02 febrúar 2008
Leiðinda veður og enginn bankareikningur
Mér hefur gengið svona stórslysalaust að hafa samskipti við danina og ég held áfram að þjóskast við og nota mína mjög svo slöppu skóladönsku. Mér tóks hins vegar einhvern veginn að brjóta ósýnilegu siðareglunar með því að standa ekki á réttum stað í röðinn við kassann í matvörubúðinni. Ég veit aldrei hvar maður á að standa því danirnir borga stundum beint við kassan en oftar en ekki þá borga þeir aftan frá þar sem er posi og peningafæribandið ógurlega. Ég semsag stóð á vitlausum stað og einhver gamall kall fnussaði á mig því hann þurfti að fara famhjá mér til að ná í skilrúmið. Já meðan ég man maður verður að setja skilrúmið eftir sínum vörum UM LEIÐ og þú ert búinn að sleppa síðasta hlutum á færibandið annars á maður ekki von á góðu.
Það sem er hins vegar merkilegra er þegar ég fór í bankann til að stofna bankareikning. Ég fór semsagt með stórplön í bankann og ætlaði hvorki meira né minn en að stofna tékkareikning með debetkorti og merkja hann sem Nemkonto (búin að fá skammir frá hinu opinbera fyrir að vera ekki búin að þessu). Ég semsagt fór í Danskebank (þar sem Einar er) og tók númer og meðan ég beið þá hugsaði ég í gegn samskiptin og hvað og hvernig ég ætti að segja hlutina á dönsku til að gera mig skiljanlega. Þegar loksins kom að mér þá byrjað ég mína ræðu um bankareikninginn og var bara nokkuð ánægð með mína frammistöðu :) Konan hins vegar tjáði mér það að ég gæti ekki stofnað bankareikning núna því það hefði enginn tíma til að sinna því!!! Hún tók ljórit af passanum og CPR númerinu mínu og ætlaði að senda mér gögn í pósti sem ég ætti að fylla út og senda þeim síðan til baka. "Bíddu og hvenær er þá bankareikningurinn tilbúinn?" spyr ég, konan sagði mér bara að kíkja við nokkrum dögum eftir að ég væri búin að senda bréfið til baka. Með þessar upplýsingar fór ég þögul og hálfdofin úr bankanum. Það var ekki fyrr en ég kom útá götu að ég áttaði mig hvað hafði gerst. Það hafði enginn tíma til að vera að stofna bankareikning fyrir mig! Hverskonar þjónusta er þetta? Maður á bara ekki að venjast þessu. Sjáið þið þetta fyrir ykkur í anda gerast heima? Ég ætlaði nú eiginlega bara að labba beint yfir í Nordeabank sem var beint á móti en fattaði þá að Einar er í Danskebank (djö) og leigusalinn okkar líka (2xdjö). Ég fór semsagt bara heim með sárt ennið og reyndi að vera ligeglad yfir þessu öllu samna, þýðir nokkuð annað?
29 janúar 2008
Matvöruverslanir og fleira.
Manni finnst allt hérna ganga útá að spara sem eru auðvitað als ekki svo vitlaust. Ef maður sparar eða réttara sagt fer vel með peningana sína þá þarf maður ekki eins mikið af þeim og þá er kannski síður hætta á að fólk falli í hringiðu lífsgæðakapphlaupsins sem við Íslendingar erum oft kennd við. En aftur að sparnaðinum. Matarverð er almennt aðeins lægr en heima en það er líka af því að það er meira úrval af non-brand vörum sem eru oft á tíðum ekkert síðri. 2gja lítra kók eða sprite er kannski á 18-19 kr en ef þú kaupir non-brand coop límonaði þá er það ekki nema 9,50 kr og er bara mjög gott. Það er sama hvaða búð maður fer í, það gengur allt útá magninnkaup. Á verðmiðum stendur stórum stöfum alltaf verðið á tveim eða fleiri pakkningum og til hliðar stendur með litlum stöfum stykkjaverðið og hvað maður er að spara mikið með því að kaupa tvennt eða fleiri pakka í einu. Á kjöti stendur oft 5 pakkar á xx verði. Hver kaupir ekki t.d. 5 pakkningar af 800 gr. svínahakki og við skulum ekki gleyma að það þarf að halda á þessu eða hjóla með þetta heim. Ég vil oft láta freistast með svona magntilboðum en oftast nær skynsemin yfirhöndinni þar sem ég hugsa "ok, þarf ég virkilega 3 pakka af snakki?" Grænmeti og ávextir eru oftast merktir með stykkjaverði og þá hljóma tilboðin eins og 10 bananar á 18 kr í staðinn fyrir 20 kr þú ert að spara 2 kr! Það eina sem ég hef ekki enn séð á svona magntilboði eru mjólkurvörur, sem eru ekki niðurgreiddar, nema þá ostur og hann er þá oftast á einhverju tilboði. Það er líka fyndið með tilboð, danir virðast næstum því ekki kaupa hluti nema þeir séu á tilboði og ég hef heyrt sögur um fólk sem keyrir milli verslana í eltingaleik við tilboð í stórmörkuðum.
Það er tvímælalaust önnur menning í matvöruverslunum hérna en heima. Matvöruverslanir eru opnar frá 8/9-20 alla virka daga og á laugardögum frá 10-17 og lokað á sunnudögum. Þetta kemur af því að stórmörkuðum eru settar ákveðnar reglur um opnunartíma til að vernda smákaupmennina sem hafa leyfi til mun rýmri opnunartíma. Sunnudagsopnanir í almennum verlunum eru auglýstar sérstaklega og það er þá yfirleitt fyrsti sunndagur í hverjum mánuði. Það tók smá tíma að venjast þessu en þetta er bara af hinu góða enda er full vinnuvika hjá dönum 38 tímar á viku í stað 40 hjá okkur og oft er yfirvinna ekki leyfð.
Hérna í lokin eru nokkur verðdæmi 1 Dkr er ca.12,8 ISK
1 l jógúrt 14,5 kr.
Philadelphia smurostur 14,95 kr
300 gr kokteiltómatar 15 kr
Colgate tannkrem triple action 2pk. 19 kr.
ca.800 gr. kjúklingabringur (4-5 stk) 64,50 kr.
1 stk banani 2 kr
Rucola salat meðalbakki 12 kr.
Frosið hvítlauksbrauð 3stk. 15,95 kr.
Svína panna (tilbúinn réttur dugar fyrir 3) 40 kr
Það sem ber að taka fram að þessi verðdæmi eru tekin úr ódýrari verslunum sem jafnast á við Krónuna og Bónus. Ef þú kaupir gos í flösku sem er með pant (skilagjald) þá ertu rukkuð fyrir pantið í búðinni (3 kr) en færð það síðan til baka þegar þú skila inn flöskum. Þetta er auðvitað gert til að hvetja (humm.. neyða?) fólk til að endurvinna. Sælgæti á svipuðu róli og heima því "sykurskattur" er mjög hár hérna, en við látum það nú ekki stoppa okkur. Fleiri staðreyndir um matövurverslanir t.d. nýjustu tækni í búðarkössum má finna á síðunni hans Einars
24 janúar 2008
Sólarsagan fyrsti partur
Er það ekki bara best að segja alla sólarsöguna? Við mættum hingað semsagt á þriðjudaginn fyrir viku síðan og ég var hálfdofin eftir flugið. Einar var búinn að fjárfesta í einu húsgagni og það var svefnsófi sem stóð inní risa stórri stofunni.
Einar var rosalega spenntur að fá okkur og gleðin skein úr andlitinu á honum um leið og hann var hálfkvíðinn að sjá hvernig okkur myndi líka það sem hann var búinn að skaffa hérna, þessi elska. Við fórum öll snemma að sofa þetta kvöld og næsta dag tók Einar sér frí til að fara með okkur í “þjóðskrána” og skrá okkur inní landið. Það gekk ekki nógu vel þar sem við hugsuðum ekki útí að taka með okkur húskaparvottorð fyrir okkur og fæðingarvottorð fyrir Daníel. Þannig að við vorum skráð ógift inní kerfið og Daníel foreldralaus. Þetta stendur allt til bóta og viti menn við fáum barnabætur fyrir Daníel!
Í bæjarferðinni fórum við líka í Tiger og keyptum glös og skálar þar sem við áttum gjörsamlega ekkert í eldhúsinu fyrir utan nokkra hluti sem Einar fékk lánaða frá Öglu systur sinni til að lifa af fyrstu dagana meðan að við vorum að koma okkur fyrir. Glösin sem við keyptum eru glær með litaðri brún og Daníel var fljótur að fatta að þetta var eins og glösin hjá Völu og Hjalta og er mjög duglegur að minna á það.
Næstu dagar fóru í að kynna sér umhverfið og hverfisbúiðna þar sem mér tókst að fá 3gja hluta pottasett á tilboði og hnífapör ásamt því allra nauðsynlegasta. Hérna verður maður hins vegar að passa sig að taka ekki of mikið og forgangsraða hvað maður þarf helst því auðvitað þarf að halda á þessu öllu heim þar sem enginn er bíllinn. Það er erfitt að forgangsraða þegar mann vantar allt og enn sem komið er hefur voðalega lítið bæst við í eldhúsið af mat þar sem búðin sem er hjá okkur er svipuð Hagkaup og ég vil ekki vera að gera stórinnkaup þar. Næsta “hagkvæma” búð sem ég veit um er Bilka sem er í Field´s en það er líka töluvert labb útá metróstöðina og maður gerir það ekki einn með lítinn gutta í eftirdragi þanngi að ég verð að bíða eftir Einar hafi tíma til að koma með.
Á laugardaginn síðasta fengum við Öglu til að koma að passa fyrir okkur og við lögðum af stað í IKEA leiðangur. Upprunalega planið var að leigja bílaleigubíl og gera fleiri útréttingar í leiðinni. Þegar kom hins vegar að því að leigja bílaleigubíl þá komumst við að því að það kostaði 20.000 með fullri tryggingu í 3 daga ( það var sama verð fyrir 1 eða 3 daga). Þetta fannst okkur alltof mikið fyrir okkur og hættum snarlega við. Þannig að við tókum bara almenningsamgöngurnar og ákváðum að sleppa frekari útréttingum.
IKEA í Gentöffte er svona svipað að stærð og nýja búðin heima fyrir utan að það er fjórfalt meira af fólki í búðinni. Við þurftum görsamlega að kaupa allt! Það tekur alltaf miklu lengri tíma að fara í IKEA en maður gerir ráð fyrir og sérstklega þegar maður þarf að kaupa svona margt. Það sem við þurftum nauðsynlega að kaupa af húsgögnum var; hjónarúm, borðstofuborð, sjónvarpsborð, kommóðu og lítið borðstofuborð og stóla. Auk þess ætluðum við að taka ýmislegt smálegt eins og uppþvotta og þvottgrindur, ruslafötur, diska og annað slíkt. Við vorum fjót að átt okkur að við þurftum enn og aftur að forgangsraða og við ákváðum að taka drífa okkur bara í húsgögnin og það var nú meira en að segja það þrátt fyrir alla þessa flötu og fínu pakka. Við enduðum með 2 troðfulla vagna þannig að við sáum varla fram fyrir okkur þegar við vorum að leiðinni á kassann. Þá fyrst byrjaði biðin. Það var lögn röð á kassann og eftir hana þurftum við að sækja hluti fyrir rúmið á annan vörulager og svo fara í heimsendingarröðina. Frá því að við byrjuðum að standa í kassaröðinni og þar til við vorum búin að losa okkur við vörurnar í heimsendngu leið rúmur klukkutími. Eftir það hlupum við í gegnum búðina aftur,já hlupum útaf heimsendingartímanum, og reyndum að pikka upp allt það sem við mundum eftir og gátum haldið á heim. Allt í allt tók ferðin í IKEA um 6 tíma held ég og við erum agljörlega búin að fá nóg af þessari blessuðu búð! Ég ætlaði að bjóða Öglu í góðan kvöldmat en þar sem við komum heim eftir kl.5 þá var auðvitað búið að loka öllum búðum og það eina sem ég gat boðið uppá voru samlokur úr seven-eleven, það var þá flottur kvöldmatur. Kvöldið fór síðan í að setja saman húsgögn og hengja upp gardínur.
Það var aldeilis munur að fá að sofa í almennilegu rúmi eftir að hafa sofið í lengri tíma á þessum svefnsófa og íbúðin er öll orðin mjög hugguleg eftir að við fengum smá af húsgögnum. Ég er sérstaklega ánægð með að fá gardínur í stofuna því áður breiddum við fyrir gluggann með pappaspjöldum því við auðvitað sváfum í stofunni líka.
Þetta er allt að koma og búslóðin okkar kom í fyrradag. Ég verð samt að viðurkenna eftir því sem mann vantar minna af dóti og þetta verður hversdagslegra þá hverfur ævintýraljóminn....
21 janúar 2008
Sambandi náð!
Þetta verður voðalega stutt færsla vegna þess að Einar þarf að fara að nota tölvuna við að læra í litlu kompunni sem hann er stoltur af að kalla skrifstofuna sína. Hvað get ég mögulega sagt í svona stuttum pistli þegar gjörsamlega allt líf mitt hefur umturnast á örfáum dögum?
Fyrsta daginn var ég eiginlega bara hálfútúr heiminum. Íbúðin galtóm fyrir utan einn svefnsófa í stofunni og veggfast eldhúsborð í eldhúsinu. Við erum hins vegar búin að bæta úr því og þetta er að verða smám saman heimilislegt. Mér finnst íbúðin frábært og ég verð að viðurkenna að hún fór framúr mínum björtustu vonum. Ég er búin að kynnast mínu allra nánast umhverfi lítilega þar sem við þurfum auðvitað að fara allt fótgangandi þar sem við erum ekki einu sinni komin með hjólið okkar. Meðan ég man við Einar æltum að stofna myndasíðu sem ég mun linka á hérna fljótlega.
Lífið og aðgerðaleysið er smám saman að venjast en vá hvað ég myndi ekki nenna að vera heimavinnandi húsmóðir til lengdar, henntar mér engann veginn. Ég er hins vegar búin að ákveða að taka lífinu með ró fyrstu vikurnar og æfa mig á dönskunni með því að lesa fríblöðin og ruslpóstinn :D
Fengum sjónvarp og net í dag og búslóðin er væntanleg á morgun. Ég er í basli með að koma símanum mínum í gagnið og það lítur út fyrir að ég þurfi að kaupa mér nýjan síma þar sem Vodafone hefur læst símanum mínum þó svo að ég hafi STAÐGREITT hann á sínum tíma. Fasistaf+&$=:@. Jæja þetta verður að duga í bili, kem með allar sólarsöguna eftir nokkra daga. Já og svo eru um að gera að bæta mér inná msn-ið ef svo ólíklega vill til að ég er ekki þegar þar karenolga@hotmail.com og skypið auðvitað líka karenolgaarsalsdottir og svo ef einhverjum leiðist virkilega virkilega virkilega mikið þá megið þið senda póst á mig á kareno@ru.is og ég verð rosalega þakklát fyrir hverja línu!
p.s. ástar-haturs samband mitt við IKEA er hafið.
14 janúar 2008
Birketinget 2b
Nú er spennan alveg að ná hæstu hæðum, vildi bara að þetta væri búið, vildi að morgundagurinn væri kominn! Búin að hafa alveg nóg fyrir stafni í dag eins og hina dagana en samt mikill léttir að vera búin að klára íbúðina og afhenda hana leigjendunum. Að hugsa sér að á morgun um þetta leyti þá verð ég mitt á milli Íslands og Danmörku þ.e.a.s. mitt á milli gamla heima og nýja heima. SPENNÓ! Það gætir hins vegar verið nokkur bið þar til ég kemst næst í netsamband en Einar verður bara að vera duglegur að uppfæra síðuna sína einaregilsson.com og þar verður þá hægt að nálgast fréttir af okkur í millitíðinni.
11 janúar 2008
Bara 4 dagar...
Vá hvað ég vona Sandra að það sem þú ætlir að segja mér sé það sem mig grunar.... ég mun fylgjast með síðunni þinni!
05 janúar 2008
Nú verður ekki aftur snúið...
Í dag er það svo að flytja öll húsgögnin í búslóðageymsluna og farangurinn til Tomma bró þar sem við verðum þar til við förum til Danmerkur.
Það eru nokkrir búnir að koma að skoða íbúðina og líst okkur misjanflega vel á umsækjendurna eins og eðlilegt er. Held við séum samt nokkurnveginn búin að ákveða hverjum við leigjum nema það komi þá einhver nýr að skoða í dag sem okkur líst betur á.
02 janúar 2008
Gleðilegt nýtt ár!
Ég gafst alveg upp á bloggskriftunum þarna í lok síðasta árs enda var ég orðin dáldið útkeyrð og það hefði hvort sem er ekkert skemmtilegt komið út úr því. Jólin eru búin að vera frábær og mikil rólegheit þar sem við vorum búin að ákveða að geyma allt flutningsvesen þar til eftir jól. Nú er semsagt komið eftir jól og við erum á fullu að pakka niður og ég verð að segja að þetta er meira að segja erfiðara en ég átti von á. Hvern hefði grunað að maður væri svona tengdur gamalli salatskál og slitnum skóm? Það er svo skrítið að líta hérna yfir þar sem frekar lítið er eftir af dóti og veggirnir tómir. Held nú að Daníel verði hissa þegar hann kemur heim!
Við erum loksins búin að drattast að auglýsa íbúðina til leigu, ef einhver hefur áhuga þá ætlum við að leigja hana á 140 þ. með öllu nema geymslunni niðri sem við nennum ekki að tæma.
Íbúðin okkar í Kaupmannahöfn er rúmir 80 fm og 2gja herbergja. Ég myndi setja hérna nánari lýsingu ef ég væri búin að sjá hana en eins og er þá er ég að renna í þetta blint. Það eina sem ég veit er að hún er á 1.hæð það er útgengt útí garð og hún er hvít máluð :) Við verðum staðsett á Amager sem er eyjan við Kaupmannahöfn þar sem flugvöllurinn er.
Einar fer út 6. jan og við Daníel förum út 15.jan. Verð sennilega eitthvað netlaus til að byrja með en um leið og það verður komið í gagnið þá mun ég vera dugleg að setja hérna inn fréttir af okkur.
Vi ses!
29 nóvember 2007
Summer

23 nóvember 2007
hehehe...góður!
Neytendur hvattir til að taka sér frí frá innkaupum
Frídagur neytenda „Kauptu ekkert dagurinn” er á morgun og hvetja Neytendasamtökin Íslendinga til að taka sér frí frá innkaupum þann dag og nota daginn þess í stað til að íhuga áhrif innkaupa þeirra á eigið líf og umhverfi.
Getur einhver séð fyrir sér tóma Smáralind á laugardegi?
01 nóvember 2007
Skíííííííííííííítakuldi og heimsókn
Að skemmtilegri hlutum. Á sunnudagsmorgun var dinglað á bjölluna hjá mér. Hver getur verið svona snemma á ferð á sunnudegi hugsa ég þar sem ég geng hálf stirð á náttsloppnum til dyra. Þegar ég opna fram í andyrið sé ég einhverja stelpu hoppandi og skælbrosandi fyrir utan og er dálitla stund að fatta að þetta var EBBA vinkona/frænka/fyrrverandi skólasystir og nágranni. Ég fékk SJOKK! Ekki bara af því að Ebba á svona yfirleitt að vera í Danmörku heldur var íbúðin líka í rúst eftir ömurlega viku hjá mér. En hvað um það, Ebba kom færandi hendi með sunnudagsbakkelsi og sitt einstaka góða skap. Ég get ekki lýst því hvað það var gaman að sjá hana svona óvænt. Það er eitthvað við æskuvinkonur sem er alveg einstakt eins og við Ebba vorum að tala um. Jú, auðvitað getur margt annað gott fólk komið til seinna á lífsleiðinni en það hefur enginn tærnar þar sem Ebba, Lára og Sandra hafa hælana og þess vegna finnst mér alltaf svo óendanlega leiðinlegt hvað þær eru allar langt í burtu. Ég held að það sé eitthvað við að kynnast svona ungar þegar maður er í raun bara ennþá autt blað og saman myndar maður sér skoðanir og á sama tíma verður sér út um reynslu sem maður deilir með hinum og verður fyrir áhrifum frá. Ohh... það er svo margt sem skýst uppí huga minn þegar ég hugsa um allt sem maður hefur lent í með þessum skvísum. Ef ég ætti að nefna nokkur dæmi: Samstæðu Lottó-gallarnir, tjaldútilegur útí garði, 17.júní, í ljósum undir skrifborðslampanum, skipt um kjól á miðju MK-balli, Eurovision og Grees dýrkun, Tequila og kippa af bjór, skátarnir, fatapóker, pissustæði með útsýni yfir allan Hafnafjörð, '80-böllin, peningablóm og margt fleira. Ég get ekki beðið eftir að komast út til Danmerkur þó það væri ekki nema bara til að fá að hitta Ebbu og Láru reglulega.
Síðan það var svona kalt hérna þá er ég búin að vera að skoða og lesa aftur bókina "Hot drinks on cold nights" og það eru ekkert smá girnilegir dykkir sem verið er að kynna í þeirri bók. Ætla að fara útí búð á morgun og kaupa kanel stangir, chillie, engifer og anís. Einn af drykkjunum sem ég sá var mjög einfaldur. Bara flóuð mjólk með sykri og smá anís... hljómar vel sem drykkur yfir góðri bók fyrir svefninn. Annar sem ég sá var heitt súkkulaði úr hvítu súkkulaði með smá saffron. Þriðji sem mér finnst reyndar líka mest spennandi eru seiði eða "infusion" þar sem kanill, engifer, chillie og döðlur er soðið sama með smá sykri. Það er allavegana af nótu að taka.
Bráðum kemur sweet helgarfrí en ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég eigi að gera af mér/okkur. Ég ætla svo sannarlega ekki að treysta á veðrið frekar en venjulega, er það bara ég eða er virkilega búið að vera skítaveður síðasta mánuðinn? Ég gæti trúað að ég myndi leigja mér það sem ég á eftir að horfa á af Grey´s þar sem ég er búin með alla þættina mína og hef horft á síðsutu tvo í gegnum netið í ömurlegum gæðum (jebb, mjög desperatos).
23 október 2007
Öll að hressast
Það eru stórframkvæmdir í íbúðinni við hliðna á mér og hávaðinn er ótrúlegur. Daníel er búinn að vera að vakna upp í kvöld vegna hans og nú er klukkan orðin hálf 11 og ég er á leiðinni að fara að tala við þau ef þau byrja aftur að bora. Ekki beint fyrstu samskiptin sem maður vill eiga við nýja nágranna en auðvitað ætti fólk að sýna tillitsemi í fjölbýli og sérstaklega þegar um er að ræða börn.
Afhverju á ég alltaf svona erfitt með að standa á rétti mínum en er roslaega fljót til þegar brotið er á einhverjum öðrum? Á þetta við um fleiri?
Hvenær ætli maður fari svo að byrja á þessum bókum sem ég var búin að hugsa mér að lesa meðan að ég væri ein hérna. Ég sá þetta svo fyrir mér að þegar Daníel yrði farinn að sofa á kvöldin þá myndi ég setjast niður í a.m.k. klukkutíma með kaffi og góða bók og bara slappa af og lesa. Hehe maður getur verið svo barnalegur á stundum og bjartsýnn. Ein vinkona mín ætlaði nú að skrifa skáldsögu í fæðingarorlofinu þannig að kannski voru mín fyrirheit ekki svo út úr kú. Hvað er annars að frétta af skáldsögunni?
Svona í lokin þá ætla ég að segja frá einu af mörgum vandræðalegum mómentum sem ég lendi í.
Ég var semsagt í aðalbútibúinu í Landsbankanum um daginn og þar er númerakerfi eftir því hvort maður ætli að fara til gjaldkera eða þjónustufulltrúa. Útibúið er mjög stórt (fáránlegt skipulag líka) og uppá veggjunum eru skjáir sem segja manni hvaða númer á að fara á hvaða bás. Nema hvað að ég sé þarna mann sem er fatlaður á 2 hækjum og hann lítur út fyrir að vera mjög ráðavilltur og er eitthvað að vafra þarna um horfandi á þjónustufulltrúana spurnaraugum og leit út fyrir að hann vissi ekki alveg hvað hann var að gera. Ég í góðmennsku minni (stupid) náði í miða til þjónustufulltrúa og gekk að honum og sagði að það væri númerakerfi fyrir þá líka og ætlaði að rétta honum miðann. Þvílíkt svakalegt fyrirlitningarlook hef ég aldrei séð á ævinni þegar hann sneri sér að mér og sagði bálreiður "ég veit það!" og í þann mund sá ég skína í miðasnepil í hendinni á honum. ÓTRÚLEGA VANDRÆÐALEGT! Ég sneri mér skömmustulega undan og reyndi forða mér undan augnaráði mannsins eins fljótt og ég gat og óskaði þess heitt að röðin væri komin að mér hjá gjaldkeranum. Hvað getum við lært af þessu? Jú, ALDREI hjálpa fólki og sérstaklega ekki þeim sem líta út fyrir að vera minnimáttar.
22 október 2007
Veðrið hæfir skapinu
Keypti mér stóran poka af lakkrískonfekti og annan af súkkulaðirúsínum í dag. Neyddi síðan samstarfskonur mínar til að borða þetta eftir að ég var búin að hella þessu í skál og byggja skaldborg úr dagatali og pennastatífi til að þurfa ekki að sjá þetta og freistast. Er vit í þessu? Ekki nokkurt en mér finnst gaman að sjá annað fólk fá sér eitthvað gott að borða og nammi færir oftast fram bros á vör og skemmtilegar samræður þannig að það lætur mér líða betur.
Ég er byrjuð smám saman að taka til og skipuleggja í huganum hvað ég ætla að eiga og hverju ég ætla að henda eða gefa þegar við flytjum. Sé eiginlega jólin fyrir mér í galtómri íbúð nema bara sófi og borðstofuborð, hey ég get þá allavegana fengið mér risastórt jólatré! Sem betur fer hef ég ekki verið að sanka neitt mikið að mér og tvennir flutningar á síðastliðnum 3 árum hafa vissulega gert sitt gagn við að halda eignum í skefjum. Ég á svo eftir að sakna íbúðarinnnar okkar því ég get með sanni sagt að mér hefur aldrei liðið eins vel nokkurstaðar eins og hérna. Mig hlakka líka til að taka hana aðeins í gegn þegar við komum heim og skipta um gólfefnið sem ég er búin að vera að halda aftur af mér að gera vegna fyrrnefndra flutninga.
Síðan er ég búin að ákveða eitt! Þegar við komum aftur heim til Íslands þá er ég svoooo að fara að fá mér litla kisu eða jafnvel tvær (sorry, Alda)! Það er ömurlegt að hafa engin dýr á heimilinu og í mínum huga í raun óheilbrigt. Ég hef alltaf átt kisu síðan ég man eftir mér og fyrir það þá fengum við alltaf nágrannaköttinn lánaðann og ég fékk að keyra hann um í dúkkuvagninum mínum! kssss, kssss....

Þetta var póstur 100!
18 október 2007
ekkert spes...
Svo sem lítið að frétta nema að Sandra er ólétt hinu megin á hnettinum og myndavélar virðast vera bannaðar á því heimil. Þeir taka það til sín sem....
Er farin að vera dáldið spennt yfir því að hætt að vinna. Yfirfærsla á verkefnunum mínum er þegar hafin og ég má teljast heppin ef ég hef eitthvað að gera í desember! Það gengur hins vegar ekki eins vel að finna íbúð í Danmörku. Flestar íbúðir á leigumiðlunum eru til leigu í stuttan tíma eða þá að þær eru með sameiginlegu baði eða eldhúsi sem ég er bara engann veginn til í. Sjáum til hvernig fer. Ef einhver veit um íbúð í Kaupmannahöfn þá endilega látið mig vita!!!
11 október 2007
Teljari og stórtíðindi!
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Daníel var með hita í kvöld, er eiginlega bara komið í rútínuna á heimilinu að hann sé veikur a.m.k. einn dag í viku. Ég fékk líka gubbupest í fyrsta skipti á ævinni á þriðjudagskvöldið og nóttina. Ahhh... good times!
En að öðrum og mun merkilegri fréttum að mínu mati allvegana. Daníel lét nr.2 flakka í fyrsta skipti í koppinn í kvöld. Afraksturinn var nú ekki mikill enda er aumingja strákurinn eitthvað stíflaður og með magaverki en nóg samt til að það teljist með. Hann er búinn að vera að pissa í kopp og klósett síðan í lok ágúst en nú fyrst er komin alvara í þetta. Þetta er búið að kosta margar hlaupaferðir á koppinn og langsetu inná baði en svo sannarlega þess virði! Jæja, nóg af koppafréttum :D
Svo í lokinn verð ég nú að segja hvað ég er hrikalega ánægð með hann Björn Ingva og framsóknarmenn að standa uppí hárinu á sjálfstæðismönnum og láta ekki vaða endalaust fyrir sig. Nú gengu Vilhjálmur og co. of langt og fengu loks að finna fyrir þér. Mér fannst hann Bogi Ágústsson segja þetta langfyndnast í aukafréttatímanum í dag:
Sjálfstæðismenn höfðu ekki hugmynd um að framsókn og aðrir flokkar væru í viðræðum.
Þeir höfu ekki hugmynd um að eitthvað væri í gangi þegar Björn Ingvi mætti ekki á fund og Vilhjálmur hafði ekki hugmynd um hvað til stæði þegar Björn Ingvi hringdi og sagði honum tíðindin. Svo fannst mér líka gaman að sjá Gísla Martein hundfúlann!
Jæja bóndinn kemur heim á laugardaginn og verður heima í viku!
05 október 2007
... enn og aftur veikindi
Hvað var ég aftur að tala um? Ó, já, barnið! Þegar heim var komið var hann nú farinn að hressast og fékk var ólmur í að fá sér flatkökur með smjöri (uppáhaldið) og epladjús. Svaf tæpa 2 tíma í hádeginu sem er algjört met og fékk sér meira að segja smá snúð í kaffinu. Hann hefur hins vegar ekki viljað borða neitt í kvöldmat og heimtaði sjálfur að fá að fara að sofa korter í 8!
Ef þetta segir mér ekki að hann sé veikur þá veit ég ekki hvað. Hann er líka kominn vel uppá lagið með sjálfvorkunnina þar sem hann gengur upp að mér (sérstaklega ef ég hef ekki verið að veita honum athygli t.d. elda) og segir "ég er slappur" eða "ég gubba". Þetta fær mig alveg til að tikka sko (en ekki hvað?) og maður hleypur til í hvert skipti og svo er hann oftar en ekki að plata sem mér finnst alveg.....hefur einhver heyrt um "úlfur, úlfur"?
Anyway ætla að fara að leggja mig hjá litlu rófunni minni þar sem hann liggur í hjónarúminu (dem, þetta var akkúrat helgin sem ég ætlaði að endurheimta rúmið) sem er allt yfirbreitt handklæðum. Góða nótt.
04 október 2007
Hvað er ég að gera?
Ég sakna Einars alveg ótrúlega. Ég fann sérstaklega fyrir þessu í gær þegar Daníel var fyrst búinn að gubba í Krónunni og svo yfir hálfa stofuna seinna um kvöldið. Ég var dauðuppgefin þegar ég var búin að koma honum í háttinn og þrífa allt og lyktaði sjálf af ælu og svita þegar ég loksins settist niður. Þá fannst mér ég vera virikilega ein þar sen ég sat í hljóðri íbúðinni og hafði engann til að deila þreytunni minni með....
01 október 2007
Punktablogg hjá mér líka
- Daníel er búinn að vera með þurran hósta í viku. Fáum lítinn svefn á nóttunni vegna hóstakasta. Fór loks með hann til læknis eftir að vera búin að prófa allt annað og læknirinn sagði að það væri ekkert að honum, stálhraustur. Læknirinn sagði að allar hóstamixtúrur væru gagnslausar þar sem nú væri bannað að framleiða þær með kódíni. Skrifaði lyfseðil fyrir parkódín sem ég á að gefa 1/2 fyrir svefn. Á víst að vera mjög hóstastillandi.
- Fengum tilboð um íbúð í síðustu viku í DK. Rosalega fín íbúð 57 fm og leigan um 60.000 kr á mánuði og allt innifalið. Fengum hana ekki því Einar hafði misskilið inntökuskilyrðin. Kannski bara fyrir bestu því hún var frekar langt í burtu eða 45 mín með lest niðrí bæ. Höldum áfram að leita.
- Einar fór með Ebbu og Láru (o.fl.) á djammið í Köben. Pínu abbó út í Einar verð ég að viðurkenna fyrir utan hvað það er skrítið að maðurinn minn er með vikonum mínum án mín. En rosalega fegin að þær drógu hann með sér.
- Fór í sumarbústað um helgina með Völu og Jökli. Mjög fínt. Gott að breyta um umhverfi.
- Er búin að vera að taka til í tæpa 2 tíma í kvöld þar sem ég var að skila sameigninni af mér + drasl eftir sumarbústaðaferðina.
- Gengur ekkert með Grey´s vegna tímaskorts.... humm gæti verið að horfa á það núna...
- Vægur vinnuleiði farinn að láta kræla á sér þar sem einungis 74 dagar eru þangað til ég hætti en hver er að telja? Ég stend sjálfa mig að því að vera hætt að vanda mig og hugsa æ þetta er allt í lagi, verð hvort sem er farin áður en nokkur fer að pæla í þessu....
- Klippikonan mín er hætt að klippa vegna grindagliðnunar og ég er ónýt. Finnst ekkert verra en að leita að nýjum hárgreiðsludúdda og þetta hafa yfirleitt verið verstu tímabil hár-sögu minnar! aarrgggg!
- Mental note I: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI!
- Einar kemur eftir 12 daga og verður þá heima í viku. Mig er farið að hlakka til... held ég. Er eiginlega búin að bæla söknunartilfinningar mínar alltof mikið niður með mikilli vinni og verkefnum því þegar ég fer að hugsa of mikið um aðskilnaðinn þá missi ég algjörlega stjórn á tárakirtlunum.
- Mental note II: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI Í ALVÖRUNNI!
- Daníel er byrjaður að syngja á fullu lög sem hann hefur lært í leikskólanum. Þarf að fara að hafa mig alla við ef ég ætla ekki að detta afturúr.
- Fékk að horfa á setningu alþingis í beinni útum gluggann hjá mér í dag. Eeeeelskaaaaa menn í búningum, sérstaklega lögreglu og hermannabúningum! Veit ekki hvað það er sem er svona flott við þá en þeir eru bara svo hraustlegir, snyrtilegir og flottir! Nei, ég er ekki blind þótt ég sé gift!
17 september 2007
Helgin
11 september 2007
09 september 2007
Einar kemur heim...
Í gær var síðan Grafarvogsdagurinn og við Vala fórum með strákana á Korpúlfstaði að skoða vinnustofur og sýningar listamanna sem eru staðsettir þarna. Eftir hádegismat röltum við síðan á Foldabókasafn þar sem við tókum helling af barnabókum og nú eru báðir strákarnir komnir með bókasafnsskírteini. Þegar heim var komið var grenjandi rigning og við Daníel poppuðum og kúrðum síðan uppí sófa með teppi og vorum að lesa saman nýju barnabækurnar sem við höfðum tekið á bókasafninu. Mjög huggulegt að sitja svona saman og hafa það kósý meðan að rigningin glummdi fyrir utan.
p.s. næsta föstudag (14.sept) mun ég afhenda uppsagnarbréfið mitt og þá er opinberlega bara 3 mánuðir eftir af vinnunni!
06 september 2007
Traffík
Ef þetta myndi ganga vel þá væri hægt að gera það sama fyrir sunnan. Leggja t.d. teina frá Keflavík og niður í bæ. Kannski eruð þetta bara draumórara en eitt er víst; mér er svo sannarlega farið að leiðast útsýnið frá Miklubrautinni á morgnana!
05 september 2007
Lífsins gangur
Það er margt skrítið við að búa allt í einu ein eftir svona mörg ár í sambúð. Mér líður hálfpartinn eins og ég sé skilin... En það eru hins vegar margir kostir í stöðunni líka.
- Ég er t.d. búin að skipta hjónarúminu í þrennt þar sem ég er með sitthvorn koddann á hverjum stað og ég færi mig síðan á milli eftir því með hvaða kodda ég er í stuði til að sofa með.
- Ég þarf ALDREI að bíða eftir klósetinu eða sturtunni þó að ég geti því miður ekki lengur leyft mér að fara í sturtu á morgnana vegna Daníels.
- Ég get breytt íbúðinni eins og mér sýnist og er t.d. búin að færa allt tölvudót inní vinnuherbergi þar sem það á heima.
- oooooog mér dettur ekki meira í hug! Fyndið var alveg búin að finna fullt um daginn.
Ég finn líka að vinir og vandamenn láta aðstæður mína sig miklu varða. Ég er mjög þakklát öllum en í raun er ástandið ekki eins slæmt og ég hélt að það yrði og ég er alveg að bjarga mér ágætlega. Heimsóknir og símtölu eru hins vegar áfram vel þegin þar sem það eru takmörk sett hvað ég get rætt mikið við sjálfa mig.
Svona í lokin þá er Daníel að standa sig vel í leikskólanum í aðlöguninni. Á morgun á hann að vera fram yfir hvíldina og það verður spennandi að sjá hvort hann sé tilbúinn að leggja sig með krökkunum. Hann virðist samt vera dáldið lítill í sér á köflum enda miklar breytingar bæði heima og að heiman hjá honum og hann er búinn að vera dáldið á flækingi undanfarna daga þar sem ég þarf líka að vinna þótt hann sé í aðlögun. Ég reyni að gera eitthvað skemmtilegt með honum þegar við erum komin heim og veita honum næga athygli. Vonandi gengur þetta yfir fljótlega.
01 september 2007
Þreytt eftir frí
Daníel er hrikalega erfiður og algjör martröð í ferðalögum en þetta er víst aldurinn. Ég er ennþá dauðþreytt eftir ferðalagið og íbúðin er öll í drasli því ég hef litla orku til að gera eitthvað í því. Langar helst bara að fara að sofa en ég verð í það minnsta að ganga frá þvottinum og leirtauinu áður en að því verður. Á morgun fer Daníel í pössun til tengdó og ég að vinna í nokkra klukkutíma því Daníel er að halda áfram í aðlögun á leikskólanum og ég mun því sennilega lítið komast í vinnuna næstu daga. Vona bara að þetta muni ganga vel enda er hann spenntur þegar við tölum um leikskólann.
Ég segi kannski betur frá ferðalaginu í næsta pósti.
Það er samt ein bók sem mig langar til að segja frá áður en ég hætti. Ég var að enda við að kaupa bókina "501 must-read books". Þetta er algjör snilldarbók sem segir frá 501 áhugaverðustu bókum að mati gagnrýnenda. Bókinni er skipt í kafla eftir tegund bókmenntana t.d. nútímabókmenntir, saga, vísindaskáldsögur og fleira. Um hverja bók er stutt ágrip, gagnrýni og sagt frá höfundinum og í sumum tilfellum hvaða áhrif tiltekin bók hafði á samfélagið t.d. ef hún var bönnuð eða olli uppþoti eða hugarfarsbreytingum og þess háttar. Allavegana þá ætla ég að sökkva mér í þessa bók og finna mér góða bók til að lesa. Anyways þvotturinn bíður....
09 ágúst 2007
Nú styttist í annan endann
Já nú er heldur betur farið að styttast í að hann Einar fari til Danmerkur í frekara nám. Ég er persónulega búin að taka mitt kvíðakast á þetta og gerði það fyrir ca.2 mánuðum en eftir því sem þetta færist nær þá er þetta að verða raunverulegra og raunverulegra. Stundum stend ég mig að því að hugsa að þetta sé ekkert að fara að gerast, það muni pottþétt eitthvað koma uppá sem muni breyta öllu saman en á sama tíma er maður spenntur og líka pínu áhuggjufullur.30 júlí 2007
Löngu komin heim + helgin
Það sem er hins vegar ofarlega í huga mér þessa dagana er dáldið fyndið atvik sem gerðist um helgina. Við Einar fórum semsagt með Daníel í fyrstu tjaldútileguna hans núna um helgina. Samkvæmt límiðanum á tjaldinu okkar þá höfum við víst ekki farið í útilegu síðan 2004! Vá hvað útilegur hafa breyst mikið á þessum stutta tíma! Þegar litið var yfir tjaldsvæðið þá var ekki eitt einasta tjald að sjá heldur var það troðfullt af tjaldvögnum, húsbílum og hjólhýsum og jeppum! Við vorum í einu af 3 tjöldum á svæðinu - TJALDsvæðinu. Allavegana þá erum við í góðum gír fyrir utan tjaldið okkar að grilla sykurpúða og spjalla þegar nokkrir krakkar labba upp að okkur.
Krakki1: Eruð þið bara í tjaldi?
Við: Já
Krakki1: Er ykkur ekkert kalt?
Við (dáldið hissa)? Nei
Krakki2 (10 ára): Eruð þið fátæk?
Þarna sprungum við úr hlátri en viðurkenndum eins og var að við værum bláfátæk og hefðum engann veginn efni á að kaupa okkur milljón króna skuldahala. Krökkunum fannst við eitthvað skrítin og fóru en eftir sátum við í pælinum um hvert æska landsins stefndi og hve lífsgæðakapphlaupið í íslandingum væri búið að ná nýjum hæðum þegar börn vita ekki einu sinni hvernig það er að gista í tjaldi! Ekki lauk þessu þarna því við virðumst hafa verið umræðuefnið á svæðinu því skömmu seinna sáum við fólk standa rétt hjá og gjóa augunum til okkar. Svo kemur kona um sextugt og segir: rosalega eru þið lítil sæt fjölskylda í litlu dúllutjaldi. Ég sagði auðvitað konunni að við værum fátæk samkvæmt fyrri greiningu. Hún vissi ekki alveg hvernig ætti að taka þessu og tók uppá að hughreysta okkur með því að endurtaka hvað við værum miklar dúllur áður en hún hrökklaðist í burtu. Við Einar höfðum gaman af þessu og eyddum afgangnum af kvöldinu í að finna góð mótsvör sem við hefðum átt eða getað notað í báðum tilfellum.
Niðurstaðan er þessi: Eins gott að mæta ekki í tjaldi á tjaldsvæði ef þú vilt ekki verða fyrir aðkasti :)
06 júlí 2007
Eg er i orlofi!
Vid erum buin ad hafa tad rosa gott og vedrid er buid ad leika vid okkur nema i gaerkvoldi ta var mikid rok tannig ad vid forum snemma heim. I dag er 32 stiga hiti og sjorinn er 23 gradur. Tad var skyad i morgun tannig ad vid forum bara a leikvollinn med Daniel. Daniel elska sjoinn og finnst skemmtilegast ad sitja sandinum eda ta ad elta oldurnar og tegar tar na honum ta skrikir hann hatt! hann er audvitad eftirlaeti allra herna enda eru ljoshaerd born med bla augau og ljosa hud sjaldgaef a tessum slodum. Allir vilja klappa honum og brosa til hans. Hotelid er frabart og mjod god adstada. Forum i gaer ad versla inn og komum heim med 3 innkaupapoka fyrir um 3.000 kall. Tad er odyrt herna en ekki ef madur passar sig ekki. Jaja tetta er gott i bili. Ja vardandi postkort ta hef eg ekki fundid postkassa herna ennta en vid aetlum til Albena um helgina og sennilega til Varna bradlega tannig ad kannski verdur eitthvad tar. Heyrumst!
28 júní 2007
Afleiðngar líkamsræktar....
Miðvikudagur. Ég vaknaði en þorði varla að hreyfa mig vegna ótta við sásauka. Gafst að lokum upp þegar Daníel vaknaði því ég vissi að það væri bara tímaspursmál hvenær hann myndi hoppa ofan á mig. Harðsperrurnar voru ekki eins slæmar og ég hélt þær yrðu... þær fóru hins vegar versnandi eftir því sem leið á daginn. Ég vissi að ég yrði að fara á æfingu ef ég ætlaði að geta farið framúr daginn eftir en vegna anna og ótrúlegra óþæginda þá gat ég ekki hugsað mér að hreyfa mig.
Dagurinn í dag. Ég vaknaði nokkrum sinnum um morguninn vegna sársauka í vöðvunum bara við að snúa mér í rúminu!!! Það var vont að ANDA!Þarna var Daníel farinn að pota í mig og draga mig frammúr þannig að ég stulaðist framúr til að fara í heita sturtu...það tók tvær tilraunir að komast yfir brúnina á baðkarinu. Eftir sturtuna bruddi ég tvær parkódín og var til í slaginn. Næsta hindrun var stiginn niður. GOD! Ég var virkilega að spá í að bara láta mig rúlla niður, yrði örugglega skárra.
Þegar í vinnuna var komið tók við annar stigi, ég afréð að leggja í hann enda parkódínið ekki alveg komið í gang þannig að ég tók lyftuna upp á 1. hæð. Þegar ég var mætt við skrifborði þá reyndi ég að spara allar hreyfingar yfir daginn og rúllaði mér á stólnum ef það þýddi að ég gat möguleg komist hjá því að standa upp. Um hádegi var ég engu skárri og eftir að vera búin að vera skemmtiefni fyrir minn helming skrifstofunnar tók ég stórann skammt af íbufeni og uppúr því fóru harðsperrurnar að skána. Eftir vinnu fórum við síðan í sund og það gerði gæfumuninn. Ég gat í það minnsta gengið upp stigann hérna heima án þess að gefa frá mér eitt einasta hljóð þannig að það er nokkuð gott. Á morgun er annar bodyshape tími en því miður þá er ég að fara á tónleikana The Wall þannig að ég kemst ekki.... æ ég veit ekki hvern ég er að reyna að blekkja, það er langt þangað til að ég mun treysta mér til að fara í annan svona tíma :D
p.s. tæknilega 3 dagar í Búlgaríu!!!
21 júní 2007
How quick they grow!
Eins og sumir vita þá á ég það til að vera dáldið stjórnsöm og meira að segja afskiptasöm á köflum myndu sumir segja. Hann Daníel hefur kannski ekki erft frá mér neitt útlitstengt en hann hefur svo sannarlega marga skapgerðarþætti sem koma beint frá mér! Hann er farinn að vera dáldið frekur og lætur ganga mikið á eftir sér. Auk þess er hann farinn að skipa fólki mikið fyrir. Hann á það til að fara út á svalir ef krakkar eru að leika sér í garðinum og kalla (öskra) yfir þá alskyns skipanir sem hvorki þau né við skiljum. Það eina sem við skiljum er að hann bannar þeim að gera þetta eða hitt og vill oft á tíðum að þau hætti einhverju! Svo í gær þá tók hann pabba sinn algjörlega fyrir. Þetta var semsagt um eftirmiðdaginn og það var opið útá svalir þar sem við erum með borð og stóla.
D: pabbi út
E: nei ekki núna Daníel
D: út núna!
E: ok
D: pabbi sitja
E: (gáttaður sest)
D: pabbi ekki sitja!
E: (yfir sig hrifinn af setningunum) ok og stendur upp og fer inn
D: NEI! Pabbi út!
Þarna er ég farin að veltast úr hlátri inní eldhúsi. Þetta er alveg ótrúlegt að um leið og hann er farinn að geta tjáð sig eitthvað þá byrjar hann á að skipa okkur fyrir hægri vinstri! Greinilega sonur minn!
Ég er voðalega hissa á þessu skyndilega tali því þetta gerðist næstum því allt á bara 1-2 dögum að hann fattaði að tengja þetta saman. Hann kann fleiri fleiri orð en þarna loksins fattaði hann hvað hann ætti að gera, alveg eins og þegar maður lærir að lesa... þetta bara allt í einu smellur!
Í morgun var hann síðan að tjá sig um það að hann vildi ekki fara til dagmömmunnar heldur vera heima að kúra. Getur einhver ímyndað sér eitthvað betra en að vera heima með barninu sínu og kúra bara undir teppi og hafa það huggó? Ekki ég allavegana þannig að ég þurfti að taka á öllu mínu til að neita honum um þetta og skella honum beint í fötin. En núna um leið og Daníel er byrjaður að tala þá er hann farinn að gabba mig enn meira. Áðan vorum við að fara í bað. Þá segir minn allt í einu "Daníel kúka". Ég auðvitað hendist af stað og kippi honum blautum uppúr og vonast eftir fyrstu koppaferðinni. En allt kemur fyrir ekki og Daníel viðurkennir að hann þurfti ekki að kúka! Skamm skamm Daníel fyrir að gabba mömmu svona þannig að uppskeran var aðeins rennandi blautt gólf.
Annars er lítið að gerast núna. Kári og co. voru að fara heim til US í dag þannig að við erum búin að endurheimta íbúðina okkar aftur. Það er vissulega mjög gaman að hafa gesti en þegar þetta er í lengri tíma þá er maður alltaf ánægður að hafa húsið útaf fyrir sig. Alda kemur á sunnudagskvöldið og þá megum við sennilega búast við því að Daníel verði tekinn í gíslingu af henni. Lára var að klára að verja lokaverkefnið í gær og henni gekk bara mjög vel þannig að hún kemur til landsins um helgina. Já svo er það bara tónleikar næsta föstudag og væntanleg útskriftarveisla helgina þar á eftir og svo út 2. júlí. Semsagt allt frábært og margt skemmtilegt í gangi og ekki annað að sjá nema að það sé tóm gleði framundan
kv,
07 júní 2007
Á maður að þora að vona?

18 Stiga hiti!!! OG sól! Annað hvort hefur einhverjum tekist að hakka sig inná veðurvefinn hjá mbl eða þá að spáin er gerð af sumarstarfsmanni ;)
Hvað fleira er framundan? Atli litli frændi minn(stóri frændi Daníels)á afmæli akkúrat 11.júní (spáin er 11.júní) þannig að hann fær prýðisgott veður til að spila fótbolta og annað skemmtilegt. Þetta er enginn smástrákur sko, við erum að tala um að gaurinn er að verða 9 ára takk fyrir! Hlakka til að finna handa honum eitthvað skemmtilegt, maður verður nú að standa sig í frænkuhlutverkinu. Beint á eftir Atla á ekki minni maður en Daníel Máni sjálfur sem á afmæli þann 13.júní og auðvitað langamma Daníels líka. Nóg að gera í afmælisgeiranum. Veit ekki alveg hvernig við höldum uppá afmælið en það væri gaman að geta kannski haldið það utandyra (minna vesen og færri horn í vegi hlaupandi krakka). Ég er hins vegar alveg blankó hvað varðar afmælisgjafir handa stráknum. Væri nú bara skynsamlegast að gefa honum eina bók og leggja inná banka hjá honum en mann langar alltaf til að gera eitthvað meira...
Anyways moving right along! Næst er það 20. júní sem er dagur sem ég er búin að setja á reminder hjá mér. Strax um morguninn á ég að vera að senda út jákvæða strauma út til DK þar sem Lára verður fyrst á svið um morguninn að verja flotta lokaverkefnið sitt. Þetta er svakalega flott hjá þér dúllan mín og þú átt eftir að rúlla þessu upp. gangi þér vel!
29.júní erum við Einar síðan búin að splæsa á okkur miðum á The Wall sem
Sinfóníuhljómsveitin mun flytja ásamt Dúndurfréttum í Laugardagshöllinni. Langt síðan við Einar höfum gert eitthvað annað seman en að fara í bíó og ég held að þetta verði þrusustuð. Ég man enn þá eftir þegar maður fór á þetta í uppfærslur Versló þegar ég var í 10.bekk í Hvassó. Ég var ekki alveg með á nótunum þá um hvað var að gerast en fannst bara töff að fara á sýningu hjá Versló. Nú er öldin önnur. Við Einar erum búin að heita okkur því að við ætlum að nýta þessa rúmlega 2 mánuði sem við eigum eftir saman til hins ítrasta þanngi að það er spurning hvað maður gerir næst.Nú er Erna í vinnunni komin úr 3gja mánaða heimsreisu og alveg að springa af nýrri reynslu og minningum. Við vinkonurnar í vinnunni erum duglega að reyna að spyrja hana spjörunum úr en það er hægra sagt en gert þegar manneskjan hefur ferið hringinn í kringum hnöttinn. Maður spyr ekki bara fékkstu gott veður? Hvar?Hvenær? Stelpan er búin að gera ýmislegt. Fara uppí hæstu hæðir til skoða fornar borgir í Perú, læra tangó í Argentínu, fara á fílsbak í Tælandi og matreiðslunámskeið í Bangkok. Ég horfi á reynslu hennar öfundaraugum og er búin að ákveða að þetta verð ég allt að prófa að upplifa einn daginn.
04 júní 2007
Sól T+28
Lárann mín kemur á skerið eftir ca.3 vikur og þá verður sko gaman. Heyrði aðeins í henni í gær þar sem hún var að vinna í lokaverkefninu sínu, svo dugleg!
31 maí 2007
könnun og þetta venjulega
| You Are Most Like Miranda! |
![]() Romantic prediction: Someone from your past is waiting to reconnect... But you'll have to think of him differently, if you want things to work. |
Ég sá svipað hjá Steinu og varð að prófa að sjá hvaða Sex and the City gella ég væri. Get nú ekki sagt að ég hafi beint séð mig fyrir mér sem Miröndu en ég get enn síður séð mig sem nokkra af hinum þannig að þetta er fínn millivegur.
Annars er lítið búið að vera í gangi hjá mér þar sem ég er búin að vera að vinna í húsinu hans pabba á hverjum einasta degi eftir vinnu í þessari viku. Held ég sé komin með ofnæmi fyrir ryki eða einhverju örðu þar sem ég er sí hnerrandi (jamm, meira en venjulega) og í morgun var ég með tárvot augu án ástæðu.
Í gær fór ég með Daníel og pabba að sækja um vegabréf. Ég sá strax þegar ég sótti Daníel að þetta yrði erfið myndataka en ákvað samt að láta slag standa. Þegar við mættum niðureftir þá var nokkuð mikið af fólki þarna og Daníel varð strax órólegur. Þegar var komið að myndatökunni sjálfri þá var Daníel orðinn vel pirraður og byrjaður að væla og varð alveg brjálaður ef ég ætlaði að láta hann niður. Ég þurfti semsagt að halda á honum vælandi meðan að ég sagði pabba til og aðstoðaði hann, þarna voru hendurnar byrjaðar að detta af mér. Myndatakan hans pabba tókst vel eftir nokkrar tilraunir og þá var röðin komin að Daníel. Það var ekki séns að Daníel væri til í að sitja eða standa á stólnum og öskrin í honum bergmáluðu yfir alla skrifstofuna! Stelpurnar í myndatökunni reynda hvað þær gátu til að friða strákinn t.d. með vatnsglasi, vínberjum og tuskudýrum en allt kom fyrir ekki. Það endaði á því að við þurftum frá að hverfa og nú þarf að fara aftur ef Daníel á að fá nýtt vegbréf fyrir ferðina okkar. Ég er búin að tilkynna það að ég ætli ekki að fara aftur með hann þar sem upphandleggsvöðvarnir mínir eru enn að jafna sig eftir hamfarirnar í gær. Það fellur því í hlut Einars að fara í töku 2!
Ég fékk reydnar smá gleði fréttir í dag. Ég fékk smá kauphækkun í dag og auðvitað brunaði ég beint niður í Kringlu og keypti mér skó... tvö pör! Nei, nei ég ætlaði nú að fara að endurnýja skódruslurnar mínar en nú gat ég bara gert það með aðeins betri samvisku. Í leiðinni kom ég líka við í frönsku búðinni og keypti sundskýlu á Daníel fyrir ferðina. Já, ég veit að það er langt í þetta en ég bara gat ekki haldið í mér. Það var komið fullt af nýjum vörum í búðina og ég varð alveg sjúk en því miður á Daníel nóg af fötum í bili þannig að ég gat ekki réttlætt að kaupa neitt meira á hann.
Átakið er enn í fullum gangi þó ég hafi ekki haft tíma til að mæta í ræktina síðustu vikuna vegna anna. Þetta stendur þó allt til bóta og ég stefni á að mæta í tíma á morgun eldhress. Ég er fyrir miklum vonbrigðum með veðrið þar sem ég var að stefna á að fara í lengri hjólatúr um helgina með Daníel en ég nenni því ómögulega í rigningarsudda og roki. Verður bara að bíða betri tíma.
Syndir dagins: pizza í kvöldmatinn (ekki mín hugmynd!)
afrek dagsins: ekkert sem mér dettur í hug.... :(
luv,
18 maí 2007
Þegar maður var lítill....
Ég er í smá nostalgígufýling. Mér finnst þetta aðalega koma þegar ég spái í leikföngunum hans Daníels, þá fer maður ósjálfrátt að hugsa hvað maður var sjálfur að gera og hafa gaman af þegar maður var lítill. Ég man t.d. eftir teiknimyndum eins og My little pony og Klaufabárðunum. Svo má auðvitað ekki gleyma súperkúl teiknimyndunum um Jem og The missfits (... no one´s the same, Jem is my name!).Munið þið ekki? Hún var svona rosa vinsæl stelpa sem breyttist í súperkúl ´80 söngkonu þegar hún snerti stjörnu-eyrnalokkinn sinn og svo líka She-ra sem var víst tvíburasystir He-man og greinilega framleidd til að mæta kvennkyns markhópi.

Uppáhaldið mitt var hins vegar alltaf Tommi og Jenni sem er víst núna búið að skilgreina sem eitthvað hættulegt eða óviðeigandi fyrir börn. Þetta er bara rugl! Hvað er að því að henda keilukúlu í hausinn á Tomma? Eða sprengja á honum skottið? Eða frysta hann? Ég held að þetta sé bara allt í besta lagi og kennir manni bara þvert á móti að margur er knár þótt hann sé smár! Allavegana þá fannst þetta alveg frábært og ásamt jarðíkornunum frá Disney. Man einhver eftir einhverju fleira?
Ég hitti Önnu Lilju í dag úr MH og loksins loksins fékk ég að sjá Bjarka Heiðar í eigin persónu. Ég fékk meira að segja að halda á litlu bollunni en aðeins í smá stund því Daníel var ekki sáttur við að deila mömmu sinni og lét sko heyra í sér! Jæja það er best að fara snemma að sofa til að vera hress á morgun þegar litli prinsinn vaknar. Kannski maður skelli sér bara í sund enda fátt skemmtilegra hjá litla gaurnum en að busla í sundi.
hilsen,
14 maí 2007
Köttur í sekk og fleira...
Ég ætla ekki einu sinni að byrja að tala um þessar kosningar. Bara eitt orð: kosningasvindl!
Annars gengur lífið sinn vana gang hérna og við erum búin að vera dugleg að njóta veðurblíðunnar síðustu daga. Það er alveg yndislegt að vakna á hverjum morgni og líta á gluggann þar sem gluggatjöldin eru alveg að springa undan sjólargeislunum sem eru að reyna að komast inn. Við erum búin að mála gólfið á svölunum... humm eða helminginn þar sem við þurftum að færa draslið til en svo þegar við ætluðum að mála hinn helminginn þá var pensillinn orðinn ónýtur. Spurning hvenær við drífum okkur að kaupa annan pensil til að klára verkið. Svo er húsmóðirin búin að kaupa fallega blómapotta til að hengja á svalarhanriðið og til að toppa allt þá var keypt borð og tveir stólar. Mmmm.. ég sé alveg fyrir mér dýrindis sumar úti á svölum með kaldann drykk í annari til að dreypa á jafnvel:)
Baðherbergið hefur líka hlotið smávægilega andslitslyftingu þar sem við erum loksins búin að mála það og ljóti spegillinn og áhöldin hafa vikið fyrir nýjustu tísku frá IKEA. Nú eigum við bara eftir að kaupa nýtt ljós inná baðið og nokkrar flísar til að skella utan á baðkarið og þá er þetta fínt. Alveg ótrúlegur kraftur sem hleypur í mann á vorinn :)
Matarvenjur Daníels eru alltaf að verða sértækari og sértækari. Á fimmtudaginn var grill hjá okkur og ég var sérstaklega með kjöt sem ég veit að Daníel myndi rífa í sig en allt kom fyrir ekki. Hann vildi ekki snerta á kjötinu, kartöflunum eða grænmetinu, það eina sem hann vildi var að borða eintómt smjör með skeið uppúr dollunni! Þetta bætist þá ofna á tómatsósu- og fetaostaátið sem við höfum furðað okkur á hingað til. Eins vill hann ekki hafa neitt ofaná brauðinu heldur aðeins og eingöngu þurrt brauð og kanntarnir finnast honum bestir. Hvað á maður að gera (nei við leyfum honum ekki að borða eintómt smjör) þegar barnið vill ekkert borða við matarborðið? Jæja við sjáum til. Um helgina vorum við síðan að læra litin og Daníel er kominn með gulan, rauðann, grænann og bláann ásamt svörtum og hvítum. Hann var mjög snöggur að ná þess en hann er þegar farinn að stríða mér með því að láta mig fá annan lit en ég bið um en viðurkennir svo alveg að þetta var t.d. ekki rauður eins og ég bað um og fer að skellihlægja og hleypur í burtu. Algjör pjakkur.
03 maí 2007
Here we go again!
Díses kræst hvað ég vildi að ég gæti verið þessi heilbrigða manneskja sem lítur ekki við sælgæti og nartar bara í sellerí yfir sjónvarpinu og finnst alltaf svo ótrúlega gaman í líkamsrækt og að labba á fjöll. Því miður þá er ég bara ekki þannig úr garði gerð og mér finnst þetta bara drulluerfitt og því miður léttast lítið. En þá er gott að vera með svona bloggsíðu þar sem maður getur sett fram fögur fyrirheit og smá heilaþvott í von um að vinir manns reki mann áfram og láti mann standa við þetta allt saman.
Afrek gærdagsins: 6 km sokk/labb við Ægissíðuna
Syndir gærdagsins: pizza í verðlaun fyrir erfiðið.... jæja 1-1=0 maður kemur allavegana út á sléttu!
28 apríl 2007
Gamlar minningar
Jii ég fékk svo mikla nostalgígju við að skrifa þetta að ég fór inní vinnuherbergi að grafa upp gömlu Beneventum-blöðin. Það er alveg ótrúlega gaman að rifja framhaldsskólaárin upp og vá hvað ég hugsaði oft með mér "þessi" og "já ég man eftir þessu" "þessi" "bíddu var þessi í MH?" Ég mæli eindregið við alla sem eru að lesa þennan texta að grafa upp gömlu menntaskólablöðin eða albúmin og rifja aðeins upp þessi ár... þið verðið sko ekki fyrir vonbrigðum!
Nú væri ég sko til í að finna eins og eina gamal minningabók frá því í grunnskóla og lesa í gegnum hana, það væri sko æði. BTW þá sagði Anný mér að Dóri (Hvassó) væri að setja allar gömlu spólurnar, sem skólinn á, á DVD og þar á meðal er Rokcy Horror og Kabarettinn góði. Hún var búin að lofa að lána mér eða gera aukaeintak handa mér þannig að ég ætla að fara að inna hana eftir þessu. Ef ég fæ þetta í hendurnar er þá ekki einhver áhugasamur að kíkja til mín eitthvert kvöldið og horfa á þetta? Mér er sagt að við Sara höfum farið "á kostum" sem kynnar og ekki má gleyma Rokcky þar sem allir voru að syngja og dansa á nærfötunum einum saman ;-)
Jæja nóg í bili.
23 apríl 2007
Aftur mánudagur???
Syndir helgarinnar: fékk mér sætabrauð með kaffinu á laugardag og sunnudag!
Ætli maður komi þá ekki bara út á núlli? Nú er vika eftir af átaksnámskeiðinu og ég bara hreinlega verð að taka mig á! Það er bara 1 og hálft kg í að ná 5 kg markmiðinu mínu þannig að nú er bara harkan 6. Ég geri mér auðvitað fullkonma grein fyrir því að þetta mun ekki nást á einni viku ;) en ég finn alveg að ég er búin að slaka töluvert á í mataræðinu og ég væri sennilega búin að ná þessu ef ekki hefði verið fyrir þessa páska og slabb síðustu viku.
Bruninn sem var hérna í síðustu viku virðist vera á allra vörum. Ég get nú ekki sagt að ég sjái mikið eftir Pravda-húsinu úr því sem komið var. Það sem ég sé hins vegar mest eftir er kebaab-staðurinn á horninu! Ég kom alltaf (sennilega teljandi á annari hendi) við þarna eftir djammið og fékk mér bita. Það verður spennandi að sjá hvað þeir muni reisa þarna í staðinn en Villi er víst búinn að lofa uppí ermina á sér að þarna muni ekki eiga sér annað Iðu-slys... sjáum til.
19 apríl 2007
Jónsi maður.....
Jón Viktor Gunnarsson náði í dag fyrsta áfanga að stórmeistaratitli í skák í lokaumferð Minningarmótsins um Þráin Guðmundsson sem fram fór í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni. Jón Viktor samdi jafntefli við alþjóðlega meistarann Innu Gaponenku frá Úkraínu og tryggði sér með því áfangann. Lettneski stórmeistarinn Normunds Miezes varð hins vegar sigurvegari mótsins.
Sko Jónsa, bara ennþá að keppa í skák. Ég man ennþá eftir því þegar við vorum að búa til risastórann "velkominn heim" borða í bekknum þegar hann var að koma heim eftir að hafa sigrað norðurlandameistaratitilinn. Jæja ég vona að allavegana að honum gangi vel og verði heimsfrægur, hann á það sko alveg skilið.
16 apríl 2007
Aftur kominn mánudagur....
Ef þú hefðir ofurafl, hvert myndi þitt vera ?
Ég væri þá svona ofur-leikkona sem gæti þannig brugðið sér í allra kvikinda líki og leikið alla út í horn.
Ég trúið því bara ekki þegar ég las þetta og þurfti þess vegna að lesa það aftur. Hvað er að þér?? hugsaði ég. Hver myndi virkilega kjósa sér þetta sem ofurafl? Kommon, hversu miklu meira kúl er að geta flogið eða lesið hugsanir??? Mig hefur alltaf dreymt um þetta tvennt. Ég ætla bara rétt að vona að ef einhver á ofurafl-spjald að hann fari þá ekki að eyða því í hana!
Annars fórum við að kíkja á leiksskólann hans Daníels í dag og hann leit mjög vel út. Þetta er alveg risa, risa stór leikskóli og leikskólastýran útskýði að það væri vegna þess hversu gamall hann væri og þá hefði verið allt önnur hugsun í gangi. Okkur leist bara mjög vel á þetta allt samana og ég fylltist upp af hugmyndum að skemmtilegu dóti til að gera með Daníel. Á leikskólanum voru líka að vinna 2 strákar um tvítugt sem mér fannst alveg meiriháttar jákvætt. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það sér rosalega gaman að vinna á leiksskóla þó það hljóti auðvitað að vera erfitt um leið. Ég gæti alveg hugsað mér að prófa að vinna í einhvern tíma á leiksskóla og reyndar var okkur Einari að detta það í hug að ég gæti prófað það þegar við verðum úti í DK. Það væri þá auðvitað eftir að ég væri búin að læra að tala smá, gengur nú ekki mikið að ráða inn manneskju á leikskólann sem kann minna í dönsku en krakkarnir!
Svo er hérna smá auka sem ég ætla að fara að taka upp í blogginu:
Afrek dagsins: Líkamsrækt + taka til
Syndir dagsins: nokkrara M&M hnetu kúlur
Syndir helgarinnar: alltofmargar til að tala um hérna....
11 apríl 2007
Komin heim!
Einar er nú þegar búinn að skrifa niður það helsta úr ferðalaginu og má lesa það á blogginu hans hérna
Á leiðinni heim vorum við farin að telja niður tímana þar til við myndum hitta litla gaurinn okkar og ég var farin að ímynda mér að hann myndi koma hlaupandi á móti okkur. Þetta var nú ansi langt frá því sem gerðist því þegar Daníel sá okkur þá fannst honum það ekkert merkilegt og forðaði sér frekar en hitt. Það tók hann smá tíma að venjast okkur aftur og taka okkur í sátt, það vorum nú við eftir allt saman sem SKILDUM HANN EFTIR! Við höfðum sem betur fer keypt dáldið af samviskubits-gjöfum og þær hjálpuðu til.
Það er fínt að vera komin heim þó ég geti nú ekki beint glaðst yfir þessu blessaða veðri sem herjar hérna á okkur. Nú er bara að telja niður dagana í næstu ferð.... humm 3 mánuðir mínus 9 dagar! Já, þetta er nú dáldið langt.. jæja... ok... ætli það sé ekki best að gera bara eitthvað af viti í millitíðinni eins og að vinna :)
04 apríl 2007
Brottför eftir 7 tíma...

26 mars 2007
Amsterdam eftir 10 daga...

Við Einar erum að fara í smá frí saman bara tvö ein um páskana. Við förum semstagt eldsnemma um morguninn til Amsterdam og verðum þar í 2 nætur og á laugardeginum ætlum víð síðan að skreppa til Antwerpen í Belgíu að heimsækja Öldu og Wannes. Það er búið að redda pössun fyrir Daníel og nú er ekkert annað að gera en að telja niður dagna!
Þetta verður frábært og ekki seinna að vænna að við hjónin fáum að skreppa í smá rómóferð. Við erum þegar búin að tryggja okkur gistingu á litlu hóteli í miðbænum og þaðan er nú stutt í allar áttir.
13 mars 2007
Valentines lost!
Jæja þá er loksins búið að hanna enskan texta og myndband Júróvisíon lagið okkar. Á ensku heitir það víst Valentine lost. Fannst það best eins og Dr,Gunni sagði það: þetta er kannski einhver hundur sem hann týndi einu sinni!10 mars 2007
Á námskeiðinu er stelpa sem ég kannaðist við úr MH, Harpa, og við erum búnar að para okkur saman. Mjög gott að hafa einhvern félaga til að vera í þessu með manni. En allavegana árangurinn lætur ekki á sér standa og þolið er allt að koma til og viktin er svei mér þá að lækka töluna þó svo að ég viti að þetta er mestmegnis bjúgur sem er að fara, samt hvetjandi.
Ég heyrði aðeins í Ebbu um daginn og hún og Himmi eru að koma sér fyrir í rólegheitunum í Baunalandinu. Mér leist nú ekkert á blikuna þegar Ebba sagðist vera að fara á dönsku-námskeið í götunni rétt hjá Ungdomshuset en hún byrjar ekki alveg strax og lætin virðast sem betur fer vera gengin yfir. Vona að allt fari vel hjá þeim og vonandi getum við heimsótt þau bráðlega. Annars er allt á fullu í ferðadeildinni hérna á þessu heimil. Við erum búin að ákveða að fara til Parísar um páskana fyrir flugmiðana sem fylgdu með bílnum. Hrefna og Egill ætla að taka Daníel að sér og við Einar ætlum að eiga rómantíska langa helgi saman. Ég get bara varla beðið!
Snorri "litli" frændi minn er að fara að feramast í vor! Þetta finnst mér alveg ótrúlegt. Hann er jafngamall núna og ég var þegar hann fæddist... how fast they grow! Ég er að velt því fyrir mér hvað væri gaman að gefa honum í fermingagjöf en aldrei þessu vant þá stend ég á gati. Snorri spilar á píanó og spilar badmington en dettur ekkert í hug sem tengist þessu. Gefur einhver útivistardót ennþá? humm... það sem ég er spenntust fyrir er að gefa honum einhverja upplifun eða reynslu eins og gjafakort í einhverja ferð eða námskeið. Ég er alveg tóm. Kannast einhver við þetta?
04 mars 2007
Það byrjar á morgun!
Maður getur ekki annað en vonað að þetta verði skemmtilegt námskeið með fínum stelpum en hvort sem það nú verður þá efast ég ekki um að þetta mun bera tilætlaðann árangur. Ég hef einu sinni áður farið á svona námskeið ( í gamla daga) og þá fórum við Tulla saman. Ég komst alveg þvílíkt í gang við þetta námskeið og gat varla hugsað mér að fara ekki í líkamsrækt á hverjum degi en ég viðurkenni alveg að þetta fór dáldið útí öfgarna á þeim tíma. Vonandi verður þetta mun þetta vekja áhuga en allt er gott í hófi.
Í gær áttum við Einar 7 ára afmæli og við skelltum Daníel í næturpössun til Hrefnu og Egils og fórum út að borða og bíó. Við fórum á IndanMango sem er nýlegur staður rétt fyrir ofan Laugarveginn. Við vorum spennt að prófa nýjan stað með öðruvísi áherslum en maður er vanur. Staðurinn er mjög lítill og kósí og ég held að það komist ekki fleiri en ca.25 manns þarna í einu. Maturinn var ágætur og þá kannski sérstaklega miðað við verðið sem var í lægri kanntinum. Það vantaði hins vegar aðeins uppá þjónustuna eða öllu heldur samræminguna sem sást greinilega þegar einn þjónn rakst á annann og annar jógúrtdrykkurinn okkar fór beint í gólfið. Næst tókum við eftir að fólkið á næsta borði fékk vitlausann rétt afgreiddann, þjónarnir voru eitthvað að þræta hver hefði pantað hvaða rétt og svo var borinn fram fyrir okkur aðalréttur sem annað fólk átti að fá (við áttum eftir að fá forréttinn). En ég var samt það ánægð að ég ætla að fara þangað aftur. Eftir matinn kíktum við í Keiluhöllina í þykhokkí. Mér til mikillar undrunar vann Einar 2 af 3 leikjum! hehe ég er kannski dáldið góð með mig í þythokkíi ;)
Eftir þetta var ferðinni heitið í Sambíóin í Álfabakka þar sem Einar var búin að panta fyrir okkur sæti í Lúxussalinn. Það var mjög gaman að prófa loksins lúxussalinn og myndin Music an lyrics var bara mjög skemmtileg og stóðst fyllilega væntingar. Við fórum síðan bara beint heim og fengum að sofa aðeins út í morgun. Ég er eiginlega búin að ákveða það að það er alveg nauðsynlegt að skreppa svona saman tvö út ein a.m.k. einu sinni í mánuði, algjör draumur!
26 febrúar 2007
Ég vil þín njóta Toyota!
Hérna má líta dýrðina sem við Einar fjárfestum í í gær nema það að okkar er djúp vínrauður en ég fann enga þannig mynd og okkar er dottinn útaf söluskráinni. Við fórum semsagt á tilboðsdaga hjá Toyota um helgina og féllum alveg fyrir þessum Toyota Corolla Terra árgerð 2005. Það er alveg frábær tilfinning að keyra svona nýjann og fínann bíl þó svo að maður eigi nú minnst í honum. Nú er eina vandamálið að ákveða hvert við eigum að fara fyrir farseðlana 2 sem fylgdu með í kaupunum... Einhverjar hugmyndir?
p.s. Einar er að smíða myndasíðu fyrir mig sem kemur í gagnið hérna vonandi fljótlega.
22 febrúar 2007
Endurnýjun
Það er því greinilega kominn tími á annan bíl því bíllaus getum við ekki verið. Nú er bara spurningin hvernig maður ætti að standa að þessu þar sem við verðum víst bara á landinu í rétt rúma 10 mánuði til viðbótar... Eftir miklar vangaveltur þá höfum við komist að því að það er best að fjárfesta í nýlegum bíl með góðu láni þannig að við greiðum bara afborganir og þufum í staðinn ekki að hafa áhyggjur af viðgerðum. Síðan verður bílinn (vonandi) bara seldur um leið og við förum af landinu.
Nú er bara spurning hvernig bíl maður ætti að fjárfesta í? Einhverjar hugmyndir?
11 febrúar 2007
Fyrr má nú rota...
Ég er ein af þeim sem vill hafa rólegt umhverfi í því samfélagi sem ég bý í. Þetta þýðir að ég kýs að lágmarka áreiti í kringum mig eins mikið og ég get. Það sem mér finnst standa helst uppúr í áreiti eru auglýsingar: fáðu þér svona, alvöru konur nota X og þar fram eftir götunum. Mér finnst þetta algjörlega óþolandi. En það má ekki misskilja mig, auglýsingar eru vissulega gagnlegar því þarna er verið að láta neytandann vita af valmöguleikum sínum. En þegar maður getur varla litið útum gluggann án þess að verða fórnarlamb einhverskonar markaðssetningar þá finnst mér þetta verið komið útí hróa. BTW fyrir utan húsið stendur akkúart bíll með risaauglýsingu sem á stendur klám.is!Sem betur fer erum við þó ekki orðin eins slæm í þessu og flest lönd í kringum okkur. Mér fannst stigið stórt skref niður á við þegar strætóskýlin í Reykjavík voru bókstaflega seld á einu bretti til einkafyrirtækis sem setti upp núverandi skýli með risastórum auglýsingum. Mér finnst þetta ljótt og ég myndi miklu frekar kjósa að vera laus við þessa sjónmengun. Eins vil ég geta stjórnað því hvenær er verið að koma
skilaboðum til mín, þegar ég er að horfa á sjónvarpið t.d. þá getur maður alltaf bara slökkt þegar maður er búinn að fá nóg eða í það minnsta skipt um stöð. Þegar þú ert úti á götu þá kemstu ekki hjá því að líta í kringum þig þó það sé ekki nema bara til að verða ekki undir næsta bíl!Það sem fékk mig hinsvegar til að skrifa þennan pistil var tónlistarmynband sem ég rakst á áðan. Þar var á ferðinni Black eyed peas með einhvern nýasta smell frá sér, ekkert að því. Nema þegar ég horfi aðeins betur á þetta þá sé ég að þetta myndband er ekkert annað en ein stór auglýsing! Ég veit að mynbönd sem þessi eru oft notuð sem auglýsingar en þá er það yfirleitt eitthvða svona vægt sem fellur svona meira inní umhverfið. Svo var ekki í þessu tilviki. Allt í einu tekur aðalgellan upp eitthvað tæki í miðri dansrútínu og er eitthvað að dást að þessu. Ég kíki betur og sé að það stendur greinilega Samsung á þessu. Hérna er svo varan sem verið var að auglýsa
Mér finnst þetta algjörlega glatað svo ég tali nú bara ekki um hversu hallærislegt þetta er yfir höfuð inní þessu eða bara hvaða myndbandi sem er. Hvernig í ósköpunum er hægt að tengja mp3 spilara inní þetta dæmi. Veit ekki. Ég ætla síðan ekki einu sinni að byrja hvaða áhrif allur þessi auglýsingaráróður hefur á mann. Heimur versnandi fer, ekki síst ef álverið fær að stækka í Straumsvík en það er efni í annan pistil.
Ætli við munum ekki enda eins og í bókinni Lovestar eftir Andra Snæ þar sem fólk var látið vinna fyrir skuldum með því að heilaþvo vini, ættingja og fólk útá götu með því að þylja upp einhvern auglýsingatexta sem var sendur í þau. Úff... hlakka til...
06 febrúar 2007
Bogamenn eru fljótfærnir

Þetta eru sko orð að sönnu! Ég hef alltaf verið talin fljótfær og skotið fyrst en spurt svo og þetta á sko ekki bara við um mig því Lára vinkona er líka svona og hún er líka bogamaður. Ég segi stundum hluti án umhugsunar og ef maður bætir því ofan á mína óbilandi hreinskilni þá gæti ég svo sem alveg skilið að sumir myndu kjósa að ég myndi þegja meira. Það er kannski bara fínt að geta skellt skuldinni á stjörnumerkið sem maður er fæddur í?
Þetta á samt við fleiri hluti í lífi mínu. Ef mér dettur eitthvað í hug þá vil ég helst gera það strax og taka það með tropmi. T.d. húsgagnainnkaup, lífsháttarbreytingar eða breytingar á heimilinu og önnur verkefni. Það má aldrei neitt bíða, enda yrði sami hluturinn ekki eins spennandi ef maður þyrfti alltaf að bíða heillengi eftir honum og spá endalaust og spekúlera í áhrif hans og svoleiðis, það er bara seinnatíma vandamál (verkefni) og maður tekur á því þá. Ekki má heldur gleyma því hversu bjarsýn ég er alltaf á gott gengi í þessum verkefnum og iðulega reikna ég með minni tíma/fyrirhöfn/peningum en raunin síðan verður.
Það sem kemur síðan í framhaldi af öllum mínum hugdettum og framkvæmdargleði er að fá samþykki Einars. Hann er nú yfirleitt fljótur að gefa undan en stundum þarf hann að fá smá sannfæringu, ætli hann nenni nokkuð að mótmæla mér ;)
Það er svo sem ekkert að þessu, ég allavegana veit af þessu en þetta hefur aldrei komið mér neitt þannig í koll þannig að ég hafi þurft að endurhugsa gerðir mína eða gefið mér ástæðu til að breyta mínu ágæta fyrikomulagi. Annars held ég að ég myndi ekki koma miklu í verk ef ég myndi fara aðra leið.
Jæja nóg komið af pælingum. Helgin hjá okkur var alveg frábær þar sem við fórum í kaffiboði til Friðriks, Unnar og Tómasar á laugardaginn. Tómas var dálitla stund að sætta sig við að Daníel væri kominn í heimsókn og ætlaði virkilega að leika sér með dótið hans... En eftir að Daníel fékk jarðaberjasvala og sykursjokk út frá því þá voru þeir orðnir mestu mátar og sátu glaðir uppí sófa að horfa á Stubbana og leika sér og sprella. Beint eftir kaffiboðið fórum við í matarboð til Völu, Hjalta og Jökuls. Jökull er alveg ófeiminn og tók Daníel vel og var duglegur að sýna honum allt dótið sitt. Mest gaman var hjá strákunum þegar þeir fengu að vera inní svefnherbergi að hoppa á dýnu og ekki má gleyma vasaljósaleiknum skemmtilega sem Hjalti kynnti fyrir þeim.
Mér tókst hins vegar næstum því að höfðukúpubrjóta mig með því að ganga á hillu í barnaherberginu sem hafði verið máluð í felulit, gangandi vegfarendum til gleði. Hillan hafði semsagt verið máluð blá í sama lit og ský sem var á veggnum þar sem hillan hékk, auglóslega gert með ásetningi. Ég var hins vegar fljót að jafna mig enda pizzur með hvítri sósu (já hvítri) á boðstólnum!
Þetta var hin besta helgi í alla staði. Nú fer að styttast í að Ebba og Himmi fara til DK þannig að ég mátti til með að bjóða þeim í mat á miðvikudaginn svona til að fá að sjá þau einu sinni áður en þau sleppa af skerinu. Reikna með að það verði dýrindislæri í matinn enda alltof langt síðan the "grillmaster" hefur fengið að spreyta sig á gasgrillinu.
Jæja nóg í bili.
01 febrúar 2007
Áfram Karen!
Til að ég haldi áfram með heilsuæðið hérna þá er búið að skipta út öllu pasta hérna út fyrir lífrænt speltpasta og hrísgrjón úr fyrir brún hrísgrjón (nema í neyðartilvikum þar sem það tekur 45 mín að sjóða brún en bara 15 mín að sjóða hvít). Ég er byrjuð aftur að drekka de-tox teið mitt og ætla að fara aftur að bæta spíru-duftinu útí matinn. Þess á milli mun ég heilaþvo sjálfa mig t.d. með því að skrifa svona blogg ;)
Annars er Daníel hress og Lára er farin aftur út til DK til að brillera í arkitekta-náminu. Hennar verður sárt saknað en vonandi kíkir hún á klakann aftur bráðlega. Jæja best að fara að borga eitthvað af þessum reikningum, jóla-vísað er komið og núna skil ég afhverju við erum búin að safna svona mikið af vildarpunktum!

