topped with butter and sprinkled with a 30/70 mixture of cinnamon and sugar
Broken into bite sized pieces, placed in a bowl and topped with milk and sugar (known as milk toast)
Topped with butter and honey (or just honey)
Topped with gravy (as in
Chipped Beef On Toast)
Topped with
Vegemite (A thick brown paste made mostly from yeast extract, most commonly used in Australia by spreading thinly on toast or sandwiches.) Breakfast lover J.G. wrote us to say, "Butter or a substitute must be used with Vegemite in nearly every case. It's too salty otherwise. My wife, who had no idea what the stuff was, thought it vile when she first tried it. After I gave her a slice of fresh bread well buttered and spread with a little Vegemite, she was hooked!"
Topped with
Marmite - the U.K. equivalent of Vegemite. Richard of Waipukurau, New Zealand wrote in to say, "I prefer my toast spread with Marmite (New Zealand Marmite, not UK Marmite. The UK version is much sweeter). On top of that I like several slices of avocado. On top of the avocado I like several slices of tomato. Freshly ground black pepper tops it off. Variations include an addition of grilled bacon or ham." Thanks Richard. Your comments on Marmite were dyno-mite!
Sprinkled with salt (an unusual variation recently brought to public attention in England by "Marco" a contestant on their version of the "Big Brother" reality television program)
Topped with a combination of cream cheese and your favorite jam
Topped with pineapple-flavored cream cheese and banana slices
Topped with
Nutella, a creamy, chocolaty hazelnut spread sold in most grocery stores
Topped with honey butter (either store-bought or
homemade)
Topped with a combination of mashed banana and chopped almonds (see
recipe)
Topped with butter and dipped into hot cocoa
Topped with butter and dipped into coffee
Topped with
Marshmallow Fluff of similar marshmallow spread (also try in combination with melted chocolate or grated chocolate for "s'mores toast")
Topped with cinnamon raisin spread (see
recipe)
Topped with butter and slices tomatoes

25 desember 2006

Jólabloggið

Þá er aðfangadagurinn liðinn með öllu sínu pakkaflóði og upp er runninn hinn ljúfi jóladagur. Enn eitt metið var slegið í ár í pakkafjölda undir jólatrénu og má það að mestu leyti rekja til Daníels.
Við fengum líka heilann helling af jólakortum og ég hafði nánast meira gaman af því að opna og lesa þau en að fylgjast með hverjum pakkanum á fætur öðrum rifnum upp. Mér fannst sérstaklega gaman hvað það voru mörg kort með myndum og einnig voru mörg handgerð. Maður fær alltaf nett samviskubit þegar maður fær kort frá einhverjum sem maður sendi ekki sjálfur. En ef maður hugsar þetta öfugt þá hugsa ég aldrei hvort þeir sem ég sendi, sendi mér líka. Markmiðið með jólakortum er nú einu sinni að láta í ljós væntumþykju og hlýhug ásamt óskum um gleðilega hátíð. Ég vil nú samt óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Jóladagur er í mínum huga alltaf dagur aflöppunar og leti. Daníel var svo góður að lúlla til kl 8 í morgun! Þetta er besta jólagjöfin sem hann hefur getað gefið okkur. Svo erum við bara búin að hanga í leti og leika okkur af nýja dótinu hans Daníels. Veðrir er líka yndislegt þannig að ætli við förum ekki út í göngutúr á eftir og kíkjum svo kannski á jólapúslið. Í kvöld er okkur svo boðið til tengdó á Háaleitisbrautina. Það verður örugglega mjög gaman og er ég nokkuð viss um að Daníel mun vera í aðalhlutverki og þá sérstaklega hjá Öldu frænku sinni.

Jæja þetta er nóg í bili. Ætli ég þufi ekki að fara að koma mér úr náttfötunum og hafa til einhvern hádegismat... Allavegana hafið það gott og njótið samverustundanna.

18 desember 2006

15 desember 2006

Veik heima

Það hlaut að koma að því að maður léti bugast af öllum þessum pestum og veikindum sem eru í gangi þessa dagana. Þannig er því komið fyrir mér að ég sit veik heima og er að reyna að gera það upp við mig hvort ég eigi kannski að skella mér bara í sturtu og fara í vinnuna. Mér finnst nefnilega rosalega erfitt að réttlæta veikindadaga heima ef maður er ekki með hita eða getur bara bókstaflega ekki hreyft sig. Ég er búin að vera með hrikalega hálsbólgu undanfarna daga sem er alveg verst á kvöldin því þá leiðir hún útí eyrun þannig að mann kvíðir fyrir því að kyngja! Þessu fylgi síðan mikill hósti og kvef og raddmissir.
Einar þurfti að hafa vit fyrir mér í morgun og sagði mér að vera heima því ég þarf að vera góð um helgina þar sem ég þarf að æfa mig fyrir vörnina sem er á mánudaginn. Ég er svona að spá í hvað ég eigi þá að gera af mér í dag og er komin með nokkrar hugmyndir en enn sem komið er þá get ég ekki hreyft mig undan teppinu af því mér er svo kalt. Sjáum hvað setur, kannski ég fari bara í að skrifa jólakort uppí rúmi og láti það gott heita.
Í gærkvöldi fór ég til Atla litla frænda (8) sem hefur þurft að dveljast síðustu vikuna á barnaspítalanum. Greyið litla lenti í slysi meðan hann var að leika sér í leikkastala og flaug framaf eftir hæð hans og fékk innvortis blæðingar. Litli kallinn minn. Ég fór að heimsækja hann um daginn og þá fékk ég alveg sting um leið og ég kom inn því þarna lá hann eins og skata í rúminu og mátti ekki einu sinni reisa sig upp! Það var nú allt annað að sjá hann í gær þegar ég kom til að sitja aðeins hjá honum meðan að foreldrarnir fóru á jólatónleika hjá eldri stráknum. Í gær mátti hann nefnilega fara framúr í hjólastól. Atli heimtaði því að við færum í leiðangur um ganga spítalans þar sem hann þurfti nú að sýna mér hvern krók og kima. Ég get nú ekki sagt að það sé góð tilfinning að vera þarna og ég sá nokkur veik börn og þreytta og áhyggjusama foreldra. Ekki öfundsverðar aðstæður. Maður finnur að það er kvíði og vorkunn í loftinu þó svo að reynt sé að hressa uppá spítalann með besta móti og allt gert til að létta sjúklingum og aðstandendum lífið. Ég vona að ég þurfi aldrei að fara þangað aftur inn.
Það er hins vegar von á Atla heim núna um helgina en hann má ekki hreyfa sig neitt af viti næstu vikur og ekkert hlaupa eða spila fótbolta (sem er hans ástríða) næstu 2 mánuði!
Jæja ég ætla að hella mér uppá heitt te og reyna svo að leggja mig.
*Húsráð dagsins: Parkódín er mjög gott við hósta og stór skammtur af ibufeni slær hressielga á hálsbólgu tímabundið.
kve... atsjúúúúúúú!!!

13 desember 2006

ammmælisblogg...

Jæja þá er kellingin bara orðin 26 ára en ég er að sjálfsögðu bara 18 svona í alvörunni!
Frá upphafi sambands okkar Einars höfum við komið okkur upp ákveðinni hefði í sambandi við afmæli. Það byrjaði á því þegar Einar átti fyrst afmæli að ég var svo spennt yfir að gefa honum gjöfina að ég gaf honum hana seint kvöldið áður. Þannig skapaðist þessi hefði hjá okkur og núna í tæp 7 ár höfum við alltaf gefið hvort öðru gjöfina uppí rúmi eða rétt fyrir svefninn :) Þannig erum við alltaf fyrst til að gefa hvort öðru gjöf. Ég fékk semsagt frá Einari í gær fallega silfur eyrnalokka en ég var reyndar búin að fá aðra afmælisgjöf áður frá honum sem var svona meira samkomulag milli okkar. Í vinnunni í dag var síðan haldið afmæliskaffi nema hvað að þá birtist allt í einu sendill með risastóran og gullfallegann blómvönd handa mér! Ég missti næstum því andlitið, þetta var svo flottur blómvöndur með rósum og liljum og glimmeri yfir öllu saman. Þarna voru semsagt elsku vinkonur mínar, Ebba og Lára, að verki. Takk fyrir mig aftur stelpur og takk allir sem hafa sent mér kveðjur og hringt í tilefni dagsins!
Annars er lítið að frétta af mér nema að ég sit hérna uppí sófa og er að drepast úr hálsbólgu sem því miður er farin að leiða uppí eyrun. Ég vona bara að ég verði orðin hress fyrir vörnina sem er á mánudaginn. Annars er ég hrædd um að ég geti lítið kynnt þetta verkefni nema þá kannski helst á táknmáli.
Svona smá pæling hérna í endann. Ég var að heyra það í morgun að Mariah Carey sé að fara að feta í fótspor margra annara stjarna og gefa út sitt eigið ilmvatn, sinn persónulega ilm. Fregnir herma að ekki sé búið að gefa út ákveðna dagsetninu en hún er víst að vinna í þessu öllu saman núna stelpan. Yeah right... einhverra hluta vegna get ég ekki ímyndað mér Marihu (whatever) sitjandi heima hjá sér að blanda saman mismunandi ilmolíum og pæla eitthvað í þessu, fleiri? Þetta var nú bara smá útúrdúr sem fékk mig til að hlægja með sjálfri mér í morgun. og datt í hug að deila því Jæja ég hef ekki kraft í að skrif meira. Ætla að fara að kúra með teppi og heitt te.

03 desember 2006

Jólabakstur


Dagurinn í dag hefur farið í að leika við Daníel og baka smákökur þess á milli. Daníel er búinn að vera þvílíkt duglegur og stilltur að maður á bara ekki til orð, mætti halda að hann vissi að jólasveinninn væri á næsta leiti...

Allavegana langaði að láta eina ekta piparkökuuppskrift fylgja með. Þetta er ekki þessar týpísku heldur eru þetta sænskar piparkökur og maður sker ekkert úr þeim.

Sænskar piparkökur
½ kg hveiti
½ kg púðursykur
225 g smjörlíki
2 egg
30 g lyftiduft
1 tsk natron
1-2 tsk engifer
1 tsk kanill
11/2 tsk negull

Hrært, rúllað upp í stöngla, kælt, skorið í smáar kökur – sett á plötu og bakað við fremur hægan hita . ( hjá mér 150°C blástur í um 10-12 mín). Það má gjarnan minnka aðeins lyftiduftið, ég slumpa bara ;-) og svo passa sig að vera ekki of örlát á kryddið, ekki gott að hafa þær of sterkar.

Svo er hérna ein til sem er alveg ómissandi.

Kókostoppar
225 gr. strásykur
3 egg.stífþeytt
300 gr kókosmjöl
100 gr súkkulaði brytjað

Baka við 175 gráður í 10 - 15 mínútur. Bræða súkkulaði og setja með teskeið ofan á toppinn á hverri köku.

Jæja það er ekki eftir neinu að bíða, næsti skammtur er að verða tilbúinn í ofninum. Pabbi gamli kemur síðan til okkar í heimsókn í kvöld og þá er sko gaman hjá Daníel. Hann bókstaflega henndir sér utan um hálsin á öllum sem við hittum, jafnvel þó hann hafi aldrei séð viðkomandi áður! Ég er að spá í að hafa grillaðan fisk í kvöldmatinn með sítrónu og engifer, nammi namm.
Góðar stundir!

30 nóvember 2006

Kósý kvöld

Þá er ég loksins búin að hátta og leggja Daníel, taka til og ganga frá, setja í vél, vaska upp og sit núna uppí stóra sófanum með kertljós og örlítið rósavín (verðlaun). Einar er veikur og er að leggja sig þannig að það er ekkert sjónvarp í kvöld takk fyrir, bara kósý kvöld uppí sófa með góða bók og rómó tónlist.
Ég er greinileg ekki ennþá búin að venjast því að þurfa ekki að vera í verkefninu allar lausar stundir og satt að segja finnst mér ég bara hafa allt of mikið af lausum tíma. Ætli maður verði ekki fljótur að venjast þessu :) ahhh... var að muna núna að ég gleymdi að fara út með ruslið... humm.. segist bara hafa gleymt því. Bíddu, við hvern á ég að segja það? Sjálfa mig? Það er alveg ótrúlegt hvað ég lýg mikið að sjálfri mér og ég virðirst alltaf komast upp með það!! Veit ekki hvað ég hef oft svindlað í nammibindindum og sleppt því að gera hitt og þetta eins og maður sé alltaf að gera þetta fyrir einhvern annan. Kemur auðvitað niður á manni sjálfum.
Var í klippingu í dag og nú er ég aftur orðin mjög dökkhærð með smá breytingu þar sem ég er komin með þykkann og þungann topp. Fínt að breyta til eftir árstíðum. Ég hef svo sem aldrei verið hrædd við að breyta til í hárgreiðslumálunum. Sannast kannski best á því að ég var með fjólblátt hár í góðann tíma og svo auðvitað leyfði ég Láru að klippa mig eftir henntugleika (það krefst umburðarlyndi!). Man einu sinni eftir því að hún var eitthvað að klippa mig og ég endaði á að vera með því sem næst skallablett en ég meina þetta óx. Svo veit ég til þess að það koma annað eins slys fyrir hjá Láru þegar hún var að klippa einn ónefndann og eitthvað skrikaði höndin með rakvélinni... til að gera langa sögu stutta þá var bletturinn svertur með skósvertu! Ætli það sé ekki best að fara út með þetta rusl og halda svo áfram kósýheitunum...mmmmm..

28 nóvember 2006

Frelsið er yndislegt....

Þetta er bara eitt af þeim fáu lögum (um frelsi) sem ég hef verið að raula eftir að ég skilaði ritgerðinni minni inn í gær! Ég er semsagt búin, finíto, fin og THE END með þetta allt!!! I´m freeeeeeeeeeee to do what ever I... (Oasis skiluru) Var samt ekki í alveg eins góðu skapi í gær og í dag þar sem prentunin var dáldið bögg og ég er ekki alveg nógu sátt við hvernig viðaukarnir komu út en þeir voru prentaðir út úr Excell.... já já alltaf auðvelt að vera vitur eftir á en nú er þetta búið og ekkert meira hægt að gera í þessu. Ég var semsagt bara heima eftir vinnu í gær góðum fíling með Daníel og eldaði góðann mat. Einar mætti síðan heim með rósir handa duglega námsmanninum :-) Þegar búið var að leggja Daníel skelltum við okkur uppí sófa að kúra og horfa á tellann. Svo var bara farið snemma í háttinn og ég stillti klukkuna kl.6 af því að ég ætlaði að mæta súpersnemma í vinnuna en eitthvað stillti ég klukkuna vitlaust og Daníel hefur greinilega fundið að mamma sín þurfti að lúlla aðeins lengur þannig að við vöknuðum ekki fyrr en rétt fyrir 7!
Ég er allavegana útsofin og bara alveg ný manneskja í dag. EN! Þetta verður ekki gert aftur! Það er alveg glatað að vera meira að heiman en heima og að barnið manns sé með fráhvarfseinkenni vegna skorts á knúsum! En núna eru jólin framundan og ég ætla að fara að skella mér í smákökubakstur og jólagjafainnkaup þar sem vörnin er 18. desember. Minnir mig á það að það er enn ein eldraun sem maðru á eftir að ganga í gegnum. Fékk sent um daginn upplýsingar um prófdómarann minn og.....SHITT! Ég, eins og nútímamanneskju sæmir, googlaði auðvitað gæjann af því ég hafði aldrei heyrt um hann og.... ja þið getið bara lesið sjálf um hann hérna og dæmt um þetta. Ég nenni ekki að hugsa meira um þetta.
En allavegana þá er ég alveg að komast í jólagírinn og um næstu helgi verður kransinn tekinn fram og á mánudaginn ætla ég að koma með eitthvað skraut til að skreyta hornskrifborðið mitt. Möppur og pennastatíf munu fá að fjúka fyrir einhverju fallegu jólaglingri.... ohhhh hlakka svo til!

19 nóvember 2006

Snjókorn falla.....

.. á allt og alla! Vei eeeelska snjó!
Ég nenni ómögulega að rifja upp síðustu tvær vikur þannig að ég hef ákveðið að koma með suttu útgáfuna hérna:

Fréttir
  • Alveg orðin útkeyrð eftir alla vinnuna
  • Búin að skila rigerðinni til efnislegs yfirlestrar
  • Á eftir að ganga frá og fínpússa hana
  • Skil eftir 9 daga
  • Loksins búin að kaupa sófann sem mig langaði í
  • Í leiðinni kom nýtt ljós og sjónvarp inní stofu
  • Ekki búin að versla neinar jólagjafir

Ég er semsagt búin að eyða helginni í makindum með strákunum úppí stóra-súper-djúsí sófanum okkar. Ég verð nú að segja að þetta er bara besta frjáfesting sem ég hef gert fyrir utan íbúðina auðvitað sem rúmar þennan sófa :) Mér finnst þetta líka svo gaman af því að mér finnst eins og ég eigi þetta svo skilið eftir allt puðið og fátæktina meðan við vorum í skólanum. Svo ég tali nú ekki um gömlu góðu Guðrúnargötuna og allt það vesen sem fylgdi henni eins og einfalt gler og rafmagnstafla dauðans.

Daníel er búin að sakna mín ansi mikið og er komin með mikil fráhvarfseinkenn.i Það lýsir sér í því að hann vill vera mikið á höndum hjá mér og svona fyrst þegar ég er komin heim þá má ég helst ekki hverfa úr augnsýn og ALLS EKKI nálgast útidyrahurðina eða fatahengið!

Það sem er framundan hjá mér núna er að klára þessa blessuðu ritgerð sem er komin uppí tæp 11 þúsund orð og skila henni inn. Taka mér smá frí eftir það og reyna að redda nokkrum jólagjöfum og svo er það bara undirbúningur fyrir vörnina sem fer fram einhverntíma milli 16. og 20 desember.

Jæja best að fara kannski að kíkja út með litlu rófuna mína. Hann er alveg steinhissa á öllu þessu hvíta dóti sem er úti og getur varla slitið sig frá glugganum. Alveg frábært að fylgjast með þessu. Lítur út fyrir að Einar verði að vera heima að vinna í dag þar við komum ekki fjallabílnum einu sinni útaf bílastæðinu. Svona er það að búa í sveitinni kakkar mínir :)

13 nóvember 2006

Ég er á lífi....

.... eða rétt svo. 15 dagar í skil....

02 nóvember 2006

Brúðkaupsmyndirnar


Loksins, loksins er Einar búinn að skanna inn brúðkaupsmyndirnar og í leiðinni næstum búinn að bræða úr skannanum hjá tengdó. Þær eru semsagt hérna. Kannski ekki bestu gæðin en það er nú heldur ekki beint pointið.
Svo vorum við líka að setja inn fullt af nýjum myndum inná síðuna hans Daníels sem er hérna. Sko okkur, ekki dugleg?